Fréttablaðið - 19.11.2013, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 19.11.2013, Blaðsíða 10
19. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10 HAFÐU BÍLINN KLÁRAN FYRIR VETURINN! Gæði, reynsla og gott verð! REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9 KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17 REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7 AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13 www.bilanaust.is EX PO - w w w .e xp o. is VERSLANIR SJÖ MEÐ MIKIÐ VÖRUÚRVAL kynntu þér málið!w w w . s i d m e n n t . i s Siðmennt styður trúfrelsi og aðskilnað ríkis og kirkju Trúfrelsi Skeifunni 11 | Sími 515 1100 www.rekstrarland.is Kaffi- stofan Fjölbreytt úrval af vörum fyrir kaffistofuna, allt á einum stað. DÝRALÍF „Þetta eru falleg dýr sem setja mikinn svip á bæinn,“ segir Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri á Djúpavogi, þar sem fjörutíu til fimm- tíu hreindýr gerðu sig heimakomin á fótboltavelli bæjarins í gær. Gauti segir hreindýrin ávallt leita niður í byggð þegar snjóa tekur. „Það nánast liggur við að þau rölti hér um bæinn,“ segir sveitarstjórinn sem kveður dýrin þó ekki jafn velkomin alls staðar í bæjarlandinu. „Þau leita talsvert í skógræktirnar og það viljum við auðvitað ekki. En það þýðir ekkert að girða fyrir hrein- dýr því þau stökkva yfir hvað sem er.“ - gar Fallegir gestir á Djúpavogi sem þó eru ekki velkomnir í skógrækt bæjarins: Hreindýr á beit á fótboltavelli HREIN- DÝRIN Hér sést hluti hrein- dýrahjarð- arinnar í morgun- skímunni við fótbolta- völlinn á Djúpavogi í gær. MYND/ÓLAFUR BJÖRNSSON LÖGREGLUMÁL „Ásakanir um að lögreglan haldi eiturlyfjum að mönnum í skiptum fyrir upp- lýsingar eru ekki svaraverðar,“ segir Stefán Eiríksson, lögreglu- stjóri á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður eigenda VIP Club, kærði í dag lögreglu vegna aðgerða gegn staðnum. Vilhjálm- ur sagði í samtali við Vísi að starfsfólk staðarins fullyrti að lögreglumenn sem voru á staðn- um í tálbeituaðgerð hefðu borið fé á starfsmenn og boðið eiturlyf, nánar tiltekið kókaín, í staðinn fyrir vændi. „Engin lögbrot hafa átt sér stað af okkar hálfu,“ segir Stefán sem fagnar því að málið sé komið á borð ríkissaksóknara sem geti þá skoðað það. Vilhjálmur sagði að í aðgerðinni hefði komið í ljós að engin vændis- sala færi fram á VIP Club og lög- reglumönnunum hefði ekki tekist að kaupa vændi á staðnum. - fbj VIP CLUB Í AUSTURSTRÆTI Skemmti- staðnum VIP Club var lokað í síðustu viku vegna útrunnins bráðabirgðarekstr- arleyfis. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafnar ásökunum lögmanns VIP Club: Engin lögbrot af okkar hálfu FRÉTTASKÝRING Hvað líður eyðingu regnskóga á Amasonsvæðinu í Brasilíu? 