Fréttablaðið - 28.09.2013, Qupperneq 60
| ATVINNA |
Skeifan 2
S: 530 5900 | poulsen.is
Sölumaður
í þjónustuver
Við leitum að einstaklingi sem
- Er duglegur og sjálfstæður til verka
- Er góður í mannlegum samskiptum
- Hefur frumkvæði og metnað í starfi
- Hefur skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Býr yfir góðri tölvukunnáttu
- Býr yfir góðri kunnáttu á íslensku og ensku
- Getur unnið í hóp án vandkvæða
- Er móttækilegur fyrir nýjungum
- Er reyklaus
Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um
Allar umsóknir skulu sendar á
bjorgvin@poulsen.is
fyrir 10.10.2013.
Poulsen er söluaðili á vörum fyrir málningar- og réttingarverkstæði. Bjóðum upp á
heimsþekkt vörumerki eins og bílalökk frá Dupont, Spies Hecker og öðrum tengdum
vörum frá Farécla, 3M, DeVillbiss, Evercoat, Pilkington, og AGC svo fátt eitt sé nefnt.
Poulsen hefur þjónustað viðskiptavini sína í yfir 100 ár.
Við bjóðum
góða vinnu með góðu starfsöryggi og jákvæðum
anda hjá fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið
starfrækt í meira en 100 ár
Náms- og
rannsóknarstyrkur
Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands auglýsir eftir
umsóknum um náms- og rannsóknarstyrk fyrir árið 2013.
Styrkurinn nemur 1.250.000 kr.
Styrkurinn er ætlaður námsfólki sem vinnur að rannsóknar-
verkefni til lokaprófs á háskólastigi.
Verkefnið skal tengjast Suðurlandi og þjóna ótvíræðum
atvinnu- og/eða fræðilegum tilgangi fyrir Suðurland eða
hluta Suðurlands.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2013.
Nánari upplýsingar á www.fraedslunet.is og www.hfsu.is.
Sölufulltrúar í söluver
– 365 miðlar óska eftir öflugum sölufulltrúum.
Við leitum að kátu og skemmtilegu fólki sem kann að spjalla og hefur áhuga á að vinna í lifandi og spennandi umhverfi.
Um er að ræða hlutastarf. Starfið fellst í sölu á vörum og þjónustum 365
Hæfniskröfur:
• Áhugi á sölumennsku.
• Áhugi á sjónvarpi, snjallsímum, spjaldtölvum og tækni.
• Ábyrgð og heiðarleiki.
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
• Sjálflærðir sölumenn eru velkomnir.
Áhugasamir vinsamlegast sækið um á www.365.is. Störf hjá 365, merkt „Söluver“.
Nánari upplýsingar veitir Benedikt Freyr, benediktj@365.is.
Starfsmaður óskast til starfa á Reyðarfirði
Starfið felur í sér vinnu við flokkun og móttöku á þeim efnum
sem Hringrás tekur á móti á starfsstöð sinni við Hjallaleyru á Reyðarfirði.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi
1) Vinnuvélaréttindi (stærra prófið)
2) Meiraprófið
3) Lyftararéttindi
Jafnframt er æskilegt að viðkomandi hafi tölvukunnáttu og ADR réttindi.
Umsóknir sendist á starf@hringras.is fyrir 4 . október
Hringrás er eitt öflugasta endurvinnslu- og umhverfisverndarfyrirtæki landsins, með starfsemi á
5 stöðum, og rekur einnig dótturfélag í sömu starfsemi í Kanada. Starfsmenn eru rúmlega 100
talsins. Hringrás endurvinnur ýmis konar úrgang frá einstaklingum og fyrirtækjum og breytir í
verðmætt hráefni sem selt er á erlenda markaði til endurnýtingar í ýmiskonar varning. Þannig
stuðlar Hringrás að umhverfisvernd og öflun verðmæta. Hringrás vinnur eftir Iso 14001.
Fyrirtækið fær formlega vottun á næstu mánuðum
Umsóknir sendast á starf@hringras.is fyrir 25. nóvember næstkomandi.
· ·
Expert ehf. óskar eftir að ráða til starfa vélfræðing, vélvirkja,
vélstjóra eða mann með mikla reynslu í faginu. Starfið felur
í sér viðhald og uppsetningu véla og tækja tengt kæli- og
frystibúnaði, auk annarra tilfallandi verkefna.
Við leitum að laghentum og sveigjanlegum starfsmanni sem
fellur vel að góðum hóp starfsfólks okkar. Grunnþekking í
kælitækni er nauðsynleg og viðkomandi þarf að hafa góða
færni í mannlegum samskiptum.
Áhugasamir sendi umsókn og starfsferilsskrá á
netfangið expert@expert.is
en fullum trúnaði er heitið við umsækjendur.
Umsóknarfrestur er til 7. október næstkomandi.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ingi Pétursson
í síma 517-4000 eða 660-2961
Þjónustumaður óskast
á kæliverkstæði
Expert ehf. sérhæfir sig í viðhaldi og eftirliti með kælibúnaði. Hjá félaginu
starfar samhentur hópur starfsmanna með langa starfsreynslu og þekkingu.
Fyrirtækið er með starfsstöðvar í Reykjavík og á Akureyri og er lögð áhersla
á framúrskarandi þjónustu og gæði í öllum störfum.
28. september 2013 LAUGARDAGUR10