Fréttablaðið - 13.12.2013, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 13.12.2013, Blaðsíða 8
13. desember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | FRÁBÆR TILBOÐ! Kletthálsi 11 -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is www.facebook.com/bilaland.is TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ Gerðu mögnuð kaup! Fjöldi bíla á staðnum! PORSCHE CAYENNE S Nýskr. 02/06, ekinn 117 þús. km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 4.380.000 TILBOÐSVERÐ! 3.380 þús. HONDA CRV EXECUTIVE Nýskr. 06/12, ekinn 48 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 5.090.000 TILBOÐ kr. 4.590 þús. NISSAN QASHQAI XE Nýskr. 07/07, ekinn 175 þús km. dísil, sjálfskiptur. Verð áður kr. 2.290.000 TILBOÐ kr. 1.690 þús. MERCEDES BENZ E350 4-Matic Nýskr. 02/06, ekinn 79 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 4.490.000 TILBOÐ kr. 3.490 þús. KIA SORENTO LUXURY Nýskr. 02/11, ekinn 183 þús km. dísil, sjálfskiptur. Verð áður kr. 4.990.000 TILBOÐ kr. 3.990 þús. NISSAN MURANO 3.5 Nýskr. 11/07, ekinn 93 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 2.990.000 TILBOÐ kr. 2.290 þús. HYUNDAI GETZ GLS Nýskr. 10/07, ekinn 60 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 1.370.000 TILBOÐ kr. 980 þús. Rnr. 120282 Rnr. 280598 Rnr. 201241 Rnr. 130502 Rnr. 120147 Rnr. 201181 Rnr. 280593 GÖNGUM FRÁ FJÁRMÖGNUN Á STAÐNUM WWW.BÍLALAND.IS SAMFÉLAGSMÁL Í vikunni var þing- festing í Héraðsdómi Vesturlands í máli ákæruvaldsins gegn öku- manni bifreiðar sem skall framan á fólksbifreið 17 ára gamallar stúlku í apríl síðastliðnum með þeim afleiðingum að stúlkan dó. Ákært er fyrir manndráp af gáleysi, ölv- unarakstur og önnur umferðarlaga- brot. Ákæruvaldið fer fram á að ökumaðurinn hljóti 12 til 18 mán- aða óskilorðsbundinn dóm. Fjölskylda stúlkunnar hefur komið meðal annars fram í Kastljósi og gagnrýnt að dómsvaldið nýti ekki refsiramma fyrir manndráp af gáleysi og vill að dómar fyrir ölvunarakstur séu þyngdir. Refsiramminn er frá 30 dögum til sex ára. Heiðrún Tara Stefánsdóttir er systir Unnar Lilju Stefánsdóttur sem lést í bílslysi í Keflavík árið 2010. Hún og fjölskylda hennar fundu til mikillar reiði út í dóms- kerfið þegar dómur féll yfir bíl- stjóra bifreiðarinnar. Hann var ölv- aður og ákærður fyrir manndráp af gáleysi en tvær stúlkur létust í slysinu. Hann fékk tólf mánaða dóm og þar af níu mánuði skilorðs- bundna. „Þetta var vægur dómur miðað við verknaðinn. Okkur fannst dómskerfið meta mannslíf ansi léttvægt. En svo lítur maður á allar hliðar og gerir sér grein fyrir að þetta var hörmulegt slys. Þetta var gáleysi, ekki ásetningur. Slysin gera ekki boð á undan sér og þegar maður er 18 ára, eins og þau voru á þessum tíma, þá er maður ódauð- legur.“ Heiðrún Tara segir ökumanninn vissulega ábyrgan og hann hafi átt að taka út sína refsingu. Hún hefur aftur á móti ekki trú á langri fang- elsisvist. „Ég styð frekar forvarnir en að loka fólk inni í sem lengstan tíma. Í raun er stærsti dómurinn að þessi drengur varð tveimur stúlk- um að bana. Það er mjög þungur kross að bera alla ævina. Í raun finn ég til með honum.“ Ásgeir Ingvi Jónsson missti fimm ára dóttur sína í bílslysi árið 2006 á Suðurlandsvegi og sonur hans lamaðist fyrir neðan mitti. Ökumaður hinnar bifreiðarinnar var dæmdur í 12 mánaða óskil- orðsbundið fangelsi fyrir gáleysis- legan hraðakstur og að verða dótt- ur Ásgeirs og farþega í eigin bíl að bana. „Þeir sem valda svona slysum þurfa að sjálfsögðu að taka ábyrgð á gjörðum sínum. En refsingin sem slík skipti mig ekki höfuðmáli. Það sem skiptir máli er að gerandinn sýni, ekki bara á yfirborðinu held- ur í verki, að hann iðrist gjörða sinna,“ segir Ásgeir. Maðurinn var ítrekað tekinn fyrir hraðakst- ur á árinu eftir slysið, áður en hann kom fyrir dóm. Það sat í Ásgeiri í langan tíma. „Það