Fréttablaðið - 28.09.2013, Page 120
NÆRMYND
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Katrín Jónsdóttir
knattspyrnukona og læknir.
FORELDRAR: Jón Óttarr Karlsson og
Ingigerður Torfadóttir
Katrín er ein ástsælasta knattspyrnukona
Íslands og lék sinn síðasta landsleik fyrir
þjóðina síðastliðinn fimmtudag gegn Sviss.
Hún býr í Svíþjóð, er læknir og er í sérnámi.
Hún er gift Þorvaldi Makan Sigbjörnssyni.
Hún er ofboðslega metnaðarfull í
öllu sem hún tekur sér fyrir hendur
enda sést það best á árangri hennar
í öllu sem hún gerir. Hún er ákaflega
einbeitt og gerir miklar kröfur til
sjálfrar sín og er með allt á hreinu.
Það er eitt að vera góð í fótbolta en
annað að standast alla samkeppnina
í svona mörg ár og hún gerði það svo
sannarlega enda sló hún leikjametið
með landsliðinu. Katrín
hætti á toppnum og getur
borið höfuðið mjög hátt.
Sigurður Ragnar
Eyjólfs son, fyrr-
verandi landsliðs-
þjálfari.
Katrín er einstök manneskja, einlæg
og heiðarleg. Hún hefur einstaka leið-
togahæfileika án þess að vera of ýkt í
því og er frábær leiðtogi. Hún er frábær
íþróttamaður og öðrum íþrótta mönnum
fyrirmynd. Það eru allir jafnir fyrir
Katrínu, hvort sem þeir hafa spilað 300
landsliðsleiki eða engan. Hún er ein af
þessum full komnu,
með gáfurnar,
íþrótta hæfileikana
og metnaðinn.
Margrét Lára
Viðarsdóttir, vin-
kona og liðsfélagi.
Katrín vandar ávallt til verka í öllu
sem hún tekur sér fyrir hendur. Hún
er samviskusöm, dugleg og vinnusöm.
Hún er ábyrgðarfull, skipulögð og vill
hafa hlutina á hreinu. Hún er einnig
mjög skörp, stundvís, kurteis og er góð
fyrirmynd. Katrín er mikil fjölskyldu-
manneskja, vinur vina sinna
og á frábæran eiginmann
sem styður vel við bakið
á henni. Katrín er mann-
eskja sem vill ná árangri
og gerir það.
Jón Óttarr Karlsson,
faðir Katrínar.
Nú er
opio allan
sólarhringinn
í Engihjalla
ht.is
ÞVOTTAVÉLAR