Fréttablaðið - 19.11.2013, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 19.11.2013, Blaðsíða 16
19. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ARNHILDUR HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR Aratúni 32, Garðabæ, lést að heimili sínu þann 14. nóvember sl. Útför hennar fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 22. nóvember kl. 13.00. Gunnar Gunnlaugsson Gunnar Gunnarsson Harpa Karlsdóttir Irma Mjöll Gunnarsdóttir Guðjón G. Bragason Drífa Lind Gunnarsdóttir Davíð Ketilsson Þuríður Elín Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýnt hafa okkur samúð, hlýju og vináttu við andlát og útför okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, KATRÍNAR HJARTARDÓTTUR Laugarnesvegi 87. Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á deild H2 á Hrafnistu í Reykjavík fyrir hlýhug og góða umönnun. Magnús Þorvaldsson Hjörtur Þorgilsson Erla Leósdóttir Helga Katrín Hjartardóttir Hlynur Pálsson Magnús Rúnar Hjartarson Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, DÓRÓTEA GUÐMUNDSDÓTTIR hússtjórnarkennari, Réttarholti 5, Borgarnesi, áður til heimilis að Laugabóli í Ísafirði, sem lést laugardaginn 9. nóvember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 21. nóvember kl. 13. Jón Guðjónsson Guðjón Jónsson Guðlaug Vilbogadóttir Ásta Jónsdóttir Þorkell Jónsson Ingi Rúnar Jónsson Heiða Björk Jósefsdóttir Arngerður Jónsdóttir Þorkell Heiðarsson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ANNA LÍSA JÓHANNESDÓTTIR Hrafnistu í Reykjavík, áður til heimilis að Efstasundi 28, lést 10. nóvember á Landspítala í Fossvogi. Útförin fer fram frá Áskirkju 21. nóvember kl. 11.00. Þorkell P. Ólafsson Margrét Elíasdóttir Ólafur Helgi Ólafsson Jóhanna Arndal barnabörn. Elskulegur bróðir okkar, HERMANN STEFÁNSSON Teigagrund 5, Laugabakka, lést á Landspítalanum í Fossvogi 9. nóvember. Útförin fór fram frá Melstaðarkirkju þann 16. nóvember. Fyrir hönd systkina hins látna, Haukur Stefánsson Ástkær faðir okkar, afi og langafi, JÓN BRAGI EYSTEINSSON Hjúkrunarheimilinu Ísafold, Garðabæ, áður til heimilis að Rofabæ 31, Reykjavík, lést fimmtudaginn 14. nóvember. Útförin fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 21. nóvember kl. 13.00. Einar Eysteinn Jónsson Hólmfríður Björg Jónsdóttir Steinunn Jónsdóttir Trygve Jonas Eliassen Magnús T. Eliassen Sólrún Sumarliðadóttir Bjartmar Jón Ingjaldsson Kolbrún Sif Hjartardóttir Gauti T. Eliassen Alice Williams Bragi Sumarliði Magnússon Bergur Gauti Bjarmarsson VirðingReynsla & Þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann www.kvedja.is Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, dóttir, systir og mágkona, LINDA KONRÁÐSDÓTTIR Seljabraut 82, Reykjavík, lést á líknardeildinni í Kópavogi miðviku- daginn 13. nóvember. Útförin auglýst síðar. Magnús Valdimarsson Sara Barðdal Þórisdóttir Hákon Víðir Haraldsson Alexander Úlfur Hákonarson Konráð Adolphsson Edda Gunnarsdóttir Hilmar Konráðsson Sigrún Bjarnadóttir Bergur Konráðsson Inga Lóa Bjarnadóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ALDA J. SIGURJÓNSDÓTTIR Hraunbæ 103, Reykjavík, verður jarðsungin frá kirkju Óháða safnaðar- ins fimmtudaginn 21. nóvember kl. 15.00. Gísli Þór Tryggvason Inga Steina Guðmundsdóttir Ólafur Þór Tryggvason Svanhvít Hlöðversdóttir Sigurjón Þór Tryggvason