Fréttablaðið - 19.11.2013, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 19.11.2013, Blaðsíða 19
BÍLAR F yrir nokkrum dögum kynnti Nissan nýja kyn- slóð síns besta sölu- bíls, jepplingsins Qash- qai. Hann kemur nú af annarri kynslóð, en fyrsta kynslóð bílsins hefur fengið frábærar móttökur og hefur selst í meira en 2 millj- ónum eintaka á aðeins 6 árum sem gerir hann að einum sölu- hæsta bíl í heimi í sínum flokki. Staðarval Nissan til kynning- ar á bílnum í London kom ekki á óvart í ljósi þess að framleiðsla hans fyrir Evrópumarkað er í Sunderland í Bretlandi. Sú verk- smiðja er ein tæknilega full- komnasta bílaverksmiðja í Evr- ópu og þar eru framleiddir fleiri bílar en nokkurs staðar annars staðar í heiminum á hvern starfs- mann. Nissan á mikið undir þess- ari annarri kynslóð Qashqai því honum er ætlað að fylgja eftir þeirri góðu sölu sem fyrsta kyn- slóð hans naut. Því var miklu tjaldað til og á þriðja hundrað blaðamönnum var boðið að berja hann augum og var bílablaða- maður Fréttablaðsins og visir.is á meðal þeirra. Kynntur í kvikmyndaveri við Thames Kynning bílsins fór fram í kvik- myndaveri einu sem stendur við Thames-ána og dugði ekk- ert minna en tvö af fimmtán upp- tökuverum staðarins til. Um kynninguna sá forstjóri sam- steypunnar Renault-Nissan, Car- los Ghosn. Hann er einn af virt- ustu forstjórum bílaframleiðenda í heiminum og mikið goð í augum starfsmanna Renault-Nissan. Nýr Nissan Qashqai er hinn fal- legasti bíll og slær forveran- um við, sem er ekki svo auðvelt. Bíllinn er hlaðinn tækninýjung- um og Nissan ætlar greinilega með honum að taka stærri skref í þróun bílsins en samkeppnis- aðilarnir gera nú. Því er þarna kominn bíll sem er eins konar viðmið fyrir aðra framleiðend- ur að elta. Nýr Nissan Qash- qai kemur á markað í janúar á næsta ári svo spenntir kaupend- ur þurfa aðeins að bíða í 2 mán- uði eftir honum. Lengri og breiðari Nýr Qashqai ber með skýrum hætti ýmis útlitseinkenni fyrri bílsins, en skerpt hefur verið á flestum línum hans og þar fer enn fríðari bíll fyrir vikið. Bíll- inn hefur stækkað aðeins og er nú 5 cm lengri, 2 cm breiðari en 1,5 cm lægri. Höfuðrými hefur aukist og er hann allur rýmri að innan. Þrátt fyrir þessa stækk- un hefur bíllinn lést um 40 kíló. Fá má bílinn bæði með fjórhjóla- drifi og framhjóladrifi. Hann fær glænýjar 1,2 til 1,6 lítra bensínvélar og 1,5 og 1,6 lítra dísilvélar og fer eyðsla bíls- ins talsvert niður með öllum þessum vélum frá fyrri kyn- slóð. Með minni dísilvélinni er eyðsla bílsins ekki nema 3,8 lítr- ar á hverja hundrað kílómetra í blönduðum akstri og er leitun að lægri eyðslu meðal jepplinga. Allar nýju vélarnar eru með for- þjöppu, en sú aflmesta þeirra er stærri bensínvélin, 150 hestöfl. Troðinn af tækninýjungum Myndavélarbúnaður á öllum hliðum bílsins tengist öryggis- kerfi hans og grípur það inn í ef hætta steðjar að. Önnur aðstoð- arkerfi bílsins aðstoða við blinda punktinn, greina umferðarljós og umferðarmerki fram undan, afstýra aftanákeyrslum, greina hluti á hreyfingu fyrir fram- an bílinn og fylgjast með athygli bílstjórans. Bíllinn getur að auki lagt sjálfur í stæði. Nissan hefur því fetað mjög langt í öryggis- og aðstoðarkerfum bílsins og er hann því einn öruggasti bíll sem kaupa má. Bíllinn er gullfalleg- ur að innan og þeir bílar sem voru á kynningunni voru með leðursætum og var hann því eins og hver önnur lúxuskerra. Skott- rými bílsins hefur vaxið um 20 lítra og er nú 430 lítrar, sem duga ætti flestum. Fyrri kynslóð Qashqai var bæði í boði fyrir 5 og 7 farþega en þessi nýja kyn- slóð verður aðeins í boði 5 sæta og mun nýrri kynslóð X-Trail- bílsins látið eftir að bjóða sjötta og sjöunda sætið. Hennar er ekki langt að bíða. HEIMSFRUMSÝNING NISSAN QASHQAI Nissan Qashqai hefur selst í meira en 2 milljónum eintaka á þeim 6 árum sem liðin eru frá komu hans. ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2013

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.