Fréttablaðið - 28.09.2013, Side 72
Í Reykjavik Spa er svo sannarlega hægt að slaka á,
fara í nudd og nýta sér fjölbreytilegt úrval af heilsu-
og snyrtimeðferðum. Meðal annars Reykjavik Spa
nudd sem er græðandi heildræn nuddmeðferð með
áhrif frá Hawaii.
Reykjavík Spa er glæsileg heilsulind á Grand Hótel Reykjavík.
„Við bjóðum upp á alla almenna snyrtingu, nudd og dásam-
lega spa-aðstöðu. Við leggjum ríka áherslu á afslappað
andrúmsloft og viljum þjónusta gesti okkar af kostgæfni,“
segir Aðalheiður Ósk Þorleifsdóttir, Allý, rekstrarstjóri Reykja-
vík Spa sem er í eigu hótelsins og töluvert nýtt af gestum
þess. „Skiptingin milli Íslendinga og útlendinga er nokkuð
jöfn,“ segir Allý og áréttir að snyrti- og nuddstofan ásamt
spa-inu séu fyrir alla, ekki eingöngu hótelgesti. Líkams-
ræktarstöðin á staðnum sé hinsvegar ætluð hótel- og
ráðstefnugestum.
VINSÆLT FYRIR HÓPA
Í Reykjavík Spa er hægt að slaka á, fara í nudd og nýta sér
fjölbreytilegt úrval af heilsu- og snyrtimeðferðum. „Við erum
með tvo heita potta, saunu (blautgufu) og infrarauðan sauna-
klefa. Á snyrtistofunni eru sex rúmgóð herbergi þar sem
starfsfólk okkar kappkostar að veita viðskiptavinum bestu
þjónustu hverju sinni. Þá erum við einnig með yndislega
fallegt og róandi hvíldarsvæði með kertaljósum og arineldi,“
lýsir Allý brosandi.
Spa-ið er afar vinsælt meðal hópa. „Við fáum til okkar
vinahópa, saumaklúbba, pör og ekki síst hópa sem eru að
steggja og gæsa,“ segir Allý.
Gjafabréfin frá Reykjavík Spa eru einnig vinsæl. „Enda
eru þau snilldargjöf við hvaða tækifæri sem er. Dekur er
eitthvað sem margir þurfa á að halda í öllu áreiti nútímans.
Með því getur fólk horfið stutta stund frá skarkalanum og
notið rólegheita, yls og afslöppunar,“ segir hún og bendir
SLAKAÐ Á
Í FALLEGU UMHVERFI
jafnframt á að dekrið sé eftirsótt hjá brúðhjónum og jafnvel
þeim sem eru á leið á árshátíð og vilja gera vel við sig á
undan.
ÁHRIF FRÁ HAWAII
Nýjasta viðbótin á Reykjavik spa er nudd sem við tengjum
við nuddmenningu Hawaii-búa. Þessar tvær eyjar eiga margt
sameiginlegt og tilvalið að innleiða áhrif frá þeirra nudd-
menningu yfir til okkar. Þetta nudd er græðandi heildræn
nuddmeðferð sem byggir á fjölbreyttum aðferðum. Nudd-
arar nota lófana, framhandleggina, fingur, hnúa og jafnvel
olnboga til að nudda, hnoða, þrýsta en einnig vinnum við
með bæði hið innra og ytra.
Hawaii-búar, eins og fleiri menningarhópar, trúa að al-
heimurinn sé fullur af orku. Þessi orka er kölluð MANA. Þeir
telja einnig að allir og allt sé tengt hvað við annað í gegnum
þessa orku,” segir Allý og bætir við að lokum: „Reykjavik Spa
nuddið er allt í senn; mjúkt, flæðandi, kröftugt, ánægjulegt
og tilfinningaríkt.” og er blanda af því besta sem við bjóðum
upp á í nuddmeðferðum.
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavikspa.is,
á Facebook og í síma 514-8090.
