Fréttablaðið - 19.11.2013, Page 20
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
2 19. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR
2,0 L BENSÍNVÉL, 120 HESTÖFL
Fjórhjóladrif
Eyðsla 5,1 l/100 km
í bl. akstri
Mengun 119 g/km CO2
Hröðun 8,8 sek.
Hámarkshraði 198 km/klst.
Verð 3.490.000 kr.
Umboð Brimborg
MAZDA3
MAZDA3
Finnur Thorlacius reynsluekur
M
azda dúndrar
frá sér hverjum
snilldarbílnum
á fætur öðrum
og hafa viðtökur
Mazda6 og jepp-
lingsins CX-5
verið frábærar. Sá allra nýj-
asti er svo Mazda3, smár fólks-
bíll, sem er bara ein snilldin
enn. Stóran þátt í velgengni
bíla Mazda um þessar mundir á
hin svonefnda SkyActive-tækni
bílanna. Hún stuðlar að lítilli
eyðslu þeirra og eru vélar allra
þessara nýju bíla bæði mjög
skemmtilegar og sparneytnar
sökum óvenjulegs þjöppuhlut-
falls. Allir þessi bílar hafa einn-
ig lést verulega frá fyrri gerð-
um og eykur það bæði á akst-
ursgetu þeirra og stuðlar að
lítilli eldsneytiseyðslu. Allir
þessir bílar eiga það einnig
sameiginlegt að vera mjög fal-
lega hannaðir og keppast bíla-
blaðamenn við að mæra þá
fyrir fegurð og gæði. Undirrit-
aður er einn þeirra og hrein-
lega furðar sig á þeim jákvæðu
umskiptum sem orðið hafa á
Mazda-fyrirtækinu og afurð-
um þess. Mazda var fyrir kynn-
ingu á þessum þremur bílum
lítið spennandi bílaframleið-
andi, en hefur á einkar stuttum
tíma breyst í eitt mest spenn-
andi bílafyrirtæki heims. Það
er ekki að spyrja að japanskri
bílasmíði. Margir bílarýnend-
ur hafa sett Mazda3 skörinni
hærra en annan mærðan ástar-
pung þeirra, Ford Focus og er
þá mikið sagt.
Ferlega fallegur
Ólíkt mörgum öðrum nýjum
bílum hefur Mazda3 styst um
tæpa 5 sentimetra, en hann
hefur breikkað um 4 sentimetra
og lækkað um tæpa 2 senti-
ENN EITT GÆÐA-
ÚTSPIL MAZDA
Mazda hefur nú á skömmum tíma kynnt þrjá gullfallega og
vel heppnaða bíla sem alls staðar hafa fengið fína dóma.
Það vefst ekki fyrir 375 kaupendum McLaren að reiða fram 141 milljón
króna fyrir nýjasta bíl McLaren, P1. Framleiðandinn ætlar bara að
framleiða 375 eintök af bílnum og nú er orðið of seint að tryggja sér
eintak, þeir eru uppseldir. Kaupendurnir hafa þegar reitt fram fyrir-
framgreiðslu fyrir bíla sína svo McLaren ætti ekki að vera árvana við
að smíða þessi eintök. Langur biðlisti hefur reyndar myndast, ef ske
kynni að einhver kaupendanna hrykki úr skaftinu. McLaren er aðeins
búið að fullklára 12 eintök af bílnum og suma af þeim er þegar búið
að afhenda og eru allir kaupendur þeirra í Evrópu. McLaren hafði það
markmið að selja alla bílana fyrir árslok og það hefur því tekist aðeins
á undan áætlun. Þeir sem ekki náðu að tryggja sér eintak geta fullt
eins tryggt sér eintak af ofursportbíl með tvinntækni í formi Porsche
918 Spyder-bílsins sem líklega er enn betri akstursbíll og sneggri en
McLaren P1. Hann kostar líka talsvert minna, eða 104 milljónir króna.
Einn ofurtvinnbíllinn enn er á boðstólum, eða Ferrari LaFerrari, svo
enginn þarf að fara á límingunum þótt McLaren P1 sé uppseldur.
McLaren P1 uppseldur
Mazda3 er sérdeilis fríður bíll og enn einn í röð fallegra bíla sem Mazda sendir frá sér þessa dagana.
McLaren P1 er enginn smá kaggi enda kostar hann 141 milljón króna.
www.visir.is/bilar
BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius
finnurth@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
Auglýsingar
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbirgir@365.is
Sími 5125432
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
ÖRUGGT START
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir
bifreiða. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
18
58 Exide rafgeymarnir fást hjá: