Fréttablaðið - 19.11.2013, Síða 38
19. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 30
„Bókin mín Hlýjar hendur er
í fyrsta sæti á lista yfir tóm-
stundabækur hjá Tanum sem er
ein stærsta bókaverslanakeðjan í
Noregi. Bókin kom út 26. október
og er búin að vera í tvær vikur í
fyrsta sæti þannig að hún fór nán-
ast beint á toppinn,“ segir mark-
aðsstjórinn Ágústa Jónsdóttir.
Hlýjar hendur naut líka mikilla
vinsælda á Íslandi þegar hún kom
út árið 2009. Ágústa ákvað því að
fara með hana út fyrir landstein-
ana.
„Það er tilviljun að bókin var
gefin út í Noregi. Ég átti erindi
í Ósló og fór sjálf og hitti for-
lög. Ég gerði samning við forlag-
ið Vigmostad og Björke í vor og
staðfærði bókina fyrir norskan
markað. Ég bjó í Noregi í þrjú ár
fyrir nokkrum árum, tala norsku
og þykir mjög vænt um landið,“
segir Ágústa. Hún er í skýjunum
með viðtökurnar.
„Ég er glimrandi ánægð og
þetta er rosalega skemmtilegt.
Mér skilst að bókin sé búin að
seljast í hátt í tvö þúsund eintök-
um í Noregi og það lítur út fyrir
að fyrsta upplag, sem er þrjú þús-
und bækur, seljist upp.“ Ágústa
er einnig búin að gefa út bókina
Hlýir fætur hér á landi en óvíst
er á þessu stigi hvort hún verður
líka gefin út í Noregi. Hún stefnir
á að nema fleiri lönd með Hlýjar
hendur að vopni.
„Mig langar að koma henni út á
þýsku og jafnvel ensku. Ég er ekki
byrjuð að gera neitt í því en það er
markmiðið.“ liljakatrin@frettabladid.is
Íslensk prjónabók á toppnum
Ágústa Jónsdóttir nýtur velgengni í Noregi með bók sína Hlýjar hendur.
ALGJÖR TILVILJUN Ágústa heimsótti
sjálf forlög í Noregi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég er mest fyrir kaffi, te og vatn.
Það er erfitt að gera upp á milli.“
Viktor Orri Valgarðsson, stjórnmálafræðingur
og áhugamaður um ljót orð.
DRYKKURINN
„Þetta var mjög gaman og mikið ævin-
týri að taka þátt í þessu,“ segir Andrea
Ösp Karlsdóttir leikkona sem tók þátt í
brúðusýningunni Saga, sem lauk nýverið
með Noregstúr. Saga er brúðusýning
unnin af leikhópnum Wakka Wakka Pro-
ductions sem stofnaður var af Gwendo-
lyn Warnock og Gabrielle Brechner frá
Bandaríkjunum og Kirjan Waage frá
Noregi en leikhópurinn var stofnaður
árið 2001.
„Saga er nútíma víkingasaga og
fjallar um fjölskyldu sem lendir illa í
því í efnahagshruninu á Íslandi 2008.
Maður einn selur kvótann sinn og flytur
út á land með fjölskyldunni til að opna
gistihús og veitingastað, hann kaupir
sér nýjan jeppa og tekur nokkur lán til
að opna þetta frábæra gistiheimili. Í
hruninu missa þau allt út úr höndunum
og úr verður mikið ævintýri,“ útskýrir
Andrea.
Ásamt henni tekur annar Íslendingur
þátt í sýningunni, hljóð- og tónasmiður-
inn Þórður Gunnar Þorvaldsson, en hann
sér um alla hljóð- og tónlistarvinnu í
sýningunni.
„Ég fór í prufur í New York, svo fór ég
líka í prufu þegar þau komu til Íslands.
Prufan var í júní í fyrra og byrjaði ég
strax að vinna með þeim í heimildarvinnu
en við unnum sýninguna í New York og í
leikhúsi í Noregi,“ segir Andrea.
Sýningin, sem fer fram á ensku, er
mjög sjónræn og brúðunum er gefið
mikið líf sem áhorfendur tengjast. Um
er að ræða yfir þrjátíu brúður af öllum
stærðum, en minnsta brúðan er um tíu
sentímetrar á hæð og sú stærsta hátt í
þrír metrar á hæð.