2000 01 02 03 04 05 06 07 08 09 10 11 12 2013 18.2 18.2 21.7 25.4 27.8 19.0 14.3 11.7 12.9 7.5 7.0 6.4 4.6 BRAZIL’S DEFORESTATION Square km (000s) Aug 2012-Jul 2013: 5,843 sq km, compared to 4,571 sq km in previous 12 months % change from Aug 2011-Jul 2012 Square km STATES DEFORESTED Aug 2012-Jul 2013 Acre 199 35% Amazonas 562 7% Amapá 11 -59% Maranhão 382 42% Mato Grosso 1,149 52% Pará 2,379 37% Roraima 185 21% Rondônia 933 49% Tocantins 43 -17% 310 miles 500km B R A Z I L Amazon R ive r Brasilia , , , , , , , , , , , , , . . Skógareyðing á Amasonsvæðinu í Brasilíu hefur aukist um nærri þriðjung undanfarið ár. Þetta stað- festa nýjar gervitunglamyndir, en undanfarinn áratug hafði tekist að minnka eyðinguna jafnt og þétt. Umhverfisverndarsamtök segja umdeilda lagabreytingu á síðasta ári hafa valdið þessum umskipt- um. Verndarákvæðum í lögum hafi verið breytt, þannig að nú eigi bændur og skógarhöggsmenn auðveldara með að eyða skóg- unum. Umhverfissamtök gagnrýna einnig áherslu stjórnvalda á hag- vöxt, sem hafi orðið á kostnað skóganna: Stíflugerð, vegalagning og lagning nýrra járnbrautarleiða hafi ýtt undir skógareyðinguna. „Stjórnin getur ekki verið hissa á þessari auknu skógareyðingu, þegar það eru athafnir hennar sjálfrar sem ýta undir hana,“ hefur AP-fréttastofan eftir Paulo Adario hjá Greenpeace-samtök- unum. Gervitunglamyndirnar sýna að frá árinu 2004 hafi regnskógarnir í Brasilíu minnkað um 117 þúsund ferkílómetra en það er nokkru stærra svæði en allt Ísland. Notkun gervitunglamynda hefur komið að góðu gagni við að hægja á skógareyðingu. Yfirvöld í Brasilíu hafa auðveldlega getað fundið út á hvaða svæðum skógar- eyðing hefur verið stunduð, og þar með átt auðveldara með að finna sökudólgana. Þótt skógareyðingin á Amason- svæðinu hafi aukist um 28 prósent í ár, þá er hún enn minni en hún var árið þar áður, þegar hún náði nýju lágmarki. Regnskógarnir á Amasonsvæð- inu gegna lykilhlutverki í því að Regnskógar eyðast hraðar í Amason Gervitunglamyndir sýna að skógareyðing í Brasilíu hefur aukist á ný undan- farið ár, eftir að hafa minnkað ár frá ári. Undanfarinn áratug hafa regnskógarnir minnkað um 117 þúsund ferkílómetra, eða nokkru stærra svæði en Ísland. Skógareyðingin eykst um nærri þriðjung Í Brasilíu hefur eyðing Amasonregnskógarins aukist um 28 prósent þetta árið. Undanfarin ár hefur eyðingin minnkað jafnt og þétt, en nú snýst þró- unin við. Lagabreytingu í Brasilíu er kennt um. Fylki, þar sem skógareyðing er stunduð Ferkílómetrar Hlutf llsl g aukning ágúst 20 1 - júlí 2012 ras lía Brasilía Skógareyðing í Brasilíu Þúsundir ferkílómetra Á úst 2012 - júlí 2013: 5.843 km2, sa anborið við 4.571 k 2 síðustu tólf mánuði á undan. Heimildir: Geimrannsóknastofnun Brasilíu, INPE. Getty images Graphic news 5 km Amasonfljótið Ísland: 103 þús. km2. Skógareyðing í Brasilíu 2004-2013: 117 þús. km2 binda gróðurhúsalofttegundir, sem valda hlýnun jarðar. Eyðing þeirra hraðar því loftslagsbreyt- ingunum en stjórnvöld víða um heim hafa áratugum saman reynt að finna leiðir til að vinna gegn þeim. Í grein, sem birtist í nýjasta hefti tímaritsins Science, er síðan skýrt frá því að á jörðinni allri sýni gervitunglamyndirnar að frá árinu 2000 nemi skógareyðing samtals á hverri einustu mínútu álíka stóru svæði og 50 knatt- spyrnuvöllum. gudsteinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.