Fréttablaðið - 12.12.2013, Side 38

Fréttablaðið - 12.12.2013, Side 38
12. desember 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 38 Þegar spilaborgin hrundi árið 2008 og íslenskir bankakarlar reyndust ekki þau séní sem búið var að innprenta okkur var fátt um fína drætti í hinni sérís- lensku minnimáttarkennd. Til að hækka risið á lands- mönnum var fljótlega farið að benda á að íslenska tón- listarútrásin væri nú alls ekkert feik eins og banka- ruglið. Grunnstoðir poppsins Eftir að Mezzoforte og Sykurmol- arnir ruddu brautina hafa Björk, Sigur Rós, Of Monsters & Men og fjöldinn allur af öðru listafólki selt ófá gistirými úti um allt land. Túr- istarnir – hinar nýju síldartorfur – koma nefnilega ekki eingöngu hing- að út af náttúrunni og Bláa lóninu, heldur í stórum mæli vegna þess- ara sendiherra landsins. Það er staðreynd að í nánast öllum viðtöl- um sem þetta fólk fer í í útlöndum þarf það að svara spurningum um land og þjóð. Og það ásamt tónlist- inni sjálfri auglýsir landið og kveik- ir ímynd af landi og þjóð í hugum væntanlegra gistináttanotenda. Einhvers staðar þarf að byrja og popplistafólk lifir ekki í tómarúmi, frekar en aðrir. Athygli og svörun er hverjum listamanni nauðsynleg. Nú er mikið talað um að horfa þurfi á „stóru myndina“. Hún er þessi: Grunnstoðir poppsins (hér nota ég orðið „popp“ eins vítt og hugsast getur) hafa lengi verið þrjár á Íslandi – Músíktilraunir, Iceland Airwaves og Rás 2. Þegar fólk byrjar að tala um að Rás 2 megi nú alveg missa sín því einkareknar stöðvar geti sinnt því að spila „popp- garg“, er það ekki alveg að skilja hvernig einkarekn- ar útvarpsstöðvar funkera. Á þeim öllum er „playlisti“ sem stílar inn á markhópinn því talið er að mark- hópurinn geti ekki höndlað marg- ar tegundir í einu. Einkareknar stöðvar eru reknar með gróða að markmiði og í því ljósi eru áherslur þeirra skiljanlegar. Það er ekk- ert sem gefur til kynna að hegðun einkarekinna stöðva myndi breytast ef Rás 2 yrði lögð niður. Fjársvelti, skilningsleysi og tuð Á Rás 2 eru jákvæðar tölur í árs- skýrslu ekki helsta keppikeflið – eða ætti a.m.k. ekki að vera það – og því ægir þar öllu saman. Á eftir Geir- mundi kemur kannski útúrsýrt lag með Dj Flugvél og geimskipi, þaðan er skipt í Skálmöld og svo kannski gamalt lag með Elly Vilhjálms. Rás 2 er víðsýnasta útvarp lands- ins og hlustendurnir hafa tamið sér umburðarlyndi fyrir mismunandi stílum. Þeir skipta ekki um stöð þótt það komi eitthvað sem þeim finnst leiðinlegt því þeir vita af reynslu að næsta lag verður eitthvað allt annað. Auk fjölbreytninnar hefur Rás 2 sinnt frábæru starfi við að taka upp og varðveita ómetanlegar heimildir um jálka poppsins jafnt sem nýgræðinga, búið til fræðandi og metnaðarfulla þætti og almennt reynt að hlúa að senunni þrátt fyrir endalaust fjársvelti, eilíft skilnings- leysi og viðvarandi tuð. Ég hélt satt að segja að það þyrfti ekki að ræða þetta lengur. Ég hélt að hin fúla umræða um lág- og hámenningu frá því á síðustu öld væri fyrir bí, þetta andlausa stagl um hvað sé menning og hvað sé ekki menning. Ég hélt að árangur íslensks tónlistarfólks væri nóg til að þess að hver hugsandi maður skildi af hverju frjálst og víðsýnt útvarp sem sinnir fræðslu, upp- byggingu og varðveislu er nauð- synlegt. En svo er ekki og þess vegna skrifaði ég þessa grein. Þótt ég skrifi bara einn undir hana er ég nánast öruggur um að hver og einn einasta poppari landsins myndi skrifa undir hana líka ef til hans væri leitað. Niðurstöður voru nýlega kynntar úr Pisa-könnun- inni sem gerð er á þriggja ára fresti og varð útkoma íslenskra barna mennta- málaráðherra, Illuga Gunnarssyni, mikið áfall. Illugi vill í kjölfarið