SÍTRUS MARINERAÐUR LAX MEÐ
KRABBA- OG PIPARRÓTARRJÓMA
1 flak af lax (roðflett og beinhreinsað)
Börkur af 1 appelsínu (fínn rifinn)
Börkur af ½ sítrónu (fínn rifinn)
Börkur af ½ lime (fínn rifinn)
Börkur af ¼ greip (fínn rifinn)
85 gr góðu sjávarsalti t.d. fleur de sel
eða Maldon salt
2 msk sykur
1 msk sítrónupipar
Snyrtið flakið og takið mest af fitunni af (brúni
hlutinn)
Fyrir marineringu
Blandið öllu saman í skál og brjótið upp alla
kekk i. Setið plastfilmu í bakka sem laxaflakið
passa r í og stráið helmingnum af salt blöndunni
á filmuna. Leggið laxinn ofan á saltið og stráið
afganginum af saltblöndunni á flakið. Pakkið
laxinu í plastfilmu og þrístið létt á. Kælt í rúma
þrjá tíma.
Gott er að bera fram með þessu pipar-
rótarsósu, blandað salat með kryddjurtum, t.d.
dilli, kerfilli og nýbökuðu brauði.
HINDBERJA FRAUÐ
250 gr. hindberjamauk úr ferskum
eða frosnum berjum
4 blöð matarlím
40 ml hindberjasafi
2 stk. eggjahvítur
90 gr sykur
150 ml léttþeyttur rjómi
Matarlímið er leyst upp í hindberjasafanum og
sett út í hindberjamaukið. Blandan er látin taka
sig aðeins. Eggjahvítu og sykri er þeytt saman
og blandað út í hindberjablönduna í tveimur
skömmtum. Léttþeyttum rjóma er svo bætt
sama n við í lokin.
SKYR FRAUÐ
500 gr skyr
75 gr sykur
85 gr aðalbláber
2 dl rjómi þeyttur
½ rjómi heitur
4 stk matarlím
Skyr, aðalbláber og sykur er sett í matvinnsluvél.
Matarlímsblöð leyst upp í heita rjómanum og
svo öllu blandað saman. Þeytta rjómanum er
blandað saman við skyrblönduna. Það er gott
að bera fram með þessu blönduð fersk ber og
þeyttan rjóma.
Glænýr veitingastaður opnaði nýlega á Grand Hótel
Reykjavík. Þar er boðið upp á evrópska matargerð
úr íslensku hráefni.
„Við opnuðum glænýjan veitingastað nýverið, Restaurant
Grand. Aðaláherslan er á evrópskt eldhús með íslensku hrá-
efni,” útskýrir Haukur Gröndal, matreiðslumeistari. Haukur
lofar dýrindis veitingum á nýja staðnum.
„Við verðum með spennandi samsuðu af alls konar
réttum og leggjum okkur fram um að nota íslenskt hráefni.
Evrópskt eldhús gengur út á góðan og fallega framsettan,
alvöru mat en við munum skipta út matseðlum tvisvar til
fjórum sinnum á ári, í takt við árstíðirnar. Þannig verður
alltaf það ferskasta í boði og það besta sem fáanlegt er.”
Restaurant Grand tekur milli 70 og 80 manns í sæti.
Staðurinn er opinn í hádeginu þar sem boðið er upp á
létt og heilsusamlegt hlaðborð, alla virka daga en á kvöldin
verður a la carte matseðill.
„Við stílum inn á heilsusamlega rétti í hádegishlað-
borðinu, kjöt og fisk, heitan grænmetisrétt og sjö til átta
forrétti, sem samanstanda af ýmsum salötum og fleiru.
Einfaldlega þægilegur og góður hádegismatur. Á kvöldin
tekur við önnur stemming með a la carte þjónustu og þá
verðum við einnig með samsetta matseðla með 3 til 6 rétti.
Það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi hjá okkur.”
Matreiðslumeistararnir á Grand Hótel Reykjavík.
RESTAURANT
GRAND
Uppskriftir frá Hauki Gröndal matreiðslumeistara
á Grand Hótel Reykjavík