Fréttablaðið - 28.09.2013, Qupperneq 6
28. september 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
SAMFÉLAGSMÁL Litríkir plankar
sem umhverfis- og samgöngusvið
Reykjavíkurborgar festi niður á
gangbraut við Laugardalshöll í
gær voru fljótlega í kjölfarið fjar-
lægðir af lögreglu.
Dagur B. Eggertsson borgar-
fulltrúi segir ástæðuna hafa verið
samskiptaleysi Reykjavíkurborgar
og lögreglu. Stefán Eiríksson, lög-
reglustjóri lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu, sagðist ekki hafa
fengið betri upplýsingar frá borg-
inni en svo að plankarnir voru fjar-
lægðir. - nej
Misskilningur í Reykjavík:
Litríkir plankar
fjarlægðir í gær
LITAPLANKAR Borgin setti upp planka
sem lögreglan fjarlægði. MYND/DANÍEL
Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn.
Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
NÝ OG BE
TRI
HÖNNUN
!
TANNBURSTAR OG
TANNKREM FYRIR
VIÐKVÆM SVÆÐI
IÐNAÐUR Reykjavík Geo-
thermal hefur samið við
ríkisstjórn Eþíópíu um
byggingu og rekstur allt
að 1.000 megavatta jarð-
varmaorkuvers á háhita-
svæði Corbetti-öskjunnar
í Suður-Eþíópíu. Gert er
ráð fyrir að virkjað verði
í tveimur 500 megavatta
áföngum.
Fram kemur í tilkynningu
Reykjavík Geothermal að áætl-
uð fjárfesting verkefnisins sé um
500 milljarðar íslenskra króna.
Fyrirtækið, sem er íslensk-banda-
rískt og starfar á sviði jarðvarma-
nýtingar, er sagt hafa unnið síðast-
liðin tvö ár að orkusölusamningi
við Landsvirkjun Eþíópíu (EEPCO)
og ýmis þarlend ráðuneyti.
„Corbetti er virk eldstöð með
svipaða öskju og víða finnst á
Íslandi. Íslenskir og eþíópískir
jarðvísindamenn sem hafa rann-
sakað svæðið ítarlega telja Corb-
etti vera eitt besta jarðhitasvæði
heims til framleiðslu raforku,“
segir í tilkynningunni. Fyrstu
10 megavött raforkuvinnslunnar
verða framleidd árið 2015 og 100
megavött ári síðar. Áætlað er að
500 megavatta jarðorkuver verði
komið í fullan rekstur árið 2018.
Í sameigin legri frét ta -
tilkynningu EEPCO og
Reykjavík Geothermal
segir dr. Michael Debrets-
ion, aðstoðarforsætis-
ráðherra og stjórnar-
formaður EEPCO, mjög
ánægjulegt að tilkynna
„þetta sögulega samkomu-
lag“ við Reykjavík Geo-
thermal.
„Þetta er mikilvægt
skref fyrir EEPCO í átt að þeirri
framtíðarsýn fyrirtækisins að
verða leiðandi í orkuöflun og orku-
útflutningi í Austur-Afríku,“ segir
hann. „Við teljum Eþíópíu hafa
yfir að ráða 10.000 megavöttum af
óbeisluðum jarðvarma, sem veitir
stöðugt grunnafl og fellur vel að
yfir 50.000 megavöttum af virkj-
anlegu vatnsafli landsins.“
Þá er haft eftir Guðmundi Þór-
oddssyni, forstjóra Reykjavík
Geothermal, að með Corbetti-
jarðorkuverkefninu verði Eþíópía
leiðtogi í uppbyggingu jarðvarma
í heiminum.
„Eþíópía hefur nokkur af bestu
háhitasvæðum heims. Corbetti-
jarðvarmavirkjunin verður ein
sú hagkvæmasta og háþróaðasta
í heiminum. Markmið okkar til
langs tíma er að flytja íslenska
jarðhitaþekkingu og -reynslu til
Eþíópíu.“ olikr@frettabladid.is
GUÐMUNDUR
ÞÓRODDSSON
VIRKT ELDFJALL Askja Corbetti-eldstöðvarinnar í Suður-Eþíópíu er sögð svipuð og
víða þekkist á Íslandi. Íslenskir og eþíópískir jarðvísindamenn telja svæðið eitt það
besta í heimi til framleiðslu á raforku. MYND/RG
Reykjavík Geothermal landar
500 milljarða verki í Eþíópíu
Ríkisstjórn Eþíópíu hefur samið við Reykjavík Geothermal um 1.000 megavatta orkukaup frá jarðvarma.