grand- skoða menntakerfið og er það vel, en fleira þarf að skoða. Könnunin sýnir að íslensk börn hafa frá árinu 2000 verið að fara niður á við í les- og stærðfræði- skilningi. Aðeins hægði á þessu árið 2006 til 2009 en eftir það má sjá áberandi hnignum og við mælingu 2012 eru Ísland og Svíþjóð ásamt Mexíkó og Chile lökust af þeim 32 OECD- löndum sem mæld voru. Þegar útkoman var skoðuð eftir lands- hlutum komu Suðurnesin lang- verst út en þar var útkoman áber- andi slökust. Hvað veldur því að Suðurnesin koma langverst út úr þess- ari mælingu þegar bornir eru saman landshlutar? Það á sér eflaust ýmsar skýringar en getur verið að langvarandi atvinnu- leysi foreldra og fátækt hafi þar einhver áhrif? Rannsóknir sýna að börn sem alast upp við fátækt eiga erfiðara uppdrátt- ar og kemur það niður á andlegri heilsu þeirra. Barnaverndartilkynn- ingum í Reykjanesbæ og Sandgerði hefur farið fjölgandi undanfarin ár, sem gefur sterkar vísbendingar um að ástandið sé farið að bitna á börnunum. Í fréttatíma Bylgjunnar þann 3. desember var rætt við bæjarstjóra Reykjanesbæjar sem gat ekki leynt undrun sinni og sagðist vera mjög hissa á þessari niðurstöðu. Tveim- ur dögum áður hafði þó á forsíðu Fréttablaðsins verið vísað í skýrslu Barnaverndarstofu þar sem fram kom að á fyrstu 9 mánuðum þessa árs hafi barnaverndartilkynningar í Reykjanesbæ verið 50% fleiri en árið 2012. Hefur þeim farið fjölgandi jafnt og þétt eftir hrun og eru tilkynn- ingar til Barnaverndar langflest- ar þaðan ef miðað er við fólks- fjölda, en í Reykjanesbæ búa 14.200 manns og er heildarfjöldi barnaverndartilkynninga 8% af heildarfjölda tilkynninga á lands- vísu. Þegar hlutfall barnaverndar- mála á hver þúsund börn er notað sem mælistika var landsmeðaltal- ið 54,6 börn en í Reykjanesbæ var hlutfallið 80 börn. Áhrif fátæktar á börn Við megum ekki halda áfram að stinga höfðinu í sandinn og horfa fram hjá þeim vanda sem fátækt hefur á börnin. Það búa mörg börn við það að þurfa oft að hrekjast frá einum stað til annars vegna hús- næðisleysis foreldra og búa jafnvel í húsnæði sem ekki getur talist til mannabústaða. Það eru einnig til börn sem búa við það þegar líða fer á mánuðinn að ekki er til matarbiti á heimilinu því peningarnir duga ekki til. Jafnhliða fjölgun barna- verndartilkynninga hefur fjölgun bráðamála og tilvísana á Barna- og unglingageðdeild aukist ár frá ári og eru þar langir biðlistar. Er líklegt að börn sem upp- lifa tíða flutninga, langvarandi atvinnuleysi foreldra og það von- leysi og depurð sem það óhjá- kvæmilega hefur í för með sér fái þá uppörvun, umönnun og hvatn- ingu sem þau þurfa til að standa sig vel í skóla? Eða getur verið að hluta af vanda barnanna megi rekja til þessara þátta? Að þessu sögðu tel ég að fleiri þættir en það sem gerist innan veggja skólans hafi áhrif á náms- árangur barna. Þess vegna þarf samfélagið allt að hlúa betur að börnunum, sérstaklega þeim sem minna mega sín og eiga um sárt að binda. Hefur kreppan áhrif á námsárangur barna? Þegar Alþingi tekur fjárlagafrumvarpið til umræðu ár hvert verður mönnum tíðrætt um for- gangsröðun. Eðlilega. Ef niðurskurður er yfir- vofandi fyrir Háskóla- og rannsóknastarfsemi – sem hann oft er – þá heyrast gjarnan raddir um mikilvægi háskóla og rannsókna fyrir atvinnu- lífið. Þessi rök heyrðust reynd- ar ekki síður þegar meira var um peninga í samfélaginu. Þá gjarnan í þeim tilgangi að styðja við uppbyggingu nýrra eininga sem skyldu jafnan reknar í sem nánustu samstarfi við atvinnulíf- ið. Í þessu samhengi hafði orðið atvinnulíf oftar en ekki afskap- lega þrönga merkingu. Það virð- ist vera landlægur skilningur á orðinu að það nái einungis yfir framleiðslugreinar, eða