Fréttablaðið - 13.12.2013, Síða 1

Fréttablaðið - 13.12.2013, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Föstudagur Sími: 512 5000 13. desember 2013 293. tölublað 13. árgangur SKOÐUN Breytum jólunum ekki í norræna nornaveiðihátíð skrifar Pavel Bartoszek. 25 SPORT Liðsfélagi Hannesar Þorsteins Sigurðssonar var handtekinn fyrir veðmálabrask. 58 FRÉTTIR Iðrun betri en dómar Aðstandendur fórnarlamba gáleysis- aksturs segja iðrun ökumannsins betri en þungan dóm. 6 Vilja hlutabréf Almennir fjárfestar á hlutabréfamarkaði eru að verða áhugasamari eftir mika ládeyðu í kjölfar bankahrunsins 2008. 6 Dæla í Dauðahafið Ísrael, Jórdanía og Palestína ætla að leggja vatns- leiðslu til að dæla í Dauðahafið. 10 Fá niðurfærslu í bakið Skulda- leiðréttingar ríkisstjórnarinnar auka á vanda Íbúðalánasjóðs að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 16 OPIÐ TIL 22 Í KVÖLD 11 DAGARTIL JÓLA KRINGLUNNI & SMÁRALIND JÓLAGESTIR BJÖRGVINSJólatónleikar Björgvins Halldórssonar fara fram í Laugardalshöll á morgun kl. 16 og kl. 21. Margir þekktir tónlistarmenn koma fram með Björgvin á tónleikunum sem verða einstaklega til- komumiklir. Þetta er í sjöunda skipti sem Björgvin er með sér- staka jólatónleika. Facebook JólaleikurParísartízkunnarÁ þorláksmessu munum við draga úteinn heppinn þáttakanda sem vinnur okkarvinsælu kuldaskó með mannbroddum.Lífi ð FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2013 2 SÉRBLÖÐ Lífið | Fólk MENNING Eva Einarsdóttir borgar- fulltrúi gerir skemmtilegt jóladagatal fyrir börnin sín. 62 FÓLK Afmæli Ása í Bæ verður fagnað með tónleikum í Hörpu í febrúar, en þá hefði hann orðið 100 ára hefði hann lifað. Kristinn R. Ólafsson, hálf- bróðir Ása, verður kynnir á en 38 árum munar á þeim. Móðir Krist- ins var 28 árum yngri en Ólafur faðir þeirra og sex árum yngri en Ási. „Þegar ég fæddist stóð karl faðir minn á sextugu en mamma var 32 ára.“ Bræðurnir ólust upp í Eyjum og Ási í Bæ hélt uppi líflegu tón- listarlífi í bænum. - ue / sjá síðu 54 Fagna afmæli Ása í Bæ: Bróðir kynnir á aldarafmælinu KRISTINN R. ÓLAFSSON Bolungarvík 3° SA 10 Akureyri 2° S 5 Egilsstaðir 4° SA 6 Kirkjubæjarkl. 4° NA 4 Reykjavík 4° SA 6 Dregur úr vindi Allhvasst N-til fyrrihluta dags en dregur úr vindi með deginum. Úrkoma víða, einkum SA-til í fyrstu en bætir svo í V-til síðdegis. 4 DÓMSMÁL Fjórmenningarnir sem voru ákærðir í Al-Thani málinu voru fundnir sekir í öllum ákæru- atriðum í Héraðsdómi Reykjavík- ur í gær. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi og Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, í fimm ára fangelsi. Þetta eru þyngstu dómar sem kveðnir hafa verið upp í efnahags- brotamálum hér á landi. Jafnframt voru Ólafur Ólafsson, fyrrverandi hluthafi í Kaupþingi, og Magnús Guðmundsson, fyrrver- andi forstjóri Kaupþings í Lúxem- borg, dæmdir sekir. Dómarnir eru óskilorðsbundnir en enginn hinna ákærðu lét sjá sig í héraðsdómi. „Þetta voru alvarleg brot sem þarna voru framin og verðskulda þessar alvarlegu refsingar sem þarna voru ákveðnar,“ sagði Björn Þorvaldsson, sem sótti málið fyrir hönd sérstaks saksóknara. Í dóminum kemur fram að hinir ákærðu hafi verið meðal helstu áhrifamanna í stærsta viðskiptabanka á Íslandi . „Hin refsiverðu viðskipti ákærðu vörðuðu verulegum fjárhæðum. Eiga brotin sér ekki hliðstæðu í íslenskri réttarframkvæmd. Þá er við ákvörðun refsingar litið til þess að verulegt fjárhagslegt tjón hlaust af