Fréttablaðið - 19.08.2013, Síða 62

Fréttablaðið - 19.08.2013, Síða 62
19. ágúst 2013 MÁNUDAGUR| MENNING | 34 „Lagðið Elephant með Tame Impala finnst mér mjög hressandi.“ Arnar Guðjónsson, söngvari Leaves. STUÐLAGIÐ „Þetta er bara mjög gaman. Ég hef líka verið að spila úti í sumar og það hefur veitt mér mikla gleði og vonandi lífgað upp á stemninguna í miðbænum,“ segir Þórður Mar- teinsson harmóníkuleikari en hann hefur undanfarin misseri spilað fyrir kaffihúsagesti Le Bistro á Laugaveginum. Þórður, sem er 77 ára, segir að hann hafi gaman af því að spila fyrir gesti og gangandi og spili þá helst dægurlög og gömlu dansana. Að sögn Þórðar hefur harmón- íkuáhuginn blundað í honum síðan hann var unglingur og notaði hann meðal annars fermingarpeningana til að kaupa sína fyrstu nikku. „Ég átti þá harmonikku í fjögur ár en seldi hana síðar þegar ég fór í nám í húsasmíði. Svo leið langur tími, eða 27 ár, þangað til ég eignaðist mína næstu.“ Þórður er að mestu sjálfmenntað- ur í harmonikkuleik en segist hafa farið á stutt námskeið til að læra undirstöðuatriðin. Hann hefur þó komið víða fram og hefur meðal annars komið fram með Capri tríó. „Ég byrjaði 1998 að leika fyrir dansi hjá Félagi eldri borgara með Capri tríói. Við spiluðum á hverjum sunnudegi í 21 ár og komum fram í alls 806 skipti. Ég er með þetta allt skrifað hjá mér.“ Auk þess að spila á Le Bistro gerir Þórður mikið af því að spila á hinum ýmsu dagvistarstofnunum. „Ég fer sem sjálfboðaliði og spila fyrir aldraða og fólk með sjúkdóma á borð við Alzheimer. Það veitir manni ánægju að sjá hvað tónlistin gerir mikið fyrir fólk og veitir því mikla gleði. Það er það sem þetta snýst allt um.“ Þórður starfaði sem húsvörður í Öldutúnsskóla í 35 ár en lét af störf- um eftir veikindi árið 2000. Auk harmóníkuleiksins eru hjólreið- ar hans aðaláhugamál og byrjar hann hvern morgun á því að hjóla um Hafnarfjörðinn. „Það má segja að ég hafi verið lengi að útskrifast úr skólanum,“ segir Þórður léttur. „Ég hefði viljað vinna lengur en ég greindist með krabbamein og neyddist til að hætta að vinna. Ég fór í aðgerð og það fór sem betur fer, en núna rækta ég líkama og sál með tónlistinni og hjólreiðum. Það heldur manni gangandi.“ hanna@frettabladid.is Fyrsta nikkan fyrir fermingarpeninginn Hinn 77 ára Þórður Marteinsson lífgar upp á miðbæinn með harmóníkuleik. Hann spilar fyrir kaffi húsagesti á Le Bistro á hverjum sunnudegi. FIMUR Á NIKKUNNI Þórður Marteinsson með harmonikkuna sína, sem er 57 ára af ítölskum uppruna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS Einfalt en gott 42“ sjónvarp með háskerpu 100 riða LED skjá á ómótstæðilegu verði. Myndgæði Vandaður háskerpu LED skjár með 1920x1080 punkta upplausn og 100Hz Clear Motion Index ásamt Pure Image 2 örgjörva. Tengimöguleikar Tækið er vel tengjum búið með 3 HDMI tengjum, USB tengi, Scart, Component, VGA, CVBS, Coaxial og Heyrnatólstengi ásamt CI+ Rauf. 99.990 Thomson 42FU2253 VERÐ ÁÐUR 119.990 Fleiri sjónvarpstilboð á sm.is FRÁBÆR KAUP TILBOÐ „Ég reyndi að fá Mel Gibson til að leika í myndinni en hann varð því miður af þessu frábæra tæki- færi, “ segir Benedikt Erlingsson, leikari og leikstjóri myndarinnar Hross í oss. Benedikt og Mel hittust þegar Benedikt var beðinn um að vera leiðsögumaður Mels sumarið 2008 þegar hann var staddur hér á landi ásamt tveimur sonum sínum. Að sögn Benedikts var Mel hér í sumarfríi en notaði einnig tím- ann til að fara á víkingaslóðir og skoða mögulega tökustaði fyrir kvikmynd sem hann var að vinna að. „Ég var rétt byrjaður að segja honum söguþráðinn þegar hann stoppaði mig af og sagði: „No Benni, this is horse porn,“ sem útleggst á íslensku sem nei Benni, þetta er hestaklám.“ Benedikt segir ekki hafa komið að sök að Hollywood- stjarnan hafi hafnað hlutverkinu enda hafi hann fengið frábæran mann í hlutverkið. „Það hefði kannski hjálpað upp á fjármögnun að gera að hafa Mel í myndinni en ég fékk frábæran mann að nafni Juan Camillo til að leika hlut- verkið. Ég þurfti því ekki stjörnu heldur bjó ég til stjörnu í stað- inn.“ Hross í oss verður frumsýnd þann 28. ágúst í Háskólabíó. „En Mel Gibson verður fjarri góður gamni, “ segir Benedikt. - hó Gibson leist ekki á hestaklámið Benedikt Erlingsson reyndi að fá Hollywood-stjörnuna til að leika í Hross í oss STJÖRNUR Benedikt Erlingsson og Mel Giibson bregða á leik en Mel var staddur hér á landi sumarið 2008. „Hauskúpurnar hafa mismunandi kar- akter og kalla til sín mismunandi eig- endur. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á að blanda saman andstæðum þannig að gleði og dauði virtust henta vel í þetta verk. Út komu þessar „sugar skull“-höf- uðkúpur sem hafa fylgt mér síðan,“ segir móðirin, myndlistarkonan og kennarinn Harpa Rún Ólafsdóttir. Hún hefur vakið mikla lukku með litríkum höfuðkúpum sem hún byrjaði að gera árið 2010. Harpa útskrifaðist úr myndlist frá Listaháskólanum árið 2005 og hefur farið víða í listinni síðan þá. „Ég hef haldið sýningar hér og þar og selt verkin mín í Crymo Gallerí og á Muses.is. Snemma árs 2012 komu hauskúpurnar fyrir í myndatöku fyrir skóhönnuðinn MIISTA, sem Saga Sigurðardóttir myndaði. Í kjöl- farið pantaði fyrirtækið fimm stykki sem fylgdu eftir haustlínu MIISTA og voru til sýnis á Las Vegas Magic Show, Capsule New York Show og Milan Micam Show,“ segir Harpa. Aðspurð segir hún nóg að gera þar sem undirbúningur er nú hafinn fyrir einkasýningu á verkum hennar. „Ég er líka með lítið barn og er að kenna við barnaskóla Hjallastefnunn- ar. Það má því segja að ég sé á fullu.“ -áo Litríkar höfuðkúpur njóta vinsælda Listakonan Harpa Rún Ólafsdóttir blandar saman dauða og gleði. „Sugar skull“ hauskúpurnar eru vinsælar. LISTAKONA Harpa Rún Ólafsdóttir ásamt dóttur sinni. Harmóníkan sem Þórður spilar á er 57 ára gömul af ítölskum uppruna. 57

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.