jafn- vel ákveðinn hluta framleiðslu- greina, þ.e. tækni og matvæla- framleiðslu. Auðskilið Þegar beðið er um rökstuðn- ing á þjónustuhlutverki Háskóla og rannsókna fyrir atvinnu- lífið erum við fljót að grípa til þekktra dæma um íslenskar hágæðarannsóknir á sviði lækn- isfræði, iðntækni og líftækni. Það er eitthvað svo auðvelt að nefna hvernig efnafræðilegar rannsóknir á íslenskum jurtum hafa orðið til framleiðslu líf- virkra efna, hvernig háskóla- rannsóknir hafa kollvarpað tækni í sjávarútvegi og hvatað stofnun aðþjóðlegra tæknifyrir- tækja. Þetta er auðskilið. Það krefst kannski dýpri – og lengri – umræðu að skýra, t.d. hvernig grunnrannsóknir á forn- málum urðu undirstaða þeirrar samfélagsgerðar sem við þekkj- um. Það er erfitt að ímynda sér samfélag þar sem ekki er unnið út frá siðferðilegum grundvall- arreglum eða er án grunnþekk- ingar á sögu og tungumáli. Það er erfitt að ímynda sér sjávarút- veg og landbúnað án grundvall- arþekkingar á náttúru- og erfða- fræði. Það er erfitt að ímynda sér samfélag – og fjölda atvinnu- greina – án skáldsagna, tónlistar og myndlistar. Fléttast inn í allt lífið Grundvallarþekking nútíma- mannsins fléttast inn í allt okkar líf og er orðin svo sjálfsögð að við tökum sjaldan eftir henni. En það er nauðsynlegt að muna eftir því að forsendur okkar daglega lífs hafa orðið til vegna hugvits, ástríðu, dugnaðar og sköpunar- gáfu einstaklinga fyrri tíma. Þessir einstaklingar fengu tæki- færi til að stunda sína sköpun og rannsóknir og við búum að því í dag. Ég þekkti einu sinni stelpu sem „eyddi“ mestum hluta sinn- ar skólagöngu í að lesa skáldsög- ur, teikna, skrifa ljóð og láta sig dreyma um að ferðast um frum- skóga Afríku. Seinna „eyddi“ hún fjórum árum ævi sinnar í að rannsaka hornsíli, eina óhag- nýtta fisk landsins. Í dag stundar hún rannsókn- ir og stendur að stofnun sprota- fyrirtækja sem tengjast helstu atvinnuvegum Íslands. Það er nefnilega ekki alltaf augljóst hvaða bakgrunnur, menntun og rannsóknir verða til góðs. Þessu er vel lýst í hugvekjandi ræðu barnabókahöfundarins Neil Geiman frá 14. október síðast- liðnum. Hann lýsir heimsókn sinni á ævintýra- og barna- bókaráðstefnu í Kína. Líklega þá fyrstu sinnar tegundar þar í landi en kínversk stjórnvöld standa nú fyrir átaki um að auka lestur barna á teiknimyndasög- um og vísindaskáldsögum. Undraverður árangur Af hverju? Jú, Kínverjar hafa náð undraverðum árangri í tæknilegri framleiðslu á síðustu árum en það vantar nýsköpun. Það var því gerð könnun meðal lykilstarfsmanna nokkurra bandarískra tæknifyrirtækja. Niðurstaðan var skýr, það sem þetta fólk átti sameiginlegt var að hafa „eytt“ sinni barnæsku í að lesa teiknimyndasögur, skáld- sögur og láta sig dreyma. Það samfélag sem styður við ímynd- unarafl, frjóa hugsun og frjálsar „rannsóknir“ ungs fólks hlýtur að vera það samfélag sem hvetur til áframhaldandi nýsköpunar, þróunar og vaxtar. Ekki fórna því. Niðursetningur atvinnulífsins VÍSINDI ➜ Grundvallarþekk- ing nútímamannsins fl éttast inn í allt okkar líf og er orðin svo sjálfsögð að við tökum sjaldan eftir henni. En það er nauðsynlegt að muna eftir því að for- sendur okkar daglega lífs hafa orðið til vegna hugvits, ástríðu, dugnaðar og sköpunargáfu einstaklinga fyrri tíma. Þessir einstaklingar fengu tækifæri til að stunda sína sköpun. SAMFÉLAG Jónína Gunnarsdóttir félagsráðgjafi sem hefur starfað að barnaverndar- málum á Íslandi og í Noregi ➜ Við megum ekki halda áfram að stinga höfðinu í sandinn og horfa fram hjá þeim vanda sem fátækt hefur á börnin. Það búa mörg börn við það að þurfa oft að hrekjast frá einum stað til annars vegna hús- næðisleysis foreldra og búa jafnvel í húsnæði sem ekki