Fréttablaðið - 19.11.2013, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 19.11.2013, Blaðsíða 4
19. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4 STJÓRNMÁL Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segist vilja forð- ast allt sem auki skuldir ríkisins og þá sérstaklega ráðstafanir sem draga úr lánshæfismati á íslenska ríkinu. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Helga Hjörvar, þingmanns Samfylkingar, sem bað fjármálaráðherra að taka af öll tvímæli um að ekki stæði til að fjármagna skuldaleiðrétting- arnar með skuldabréfaútgáfu Seðlabankans eða annarri pen- ingaprentun. Fyrirspurnin kom í kjölfar fundar í efnahags- og við- skiptanefnd Alþingis í gær. Þar sagði aðalhagfræðingur Seðla- banka Íslands, Þórarinn G. Pét- ursson, að lánshæfiseinkunn ríkissjóðs færi í ruslflokk ef Seðlabankanum yrði gert með lagabreytingum að fjármagna skuldaleiðréttingarsjóð. Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri, Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði, og Þórarinn mættu fyrir hönd peningastefnunefndar á fundinn. Már sagði ljóst að leiðrétt- ingarsjóður væri ígildi peninga- prentunar. „Og það þarf ekki að stafa ofan í ykkur hvaða áhrif það hefur,“ sagði hann. Þórarinn tók í sama streng. „Það að fjármagna [leiðrétting- arsjóð] í gegnum efnahagsreikn- ing Seðlabankans yrði í fyrsta lagi ólöglegt miðað við núverandi lög, þ.e. það er Seðlabankans og peningastefnunefndar að sýsla með stærð efnahagsreiknings Seðlabankans, ekki stjórnvalda. Það er auðvitað hægt að breyta þeim lögum en ég held að það yrði öruggasta leiðin til að senda lánshæfiseinkunn ríkissjóðs beint niður í ruslflokk. En við erum ekki búnir að sjá útfærsluna og verðum bara að bíða og sjá,“ sagði Þórarinn. Eftir fundinn sagðist Bjarni vilja forðast ráðstafanir sem draga úr lánshæfismati. „Það eru aðgerðir sem við eigum að forð- ast í lengstu lög og við eigum að vinna okkur í hina áttina.“ Hann neitaði því jafnframt að hann vildi auka nettóskuldir ríkissjóðs og sagðist þvert á móti vinna að því að lækka skuldir ríkissjóðs næstu árin. Hann vildi þó bíða með efnislega umræðu um aðgerðir fyrir skuldsett heimili þar til til- lögur berast frá nefnd sem vinnur að þeim málum. Þegar leitað var eftir við- brögðum Sigmundar Dav- íðs Gunnlaugssonar, for- sætisráðherra sagðist hann ekki ætla að láta Seðlabankann stöðva ríkisstjórnina í skulda- leiðréttingum. Hann sagði nálgun starfs- manna Seðlabankans vera ákaflega sér- kennilega og eiga meira skylt við póli- t ík en almenna stjórn efna- hagsmála. „Mér sýnist sem menn séu svona að gíra sig upp í það að vera á móti þessum tillögum til skuldaleiðréttingar, sama hvern- ig þær verða. En við látum ekki Seðlabankann stöðva okkur í því,“ sagði Sigmundur Davíð. hoskuldur@frettabladid.is / erla@frettabladid.is Bjarni hafnar ráðstöfunum sem draga úr lánshæfismati Aðalhagfræðingur Seðlabankans segir lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fara í ruslflokk verði Seðlabanka gert að fjármagna skuldaleiðréttingarsjóð. Fjármálaráherra segist vilja forðast allt sem auki skuldir ríkisins. Forsætis- ráðherra segist aftur á móti ekki ætla að láta Seðlabankann stöðva ríkisstjórnina í skuldaleiðréttingum. ÞÓRARINN OG MÁR Þórarinn G. Pétursson segir að lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fari í ruslflokk ef Seðlabankinn verður að fjármagna skuldaleiðréttingarsjóð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Mér sýnist sem menn séu svona að gíra sig upp í það að vera á móti þessum tillögum til skuldaleiðréttingar, sama hvernig þær verða. En við látum ekki Seðla- bankann stöðva okkur í því. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra VIÐSKIPTI Viðskiptaráð Íslands telur að leita þurfi alla leiða til að draga úr neikvæðum áhrifum gjaldeyrishaftanna á fjárfesting- ar íslensku lífeyrissjóðanna. Ráðið segir höftin skapa veiga- miklar áskoranir fyrir starfs- umhverfi og verkefni sjóðanna. Þau geri það að verkum að fjár- festingar sjóðanna einkennist af „stigvaxandi einsleitni“, sem end- urspeglist meðal annars í auknu umfangi þeirra sem eigendur íslenskra fyrirtækja. - hg Viðskiptaráð Íslands: Bendir á slæm áhrif haftanna 242.492 bifreiðar voru skráðar á landinu í árslok 2012. Árið 2011 voru 238.293 bifreiðar skráðar og árið þar á undan voru þær 237.098. Heimild: Samgöngustofa. PERSÓNUVERND Þjóðskrá Íslands mátti leita til læknasetursins Art Medica til að staðfesta að barn sem verið var að skrá ætti í raun tvær mæður. Tvær konur í hjónabandi eignuðust barn eftir tæknifrjóvg- un. Við útgáfu fæðingarvottorðs leitaði Þjóðskrá staðfestingar Art Medica á því að konan sem ekki ól barnið hefði veitt samþykki fyrir því að eiginkonan færi í tækni- frjóvgun. Slíkt samþykki er for- senda þess að maki sé skráður sem foreldri barnsins. Konan kvartaði undan vinnubrögðunum til Per- sónuverndar sem segir þau hins vegar í samræmi við lög. - gar Tveggja mæðra barn: Þjóðskrá mátti kanna forsögu HJÁ ÞJÓÐSKRÁ Þurfti að kanna áreið- anleika upplýsinga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM PERSÓNUVERND Tryggingamið- stöðin harmar að hafa skoðað upp- lýsingar um óviðkomandi mann í vanskilaskrá Creditinfo. Kvörtun barst til Persónuvernd- ar frá sambýlismanni konu sem óskaði tilboða frá TM í tryggingar. Í svari TM til hennar kom fram að fyrirtækið hefði skoðað vanskila- skrá Creditinfo og að nafn sam- býlismannsins væri þar. Henni vari synjað um tryggingu. Mað- urinn var ekki eigandi fasteignar- innar sem tryggja átti og viðskipt- unum óviðkomandi. TM sagði að verklagsreglum hefði ekki verið fylgt. Það væru mistök. - gar Misnotuðu vanskilaskrá: TM fletti upp á sambýlismanni SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON BJARNI BENEDIKTSSON Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ AUSTURRÍKI Flokkar þjóðernis- sinna í Austurríki, á Ítalíu, í Sló- vakíu og Svíþjóð hafa gengið til liðs við bandalag þeirra Marine le Pen í Frakklandi og Geert Wilders í Belgíu. Þetta fullyrti Heinz-Christian Strache, leiðtogi austurríska Frels- isflokksins, við fréttamenn í gær. Hann segir að fulltrúar flokkanna hafi ákveðið þetta á fundi í Vínar- borg á föstudaginn. Stefnt er á samvinnu um fram- boð til Evrópuþingsins í vor, í von um að geta myndað öflugt flokkabanda- lag á þinginu. Markmiðið er hins vegar að draga úr áhrif- um Evrópusam- bandsins innan einstakra þjóð- ríkja. Í sameigin- legri yfirlýsingu segjast flokk- arnir ætla meðal annars að berjast fyrir þjóðmenningu Evr- ópuríkjanna og hefðbundnu fjöl- skylduformi en gegn innflytjend- um, íslams væðingu, kynjarugli, úrkynjun og nautnastefnu, eins og það er orðað. Auk Þjóðarfylkingar le Pens í Frakklandi, Norðurbandalagsins á Ítalíu og austurríska Frelsisflokks- ins eru það Svíþjóðardemókratarn- ir, Vlaams Belang í Belgíu og Þjóð- arflokkurinn í Slóvakíu sem eiga aðild að þessu flokkabandalagi. - gb Flokkar hægri þjóðernissinna í sex löndum hafa tekið höndum saman: Stefna á samvinnu á ESB-þingi HEINZ-CHRISTIAN STRACE Veðurspá Fimmtudagur 8-15 m/s. TÍÐAR BREYTINGAR Það verður heldur breytilegt hitastig á landinu næstu daga, einkum á suðvestanverðu landinu. Snýst á norðanátt síðdegis með kólnandi veðri á ný og léttir til um land allt. Hlýnandi veður á fimmtudag. 0° 10 m/s 2° 15 m/s 4° 15 m/s 5° 17 m/s Á morgun Hægt vaxandi SV-átt. Gildistími korta er um hádegi 6° 4° 3° 0° 2° Alicante Basel Berlín 19° 10° 6° Billund Frankfurt Friedrichshafen 7° 8° 10° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 7° 7° 23° London Mallorca New York 6° 19° 10° Orlando Ósló París 23° 3° 7° San Francisco Stokkhólmur 15° 7° 2° 10 m/s 3° 13 m/s 0° 8 m/s 1° 10 m/s 0° 8 m/s 0° 9 m/s -2° 10 m/s -2° -4° -3° -6° -7°

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.