Áætluð fjárfesting er um 500 milljarðar króna. Virkjað verður á svæði Corbetti-eldstöðvarinnar.
Sambandsríkið Eþíópía er á svæði í norðausturhluta Afríku sem almennt
er þekkt sem horn Afríku. Staðsetning landsins gagnvart Mið-Austur-
löndum og Evrópu, ásamt greiðum aðgangi að helstu höfnum, ýtir undir
alþjóðaviðskipti þess. Að Eþíópíu liggur Súdan í vestri, Sómalía og Djíbútí
í austri, Erítrea í norðri og Kenía í suðri. Landið, sem nær yfir 1.100.000
ferkílómetra, er sambandslýðveldi níu þjóðríkja og er næstfjölmennasta
ríki Afríku með yfir 94 milljónir íbúa.
JARÐHITAGEYMIRINN Svona sér Reykjavík Geothermal fyrir sér að virkja jarð-
varma í jarðhitageymi öskjunnar á Corbetti-svæðinu í Eþíópíu. MYND/RG
Eþíópía og Corbetti-jarðhitasvæðið
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur sýknaði Vátrygginga-
félag Íslands í gær en karl maður
stefndi tryggingafélaginu til
þess að fá óskertar bætur úr frí-
tímaslysatryggingu F-plús 3 fjöl-
skyldutryggingu. Maðurinn lenti
í hryllilegu slysi í sumarbústað í
nóvember árið 2009.
Maðurinn var að vinna í
sumar bústað í Árnessýslu ásamt
fjölskyldu. Um nóttina féll hann
ofan á grunnplötu byggingar
sem tengdi sumarhúsið við ný-
byggingu sem þar var verið að
reisa. Upp úr grunnplötu tengi-
byggingarinnar stóðu óvarin
steypustyrktarjárn sem maður-
inn féll á úr rúmlega þriggja
metra hæð og stungust járntein-
arnir víða í gegnum líkama hans.
Alls gengu átta járn í gegnum
manninn og þurfti að skera sjö
þeirra í sundur með slípirokki,
áður en unnt var að flytja hann
með þyrlu af slysstað. Maðurinn
er lamaður fyrir neðan brjóst af
völdum slyssins og hlaut hann að
auki margvíslega aðra áverka.
Fátt er vitað um ástæður þess að
hann féll, en sjálfur telur hann að
hann hafi gengið í svefni. Í niður-
stöðu dómsins segir að hann hafi
drukkið áfengi um nóttina og að
ölvun hans hafi haft áhrif á að
slysið var. Þá var einnig litið til
þess að svo maðurinn gæti fall-
ið út um dyraopið þurfti hann að
fara að dyrunum, taka golfpokana
sem fyrir henni voru frá og opna
dyrnar. Var því tryggingafélagið
sýknað. - vg
Maður sem féll ofan á járnteina, sem stungust í gegnum hann, tapaði fyrir héraðsdómi:
Tryggingafélag sýknað vegna ölvunar
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR
Maðurinn tapaði vegna þess að hann
var ölvaður.
FÓLK Gunnar Birgisson, fyrrver-
andi bæjarstjóri Kópavogs, sem
gekkst undir aðgerð á Landspítal-
anum eftir að hafa fengið hjarta-
vírus segist í samtali við Kópa-
vogsfréttir vera orðinn eldhress.
„Ef læknavísindin væru ekki
eins og þau eru orðin í dag þá væri
ég sjálfsagt steindauður,“ segir
Gunnar, sem í var settur svokall-
aður bjargráður. „Hjartað í mér
slær eins og Rolls Royce Turbo.
Andstæðingar mínir í pólitík mega
fara að vara sig.“ - hva
Með bjargráð eftir aðgerð:
Andstæðingar
mega vara sig
EFNAHAGSMÁL Framleiðsluverð
lækkar um 2,8 prósent milli mán-
aða. Í ágúst var vísitala fram-
leiðsluverðs 197,5 stig að því er
greinir á vef Hagstofunnar. Vísi-
tala fyrir stóriðju lækkaði um 5,1
prósent og var í ágúst 197,3 stig.
Miðað við ágúst 2012 hefur vísi-
tala framleiðsluverðs lækkað um
3 prósent. - nej
Tæplega 3 prósenta lækkun:
Framleiðsluverð
lægra í ágúst