getur talist til mannabústaða. Það eru einnig til börn sem búa við það þegar líða fer á mánuðinn að ekki er til matarbiti á heimilinu því peningarnir duga ekki til. ➜ Túristarnir – hinar nýju síldartorfur – koma nefni- lega ekki eingöngu hingað út af náttúrunni og Bláa lóninu … Rás 2 selur gistirými Það má kannski segja að með skuldaleiðréttingu ríkis stjórnarinnar sé reynt að gera hið ómögulega – að skilgreina réttlæti. Það getur verið vandasamt, því réttlæti eins er óréttlæti annars. Það vantar skil- greiningu á hugtakinu sem allir geta sætt sig við. Þeim, sem fær hámarks leiðrétt- ingu samkvæmt hugmynd- um stjórnvalda, finnst rétt- lætinu fullnægt, sá sem fær minna er kannski á öndverðri skoðun. Það verður aldrei hægt að gera öllum til hæfis. Það er hins vegar sjálfsagt að stefna að eins miklu réttlæti og hægt er. Til þess að ná því verður að setja viðmið sem flestir geta sæst á. Flest heimili landsins, eða um 100 þúsund talsins, munu fá leið- réttingu á þeirri ógnarhækkun sem varð á lánum þeirra í kringum 2008. Það verða þó alltaf hópar sem verða útundan eða fá minni leiðréttingu en fjöldinn. Það hefur verið minnst á eldri borgara sem eru með há lán og geta ekki nýtt sér skattaafslátt við- bótarlífeyrissparnaðar. Það hefur verið minnst á öryrkja og aðra hópa sem eru svo illa staddir að þeir hafa yfirleitt ekki efni á að leggja neitt til hliðar í sparnað. Sumir hafa jafn- vel minnst á námsmenn og bent á að námlánin hafi líka hækkað upp úr öllu valdi í hruninu. Verðtryggingin næst Þetta er allt rétt. Viðfangs- efni stjórnvalda var hins vegar stórt og kosningalof- orð Framsóknarflokksins var skýrt. Forsendubrestur heimilanna skyldi leiðrétt- ur. Það þýðir með öðrum orðum að verðtryggð fasteignaveð- lán skulu leiðrétt. Leiðréttingin nær því ekki til allra lána, hverju nafni sem þau kallast, heldur eru þau skil- greind fyrirfram. Hér komum við aftur að rétt- lætishugtakinu. Er það réttlæti að skuldaleiðréttingunni skuli vera skipt ójafnt milli landsmanna? Náði forsendubresturinn ekki til allra í einni eða annarri mynd? Svarið er eflaust já, en það er einfaldlega ekki hægt að gera allt fyrir alla. Staða okkar er þessi fimm árum eftir fjármálahrun: 14 þúsund fjöl- skyldur á aldrinum 30-39 ára eru í vanskilum með húsnæðislán eða telja greiðslubyrði vera þunga. Í næsta aldurshópi fyrir ofan 40-49 ára eru 11 þúsund fjölskyldur í sömu sporum. Í heild eru um 45 þúsund fjölskyldur sem eiga í erfiðleikum með að borga af húsnæðislánum sínum um hver mánaðamót. Staðan hefur lítið batnað frá hruni og þetta hefur dregið úr einkaneyslu og hag- vexti. Við þessu verður að bregð- ast áður en illa fer. Til þess verður varið allt að 150 milljörðum króna á næstu árum. Skjaldborgin er loks að líta dagsins ljós eftir mögur ár vinstri stjórnarinnar. Það tók núver- andi ríkisstjórn aðeins örfáa mán- uði að hrinda því í framkvæmd sem fyrri stjórn treysti sér ekki til að gera. Þá má ekki gleyma því að Alþingi á eftir að fjalla um skuldaleiðrétt- inguna og frumvörp henni tengdri og það er allt eins líklegt að þar komi fram breytingatillögur. Málið er því ekki búið og verkefni stjórn- valda í þágu heimila landsins er langt frá því að vera búið. Næst á dagskrá er verðtryggingin. Leitin að réttlætinu MENNING Dr Gunni tónlistarmaður FJÁRMÁL Karl Garðarsson þingmaður Framsóknarfl okks ➜ Skjaldborgin er loks að líta dagsins ljós eftir mögur ár vinstri stjórnarinnar. Það tók núverandi ríkisstjórn að- eins örfáa mánuði að hrinda því í framkvæmd sem fyrri stjórn treysti sér ekki til… Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir vísindamaður við Háskóla Íslands
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.