brotum ákærðu. Eiga ákærðu sér engar málsbætur,“ segir í dóminum. Þórólfur Jónsson, verjandi Ólafs, telur sig hafa sýnt fram á sakleysi skjólstæðings síns og dómurinn hafi komið þeim í opna skjöldu. „Við niðurstöðu sem þessa er ekki hægt að una og hefur skjól- stæðingur minn því ákveðið að áfrýja málinu til Hæstaréttar,“ segir Þórólfur í yfirlýsingu. Við- brögð annarra sakborninga liggja ekki fyrir. Á næsta ári verður tekið fyrir annað dómsmál sem snýst um markaðsmisnotkun Kaupþings banka. Hreiðar Már, Sigurður og Magnús eru á meðal ákærðra í því máli. - fb, þþ / sjá síðu 4 Sekir um öll ákæruatriðin Hinir fjórir ákærðu í Al-Thani-málinu voru dæmdir í þriggja til fimm og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Tveir dómanna eru þeir þyngstu sem hafa verið kveðnir upp í efnahagsbrotamálum hér á landi. ■ Hreiðar Már Sigurðsson var dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir umboðssvik og markaðsmisnotkun ■ Sigurður Einarsson var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir umboðssvik og markaðsmisnotkun ■ Ólafur Ólafsson var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir hlutdeild í umboðssvikum Hreiðars Más og Sigurðar og fyrir hlutdeild í markaðsmis- notkun þeirra beggja ■ Magnús Guðmundsson var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir hlutdeild í umboðssvikum Hreiðars Más og fyrir hlutdeild í markaðsmisnotkun Hreiðars Más og Sigurðar ➜ Brotin eiga sér ekki hliðstæðu HREIÐAR MÁR SIGURÐSSON SIGURÐUR EINARSSON ÓLAFUR ÓLAFSSON MAGNÚS GUÐMUNDSSON HJÓLASTÍGAR MALBIKAÐIR Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á Hverfisgötu í Reykjavík að undanförnu. Í gær batnaði aðgengið þegar hjólastígar voru malbikaðir fyrir framan Bíó Paradís og verslunina Sjáðu. „Við erum rosalega ánægð með þetta og erum bjartsýn á framtíðina,“ segir Gylfi Björnsson, verslunarstjóri Sjáðu, spurður út í hið bætta aðgengi. „Þetta er búið að vera ógeðslega erfitt en vonandi fer þetta aðeins að liðkast til.“ Sjá síðu 6. FRÉTTABLAÐIÐ/PJÉTUR LÍFIÐ „Mig langaði að búa til barn en var mjög hikandi og áhyggjufull yfir að kippa mér svona af markaðnum,“ segir leikkonan Anita Briem sem á von á sínu fyrsta barni í lok desember. Anita hefur notið velgengni í kvikmynda- borginni Hollywood. Hún segist hafa unnið hörðum höndum að ferli sínum til að geta klifið hærra og hærra og til að hafa meira frelsi til að velja leikstjóra til að vinna með og verkefni sem hafa merkingu fyrir hana. „Þó ég hafi áorkað miklu þá er þetta allt ósköp brothætt. En þetta kraftaverk gaf mér þá gjöf að sleppa aðeins óttanum og kvíðanum. Maður fær bara að vera barnshafandi í fyrsta skipti einu sinni og ég ætla ekki að leyfa nein- um að taka frá mér þá stórbrotnu upplifun,“ segir Anita. Hún segir einmanalegt að vera ólétt í Hollywood. Engin af vinkonum hennar eigi börn. Anita segist ekki geta tekið sér fæðingaror- lof. „Það er ekkert til sem heitir fæðinga orlof í þessum bransa þar sem ég er bara ráðin í eitt verkefni eftir annað og ekki með fastan vinnuveitanda.“ Anita segist ekki ætla í keisaraskurð eins og margar konur í Hollywood gera. „Nátt- úrulega alla leið. Það hljómar kannski masó- kismalega en ég myndi alls ekki vilja missa af þessari upplifun,“ segir Anita. - mm / sjá síðu 44 Leikkonan Anita Briem var hikandi við að búa til barn en á nú von á stúlku: Læt ekki taka óléttuna frá mér
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.