Fréttablaðið - 12.12.2013, Síða 94
12. desember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 78
Birgir Hrafnkelsson,
dósent í tölfræði við Háskóla Íslands
Allar raðir jafn
líklegar
„Það eru jafnmiklar líkur á því að allar
tölur komi upp,“ útskýrir Birgir Hrafn-
kelsson, dósent í tölfræði við Háskóla
Íslands. Hann segir það geta verið slæmt
að velja fæðingardaga ástvina, þeir geti
aldrei orðið hærri en þrjátíu og einn,
en Lottótölurnar eru frá einum og upp í
fjörutíu. „Ef ein tala yfir þrjátíu og einum
kemur upp tapar maður. Per-
sónulega mæli ég því ekki
með því að fólk fari þessa
leið,“ útskýrir Birgir. Hann
segir þó allt geta gerst. „Ég
vil ekki stoppa fólk í að velja
fæðingardaga ástvina, því
allar raðir eru jafn lík-
legar.“
Hermundur Rósinkranz, miðill og talnaspekingur
Spurning um heppni
„Þetta er bara happa og glappa. Lottó er spurning
um heppni, ef ég vissi hverjar vinningstölurnar
yrðu myndi ég ekki segja neinum það,“ segir
Hermundur Rósinkranz, miðill og talnaspek-
ingur, glaðbeittur. Hann gerist þó öllu alvar-
legri þegar hann fer að ræða um lífsgildin.
„Þegar það kemur að lottóinu þarf maður
bara að spyrja sig hver gildi manns séu.
Eru það peningar eða eru það ástvinir
manns? Þess vegna ráðlegg ég fólki að
telja upp þá sem það elskar mest og
nota fæðingardagana þeirra, þá nýtur
fólk þess betur að spila í lottóinu.“
Sigríður Klingenberg, spákona
Stilla á lottórásina í lífi nu
„Ef ég gæti séð lottótölur fram í tímann væri
ég löngu búin að nýta mér það,“ segir
Sigríður Klingenberg spákona og skelli-
hlær. Hún segir að til þess að vinna í
lottóinu þurfi maður að trúa því. „Allt
gefur frá sér tíðni. Þeir sem trúa því
virkilega að þeir geti unnið fá
vinninginn. Þetta snýst um að
stilla sig inn á lottórásina í líf-
inu,“ útskýrir Sigríður. Hún
hefur gott ráð sem gæti virkað
vel. „Ég mæli með því að
nota fæðingardaga látinna
ástvina. Þeir geta verið
valdamiklir og haft áhrif á
lottódráttinn. Ég legg til að fólk
skrifi fæðingardagana þeirra
niður og hengi upp á ísskápinn
til þess að senda út orku og lesa
þetta nokkrum sinnum yfir.“
➜ Potturinn er áttfaldur og hefur aldrei verið stærri.
Að sjálfsögðu vilja allir vita hvaða tölur eru þær réttu.
Spennan fyrir næsta drætti í Lottóinu magnast. Pott-urinn er áttfaldur og hefur aldrei verið stærri. Að sjálfsögðu vilja allir vita hvaða tölur eru þær réttu.
Tveir af þremur spekingum sem
Fréttablaðið ræddi við fyrir drátt-
inn mæla eindregið með því að nota
fæðingardaga ástvina sem lottótöl-
ur. Einn viðmælandinn, sem er dós-
ent í tölfræði við Háskóla Íslands,
mælir ekki með þeirri aðferð. Eitt
eru þó allir viðmælendur sammála
um: Þeir vita ekki hvaða tölur munu
koma upp á laugardaginn.
kjartanatli@frettabladid.is
Leyndarmálið við lottóvinninginn
Fréttablaðið ræddi við Sigríði Klingenberg spákonu, Hermund Rósinkranz, talnaspeking og miðil, og Birgi Hrafnkelsson,
dósent í tölfræði við Háskóla Íslands, um leyndarmálið á bakvið valið á réttu tölunum í lottódrættinum sem verður á laugardaginn.
FOR THE WAY IT´S MADE
Hágæða pokalausar ryksugur,
mjög öflugar handryksugur
og hljóðlátar glæsilegar
viftur. Fyrir þá sem vilja
aðeins það besta.
Sem verkfræðingar verðum v ði að sjá handan við núverandi tækni og spyrja
hvort til séu betri lausnir. Það er í raun drifkrafturinn hjá Dyson – ný hugsun
sem leysir hversdagsleg vandamál. „Ég fann upp og þróaði Dyson Cyclone
tæknina á þessum forsendum. Ég vissi að það hlyti að vera betri leið en gamla
stíflaða tæknin. Einhverjum 5.127 frumgerðum síðar, hafði ég lausnina.“
AMES DYSON J
ppfinningarmaðuru
yclone vacuum c
ækninnart
Algengustu
tölur
Birgir Hrafnkelsson, dósent í tölfræði við HÍ, var spurður að því hverjar
líkurnar væru á því að velja fimm réttar aðaltölur í Lottó. Hann tók dæmi um
einstaklinga sem kaupa enga röð, eina röð sem og 10, 100, 1.000, 10.000 og
658.008 raðir og kostnaðinn sem fylgir.
Fjöldi raða Líkur á að velja fimm réttar aðaltölur Kostnaður
0 engar 0,0% 0 kr.
1 1 deilt með 658.008 0,000152% 130 kr.
10 1 deilt með 65.800 0,00152% 1.300 kr.
100 1 deilt með 6.580 0,0152% 13.000 kr.
1000 1 deilt með 658 0,152% 130.000 kr.
10000 1 deilt með 65,8 1,52% 1.300.000 kr.
658008 1 deilt með 1 100% 85.541.040 kr.
Eins og við er að búast aukast vinningslíkurnar ef fleiri raðir eru keyptar. Hér er
bent til gamans á hið augljósa sem er að ef maður spilar ekki með þá á maður
ekki möguleika. Ekki er mælt með því að kaupa allar 658.008 raðirnar þrátt fyrir
100% vinningslíkur, sér í lagi þegar vinningsupphæðin hækkar því þá eru fleiri
einstaklingar sem kaupa raðir og auknar líkur á að vinningshafi þurfi að deila
vinningnum með öðrum.
HVERJAR ERU LÍKURNAR?
Fjöldi skipta
frá upphafi
ALGENGUSTU TÖLURNAR FRÁ UPPHAFI LOTTÓS
Á ÍSLANDI
10 2
Fjöldi skipta
síðustu fjórar
vikur
210 202
0
15 21 24
206 205 202
1 0 1 3