„Við frumsýndum í Noregi í desember
í fyrra en þaðan fórum við til New York
og sýndum sex sinnum á viku í sex vikur
„off-Broadway“ og fengum frábæra
gagnrýni, meðal annars frá The New
York Times, The Village Voice og fleiri
virtum miðlum. Í lok ferlisins unnum við
síðan sérstök Drama Desk-verðlaun fyrir
sýninguna,“ bætir Andrea Ösp við.
SAGA verður sýnt á Íslandi í júní í
Þjóðleikhúsinu í tilefni af Listahátíð í
Reykjavík.
gunnarleo@frettabladid.is
Brúður túlka hrunið
Erlenda brúðusýningin Saga fj allar um Ísland og afl eiðingar efnahagshrunsins.
Sýningin hefur ferðast til Noregs og Bandaríkjanna og fengið frábæra gagnrýni í
virtum miðlum. Saga verður sýnd í Þjóðleikhúsinu á Íslandi næsta sumar.
Leikhópurinn Wakka Wakka Productions var stofnaður af Gwendo-
lyn Warnock og Gabrielle Brechner frá Bandaríkjunum og Kirjan
Waage frá Noregi.
Hópurinn hefur verið starfandi frá 2001 og á þeim tíma hefur
hann sett upp átta sýningar sem ferðast hafa víða um heiminn.
Hópurinn hefur hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga fyrir verk
sín, þar má meðal annars nefna The Obie Awards og The Drama
Desk Awards sem bæði eru mjög þekkt og virt í Bandaríkjunum.
Leikhópurinn hefur ferðast víða með sýningar sínar sem eru
allar sýndar „off Broadway“ í New York og í Noregi, en einnig hefur
hann ferðast mikið um öll Bandaríkin og til Kína, Kúbu, Bretlands,
Danmerkur og fjölda annarra landa.
Um Wakka Wakka
ÍSLENDINGARNIR Í HÓPNUM Andrea Ösp Karlsdóttir leikkona og Þórður Gunnar
Þorvaldsson, tóna- og hljóðsmiður, nýkomin úr ævintýraferð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BÚSÁHALDABYLTINGIN Mótmælin frægu koma fyrir í sýningunni.
Sýningin er byggð á sannsögulegum atburð-
um úr lífi margra og lásum við fjölda blaðagreina,
tókum viðtöl við Íslendinga, horfðum á allar heim-
ildarmyndir sem við komumst yfir auk þess sem
allir þurftu að lesa Egils sögu þegar við unnum að
uppbyggingu sýningarinnar.
Andrea Ösp Karlsdóttir
Rauðir dagar 18.-22. nóvember
Hvenær er rétti
tíminn til að huga að
fjármálum heimilisins?
Það eru Rauðir dagar í útibúinu þínu.
Komdu og fáðu svör við spurningum um sparnað
og ávöxtunarleiðirnar sem henta þínum aðstæðum.
Við bjóðum
góða þjónustu
Eftir áramót
Einhvern tímann seinna
Fyrsta sunnudag í aðventu
Núna
CC Flax
Frábært fyrir konur á öllum aldri
stuðlar að hormónaójafnvægi og þyngdartapi
Mulin lignans hörfræ - sérræktuð
Trönuberjafræ
Haf-kalkþörungar
Omega 3
Frábær árangur við tilfinningasveiflum, pirringi, hita- og svitakófi,
svefnvanda og húðþurrk. Til að grennast og halda kjörþyngd.
Vinnur fljótt á bjúg og vökvasöfnun, styrking gegn þvagfærasýkingu.*
Ríkt af Omega-3 - ALA og trefjum.
Rannsóknir sýna 8,5 kg minni fitumassa
Rannsóknir hafa sýnt að konur sem hafa mikið
lignans í blóðinu eru að meðaltali með 8,5 kg
minni fitumassa en þær konur sem skortir
eða hafa lítið lignans.**
Rannsóknir sýna að asíukonur hafa yfirleitt
mikið lignans í blóðinu, gott hormónatengt
heilbrigði og offita þekkist vart.
* Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082
** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University.
1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur
Fæst í apótekum, heilsubúðum og helstu stórmörkuðum. www.celsus.is