er eins og hann hafi ekki áttað sig á því hvað gerðist. Sú staðreynd var mun erfiðari en hversu langa fangelsisvist hann fékk. Ég hef í raun ekki trú á refs- ingu í svona málum heldur forvörn- um. Þótt hann hefði setið tveimur árum lengur eða þremur árum lengur hefði það ekki breytt neinu. Það sem skiptir máli er að löggæsl- an verði sýnilegri svo fólk hugsi sig tvisvar um áður en það keyrir of hratt eða keyrir drukkið. Það er það sem virkar en ekki hugsunin um að eitthvað geti komið fyrir. Við verðum nú að einbeita okkur að því að bjarga fólki. Við björg- um ekki fólki eftir að skaðinn er skeður.“ Ásgeir segir reiðina vera vondan fylgifisk í sorginni. „Ég skil reiði aðstandenda og ég skil að þeir heimti refsingu. En það er vont að sitja í reiðinni lengi.“ erlabjorg@frettabladid.is Iðrunin mikilvægari en fangelsisdómar Aðstandendur fórnarlamba gáleysisaksturs vilja heldur efla forvarnir en þyngja refsingar. Þau segja ökumanninn ábyrgan en að mikilvægara sé að hann iðrist og breyti hegðun en sitji fleiri ár í fangelsi. Reiðin er vondur fylgifiskur sorgarinnar. Þyngsta refsing fyrir manndráp af gáleysi í umferðinni sem hefur verið dæmd er 12 mánaða óskilorðsbundið fangelsi en þar var líka dæmt fyrir lík- amsmeiðingar af gáleysi, auk brota gegn umferðarlögum eins og venja er í þeim málum. Refsiramminn fyrir manndráp af gáleysi er allt að sex ár í fangelsi. „Það er dómvenja á Íslandi að ákveða refsinguna neðarlega innan refsimark- anna,“ segir Ragnheiður Bragadóttir, prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands. „Það er hefð á Íslandi og á Norðurlöndunum að refsingar eru vægar. Þetta hefur verið talið mannúðlegt kerfi. Sé Ísland borið saman við önnur lönd er brotatíðni hér tiltölulega lág og dómar vægir. Í Bandaríkjunum er brotatíðni há og dómar þungir. Þungir dómar virðast ekki skila færri brotum og markmiðið hlýtur að vera að fækka brotum.“ Ragnheiður segir dæmdar refsingar geta þróast en það gerist á lengri tíma. „Refsingar fyrir stórfelld fíkniefna- brot og kynferðisbrot hafa þyngst á undanförnum árum. Gerðar voru lagabreytingar sem höfðu áhrif til þyng- ingar refsingar en framkvæmdin var á undan lögunum, því að refsingarnar fóru að þyngjast áður en lögunum var breytt vegna aukinnar umræðu og upplýsinga um alvarleika brotanna auk þrýstings frá samfélaginu.“ Mannúðlegt dómskerfi á Íslandi SYSTIR Heiðrún Tara Stefánsdóttir segir stærsta dóminn fyrir ökumanninn vera að lifa með þessu slysi. MYND/VÍKURFRÉTTIR ÁSGEIR INGVI JÓNSSON LÉST Í BÍLSLYSI Svandís Þula Ásgeirs- dóttir var aðeins fimm ára gömul þegar hún lést í bílslysi á Suður- landsvegi árið 2006. IÐNAÐUR Búðarhálslína 1, sem flytja á raforku frá Búðarhálsvirkj- un, hefur verið tengd við megin- flutningskerfi Landsnets ásamt nýju tengivirki við Búðarháls. Fram kemur í tilkynningu frá Landsneti að raforkuflutningur frá Búðarhálsvirkjun eigi að hefjast í byrjun næsta árs. Búðarhálslína 1 er 5,6 kílómetra löng. Kostnaður við byggingu Búðarhálslínu 1 og tengi- virkið er um einn milljarður króna. Mat á umhverfisáhrifum línunn- ar og Búðarhálsvirkjunar fór fram fyrir nokkrum árum og var fallist á framkvæmdina með skilyrðum. Framkvæmdir við verkið hófust sumarið 2012 með lagningu veg- slóða, vinnu við undirstöður fyrir möstur og byggingu tengivirkis- hússins. Síðasta sumar voru háspennu- möstrin reist, leiðari línunnar strengdur og lokið við uppsetningu búnaðar í tengivirkinu. Í sumar verður unnið að lóðarfrágangi við tengivirkið og frágangi á umhverfi og slóðum meðfram línunni. - óká Búðarhálslína 1 verður tekin í notkun skömmu eftir næstu áramót: Kostnaður nemur um milljarði TENGIVIRKI Búðarhálslínu Orkuvirki setti upp háspennubúnað, en Ístak byggði, lagði slóða og smíðaði undir- stöður háspennumastra. MYND/LANDSNET
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.