Tryggvi Þór Tryggvason Guðfinna Guðmundsdóttir Rannveig Tryggvadóttir Heimir Þór Tryggvason Ólafía Gústavsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, KJARTAN JENSSON Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnu daginn 10. nóvember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 22. nóvember kl. 13.00. Ásta Kristín Þorleifsdóttir Um þessar mundir heldur söngdívan Helga Möller upp á að 40 ár eru síðan hún hóf söngferil sinn. Í tilefni af því ætlar hún að halda tónleika í Austurbæ 30. nóvember. Á fyrri hluta tónleikanna fer Helga yfir feril sinn en á seinni hlut- anum ætlar hún að syngja sín marg- frægu jólalög. Helga segist vera þakk- lát á þessum tímamótum og er spennt fyrir tónleikunum. „Að endast svona lengi í bransanum, eins og sagt er, er auðvitað frábært. Ég er fyrst og fremst þakklát fyrir það,“ segir söngkona góð- kunna. Ferill hennar hófst í Laugalækj- arskóla þar sem hún söng gjarnan ein með kassagítar fyrir skólasystkin sín. „Fyrstu tónleikarnir sem ég fékk borg- að fyrir að spila á voru á stað sem hét Klúbburinn í Borgartúni. Stuttu seinna kom ég fram í Tónabæ og gekk í hljóm- sveitina Melchior sem var fyrsta hljóm- sveitin sem ég var í,“ segir Helga. Orð- sporið var gríðarlega mikilvægt fyrir tónlistarfólk á þessum tíma að henn- ar sögn. „Þetta var ekki eins og í dag þegar maður getur notað netið til þess að auglýsa tónleika eða viðburði. Ef maður stóð sig vel þá spurðist það út og maður fékk að spila á fleiri stöðum.“ Í Verzlunarskóla Íslands kynnt- ist Helga þeim Jóhanni Helgasyni og Pálma Gunnarssyni, sem hún átti eftir að vinna mikið með. „Þeir stjórnuðu kór skólans og heyrðu mig syngja. Þeir réðu mig í hljómsveitina Celsius sem var ótrúlega merkileg hljómsveit.“ Að loknu námi í Versló stefndi Helga ekki á frekari frama í tónlist. „Ég ætlaði að gerast ráðsett húsmóðir og var sátt við það. En svo hafði Gunnar Þórðarson samband við mig og vildi fá mig í prufu fyrir hljómsveitina Þú og ég. Ég söng lagið Reykjavíkurborg og var ráðin á staðnum. Þetta voru mjög mikilvæg tímamót fyrir mig, því þarna ákvað ég að gera sönginn að hinu ævistarfi mínu, meðfram því að vera flugfreyja.“ Fyrir mörgum Íslendingum er Helga rödd jólanna. „Mér þykir ótrú- lega vænt um það. Fyrst fór þetta eitt- hvað í taugarnar á mér, því ég vildi geta heyrst allt árið. Einu sinni fór ég með ástarlag sem ég samdi á útvarps- stöð um vor. Lagið fékk ekki spilun því það þótti of jólalegt.“ En Helga tekur þessu jólahlutverki nú fagnandi og syngur þrjú ný jólalög á plötu Geir- mundar Valtýssonar sem kemur út á næstunni. „Við Geirmundur náum vel saman. Hann verður einmitt með mér á tónleikunum í Austurbæ,“ segir Helga og bætir við nöfnum fleiri gestasöngvara á tónleikunum: „Eirík- ur Hauksson verður þarna en Pálmi Gunnarsson kemst ekki, þannig að við Eiríkur fáum leynigest til þess að flytja Gleðibankann,“ segir Helga spennt fyrir tónleikunum. kjartanatli@frettabladid.is Fjörutíu ára söngafmæli Helgu Möller Helga Möller heldur tónleika í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá því að hún hóf söngferil sinn. Helga hefur starfað með mörgum frábærum tónlistarmönnum á ferlinum. Hún seg- ist þakklát fyrir að hafa enst svona lengi. HELGA MÖLLER Fjörutíu ár eru síðan Helga Möller hóf söngferil sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.