Fréttablaðið - 13.12.2013, Síða 2

Fréttablaðið - 13.12.2013, Síða 2
13. desember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 RÚSSLAND, AP Vladimír Pútín Rúss- landsforseti segir mikilvægt að standa vörð gegn „kynlausu og ófrjóu“ umburðarlyndi Vesturlanda, sem geri engan greinarmun á góðu og illu. Í hinni árlegu stefnuræðu sinni, sem hann flutti í Kreml í gær, minntist hann reyndar hvergi bein- um orðum á lög sem banna „áróð- ur“ fyrir samkynhneigð, en þessi lög hafa verið gagnrýnd fyrir að ýta undir andúð á samkynhneigð. Hins vegar sagði hann mikil- vægt að leggja áherslu á hefðbund- in fjölskyldugildi og sagði það ólýð- ræðislegt að ráðast „ofan frá“ gegn þessum hefðbundnu gildum því það gangi þvert gegn vilja meirihlutans. Þá neitaði hann því að Rússar væru að beita Úkraínumenn þrýst- ingi, en Úkraínustjórn hætti nýverið við að undirrita samstarfssamning við Evrópusambandið eftir að rúss- nesk stjórnvöld höfðu dregið veru- lega úr viðskiptum við Úkraínu. Enn fremur gagnrýndi hann harð- lega rússnesk fyrirtæki sem skrá sig í skattaskjólum erlendis og boð- aði ráðstafanir um að hvetja slík fyrirtæki til að koma með tekjurn- ar til Rússlands: „Viljið þið eiga af- landsfyrirtæki? Fínt, en komið þá með peningana hingað.“ - gb Vladimír Pútín kom víða við í árlegri stefnuræðu sinni í Kreml í gær: Varði af kappi íhaldsstefnu sína VLADIMÍR PÚTÍN Flutti hina árlegu stefnuræðu sína í Kreml í gær. NORDICPHOTOS/AFP LEIÐRÉTT Ranglega var sagt að Íslandsbanki og Arion banki hafi hlotið vottun samkvæmt ISO 27001-staðlinum í umfjöllun um netöryggi í Fréttablaðinu í gær. Hið rétta er að í svörum frá bönk- unum kom fram að þeir vinni sam- kvæmt kröfum staðalsins, en þeir hafa ekki fengið vottunina. Af viðskipta- bönkunum hefur aðeins Landsbankinn fengið formlega vottun samkvæmt ISO 27001-staðlinum. UTANRÍKISMÁL „Þetta var mjög hátíðleg stund í mínu lífi. Það geislaði mikilli hlýju af Frans fyrsta páfa. Hann er greini- lega hlýr maður, léttur í lund og skemmtilegur,“ segir Martin Eyjólfsson, fastafulltrúi Íslands í Genf og nýskipaður sendiherra Íslands í Vatíkaninu. Hann er fyrsti íslenski kaþólikkinn sem er skipaður sendiherra í Páfagarði. Martin afhenti páfa trúnaðarbréf sitt í gær ásamt sautján öðrum nýskipuðum sendiherrum. „Um leið og ég afhenti páfa trúnaðarbréfið sagði ég nokk- ur orð við hann. Ég bar honum kveðju forseta Íslands og íslensku þjóðarinnar og sagði honum að þetta væri mikill heiður fyrir mig. Jafnframt sagði ég páfa að ég myndi biðja fyrir honum. Hann brosti út að eyrum enda leggur páfi mikið upp úr bæninni og mætti hennar,“ segir Martin. Þegar hinir nýskipuðu sendi- herrar höfðu afhent trúnaðar- bréf sín hélt Frans fyrsti stutta ræðu þar sem hann hvatti heima- ríki sendiherranna til að berj- ast gegn mansali með öllum til- tækum ráðum, það væri svartur blettur í samfélagi þjóðanna. „Þegar páfi hafði lokið máli sínu gafst mér tækifæri til að skiptast á nokkrum orðum við hann. Ég færði honum Kærleikskúlu Styrktarfélags lamaðra og fatl- aðra að gjöf og sagði honum frá verkefninu, sem hann blessaði,“ segir Martin. Martin hefur þegar átt fundi með háttsettum embættismönn- um Páfagarðs. Þar lýsti hann yfir ánægju með að Frans páfi hefði fært boðskap kirkjunnar í átt að grunngildum hennar og lagt áherslu á þau málefni sem sam- eina mannkyn. Á fundunum ræddi Martin meðal annars hörmulegt kyn- ferðisofbeldi sem nemendur í Landakotsskóla sættu á síðari hluta síðustu aldar. „Ég lýsti yfir mikill hryggð yfir því hvernig kaþólska kirkjan á Íslandi virðist ætla að taka á þeim málum og var meðal annars að vísa til nýlegrar umfjöllunar um sanngirnisbætur til þolenda,“ segir Martin og hvet- ur kaþólsku kirkjuna til að finna viðunandi lausn á þessum málum. Langalangafi Martins, Gunnar Einarsson, var annar tveggja tólf ára íslenskra drengja sem fóru utan árið 1870 til náms hjá jesú- ítum í Kaupmannahöfn. Hinn var Jón Sveinsson, Nonni, sem hélt áfram til Frakklands. Gunnar tók kaþólska trú í Kaupmannahöfn en sneri að því loknu heim aftur. Fjölskylda Gunnars varð síðan kjarninn í starfi kaþólska safnað- arins á Íslandi fyrstu áratugina. Jóhannes Gunnarsson, sonur Gunnars, var fyrsti íslenski bisk- upinn í Landakoti, en hann var langömmubróðir Martins. johanna@frettabladid.is Ræddi ofbeldið við embættismenn páfa Nýskipaður sendiherra Íslands í Páfagarði er fyrsti kaþólikkinn sem gegnir því embætti. Ræddi kynferðisofbeldi í Landakotsskóla við æðstu embættismenn í Vatíkaninu og segist hafa lýst hryggð yfir því hvernig kaþólska kirkjan tók á málinu. AFHENTI TRÚNAÐARBRÉF Martin Eyjólfsson, nýskipaður sendiherra Íslands í Páfagarði, afhendir Frans fyrsta trúnaðarbréf sitt í gær. BOÐIÐ TIL VEISLU Farþegum sem voru í fyrsta flugi easyJet frá Bristol til Keflavíkur var boðið til veislu við komuna til landsins. SAMGÖNGUR easyJet, eitt stærsta flugfélag Evrópu, hóf í gær beint áætlunarflug milli Íslands og Bristol í Englandi. Þetta er fjórða flug- leið easyJet frá Íslandi en félagið flýgur einnig í beinu flugi milli Keflavíkur, London, Manchester og Edinborgar. Flogið verður til Bristol tvisvar í viku allt árið um kring. easyJet hóf flug á milli London og Keflavíkur í mars árið 2012. Fyrsta árið flaug félagið 72 sinnum til og frá landinu en á næsta ári áætlar það að flogið verði 832 sinnum til og frá landinu. Næsta vor bætist ný flugleið við og verður jafnframt fimmti áfangastaðurinn sem flogið verður til allt árið en það er borgin Basel í Sviss. - jme Flugfélagið easyJet flýgur í beinu flugi til Bristol: Fjórða beina flugið frá landinu REYKJAVÍK Bandaríska fréttastofan CNN hefur valið tíu jólalegustu staði í heiminum og er Reykjavík einn þeirra. Á vefsíðu CNN er fjallað um séreinkenni Íslendinga yfir jólahátíðina. Fram kemur á vefnum að hér á landi séu þrettán jólasveinar sem gefa góðum börnum í skóinn á hverjum degi fyrir jól. Jólamarkaður- inn á Ingólfstorgi ku einnig vera einn sá jólaleg- asti í heiminum. „Þarna geta ferðalangar keypt litríkar jólagjafir, skreytingar og fleira,“ sagði í fréttinni. Þegar Reykjavík er þakin snjó og norðurljósin lýsa upp borgina mun höfuðborg Íslands vera ein sú jólalegasta í heiminum, samkvæmt CNN. - fb Bandaríska fréttastofan CNN telur Reykjavík einn af tíu jólalegustu stöðum heims í nýrri samantekt: Norðurljós og 13 jólasveinar slá í gegn ● Reykjavík, Íslandi ● Barcelona, Spáni ● Rovaniemi, Finnlandi ● New York, Bandaríkjunum ● Nürnberg, Þýskalandi ● Quebec, Kanada ● San Miguel de Allende, Mexíkó ● Santa Claus, Indlandi ● c, Frakklandi ● Valkenburg, Hollandi ➜ Jólalegustu staðirnir JÓLALEG BORG Reykjavík hefur verið valin einn af tíu jólalegustu stöðum heimsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BRUNI Eldur í ruslagámi Eldur kom upp í ruslagámi við Gullin- brú í Reykjavík í gærkvöldi við hús sem áður hýsti útibú Landsbankans. Húsið fylltist af reyk og er ein hlið þess sviðin og skemmd. Slökkvistarf gekk vel. Talið er að kveikt hafi verið í. „Örvar, mun jólamaturinn þinn smakkast vel? „Mig grunar það óþægilega.“ Örvar Þór Guðmundsson safnaði 1,5 millj- ónum króna handa foreldrum langveikra barna. Hann segir að þeir sem tóku þátt í söfnuninni finni hugsanlega betra bragð af jólamatnum. SPURNING DAGSINS Hann brosti út að eyrum enda leggur páfi mikið upp úr bæninni og mætti hennar. Martin Eyjólfsson, sendiherra Íslands í Vatíkaninu EVRÓPUMÁL Evrópuþingið undir- strikar í nýrri ályktun um fram- gang aðildarumsóknar Íslands að ESB, að sambandið styðji það að aðildarferlinu verði haldið áfram og það leitt til lykta. Þar er einnig áréttað að Ísland sé enn skilgreint sem umsóknarríki. Þingmenn segjast fagna því að Alþingi skuli gera úttekt á stöðu viðræðnanna og þróun mála í ESB og bjóða fram aðstoð sína í þeim efnum. Loks segjast þeir vonast til þess að þjóðaratkvæðagreiðsla, sem fara skal fram áður en við- ræðunum verði haldið áfram, verði skipulögð. - þj Ályktun Evrópuþingsins: Viðræðurnar verði kláraðar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.