Fréttablaðið - 12.12.2013, Page 78

Fréttablaðið - 12.12.2013, Page 78
12. desember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 62 Tónleikar 20.00 Jólatónleikar Samkórs Reykja- víkur í Fella- og Hólakirkju fara fram. Stjórnandi er Guðrún Árný Guðmunds- dóttir. Aðgangseyrir 2.000.-, frítt fyrir grunnskólabörn í fylgd með fullorðnum. 20.30 Fjórðu tónleikar í tónleikaröðinni Sérfræðingar að sunnan verða haldnir á sviði menningarhússins Hofs á Akur- eyri í kvöld. Hljómsveitin Prins Póló leikur ásamt norðlensku hljómsveitinni Heflunum. Miðaverð er 2.000 kr. Náms- menn og eldri borgarar fá af því 25% afslátt. 21.00 Jana María og hljómsveit skemmta á Café Rosenberg 22.00 Baraflokkurinn kemur saman eftir langt hlé, og heldur tónleika á Ob- La-Dí-Ob-La-Da Frakkastíg 8. 22.00 Pétur Grétarsson trymbill, Frið- rik Karlsson gítaristi ásamt Róberti Þórhalls munu spila af fingrum fram á Vínbarnum á Kirkjutorgi í kvöld. Ókeypis aðgangur. Sýningar 17.00 Í dag hefst Edvard Munch – Hátíðardagskrá í Listasafni Íslands í tilefni þess að þá eru liðin 150 ár frá fæðingu þekktasta myndlistarmanns Norðurlandanna, listmálarans Edvards Munch. 17.00 Opnuð verður sýning á verkum Ingu Elínar myndlistarmanns og hönn- uðar í Artóteki. Sýningin er á Reykja- víkurtorgi á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Hátíðir 17.00 Í dag er efnt til jóladagskrár fyrir börn á öllum aldri í Listasafni Árnes- inga, í tengslum við litla jólasýningu sem unnin er út frá kvæðakverinu Jólin koma og búið er að setja upp í safninu. Stekkjastaur verður nýkominn til byggða og líklegt að hann komi við. Söngskemmtun 11.00 Frá og með fimmtudeginum 12. desember koma jólasveinarnir við í Þjóðminjasafninu. Þeir bræður munu syngja og spjalla við börnin daglega kl. 11. Kvikmyndir 19.30 Kvikmyndin The Secret Life of Walter Mitty verður sýnd á sérstakri hátíðarsýningu þann 12. desember kl. 19.30 í Smárabíói Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Leirlistakonan Þóra Breiðfjörð kynnir þessa dagana nýja línu sem sækir innblástur til íslenskrar náttúru og náttúruvætta. Meðal vara í línunni eru bollar, kertastjakar og skoppara- kringlur sem öll vísa í umhverfi okkar. „Þetta byrjaði með því að Ragnhild- ur Jónsdóttir sem rekur Álfagarðinn í Hafnarfirði hafði samband og bað um bolla fyrir kaffihúsið sitt,“ segir Þóra. Það var fyrir um tveimur árum. Síðan hafa bæst við línuna skopparakringlur í líki lítilla dansandi álfa og kertastjak- ar sem eru að hluta unnir úr endur- unnu hráefni, svo eitthvað sé nefnt. Auk þess eru bollarnir seldir með heimablönduðu tei úr Álfagarðinum. Þóra segir hugmyndina á bak við þessa nýju gripi tengjast umræðu um umhverfisvernd og náttúruvættir, sem sprottið hafi aftur upp nýlega í tengslum við framkvæmdir í Gálga- hrauni. „Þetta er auðvitað ekkert ný umræða,“ segir Þóra. „Við kunnum öll sögur af þessum vættum eða þekkjum einhvern sem kann þær.“ Að sögn Þóru er stutt að sækja innblásturinn enda liggur vinnustofa hennar beint við Hellisgerði í Hafnarfirði. Hægt er að virða nýju línuna fyrir sér næstu helgi, en þá er Þóra með opið hús á verkstæði sínu á Skúla- skeiði 42. Einnig verður jurtaapótekið úr Waldorfskólanum í Lækjarbotnum með smyrsl, te og fleira til sölu. Tekið verður á móti gestum frá klukkan tólf til fimm báða dagana. - bjarkia@frettabladid.is Leirlist innblásin af vættum og náttúru Ný lína listakonunnar Þóru Breiðfj örð er byggð á náttúru og huldufólki. Hún segir hugmyndina á bak við nýju gripina tengjast umræðu um umhverfi svernd. NÁTTÚRUVÆNT Þóra ásamt munum úr nýju línunni. Við kunnum öll sögur af þessum vættum eða þekkjum einhvern sem kann þær. Þóra Breiðfjörð - Hrein snilld - Í ELDAMENNSKUNA Gerðu máltíðina enn betri með teningunum frá Bong því þeir laða fram það besta úr góðu hráefni. EKKERT MSG ENGIN TRANSFITA ENGIN LITAREFNI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.