Fréttablaðið - 13.12.2013, Síða 10

Fréttablaðið - 13.12.2013, Síða 10
13. desember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 MIÐAUSTURLÖND Ísrael, Jórd- anía og Palestína hafa gert með sér sögulegt samkomulag um að leggja 180 kílómetra langa vatnsleiðslu frá Rauðahafi til Dauðahafsins. Verkefnið snýst um að vinna gegn látlausri lækkun vatnsborðs Dauðahafs- ins með því að dæla 200 millj- ónum rúmmetra vatns þar á milli. Fulltrúar stjórnvalda frá löndunum þremur undirrituðu samninginn í höfuðstöðvum Alþjóðabankans í Washington á mánudag. Við það tækifæri sagði orkumálaráðherra Ísra- els, Silvan Shalom, að samning- urinn sé sögulegur en um leið niðurstaða draums til margra ára. Samningurinn væri mikil- vægur í umhverfislegu- og efnahagslegu tilliti en ekki síður skref í átt til bættra sam- skipta ríkjanna. Á sama tíma sem verkefnið er kynnt sem björgunarleiðang- ur fyrir Dauðahafið, þá njóta borgir í Ísrael og Jórdaníu góðs af verkefninu, en þær fá fersk- vatn og rafmagn frá orkuverum sem tengjast lögninni. Gagnrýnendur segja að vatnsveitan muni aðeins flytja tíunda hluta þess vatnsmagns sem þarf til að snúa þróun- inni við, og verkefnið sé aðeins skugginn af þeirri framkvæmd sem rætt hefur verið um í ára- tugi. Aukinheldur er sagt að vatnsveitan ógni vel þekktum sérkennum Dauðahafsins. Austurströnd Dauðahafsins er í Jórdaníu en vesturströndin er undir stjórn Ísraela, þó tveir, þriðju þess sé hluti af heima- stjórnarsvæði Palestínumanna á Vesturbakkanum. Palestínu- LANDBÚNAÐUR Neysla á alifugla- kjöti hafði í lok síðasta árs sexfald- ast miðað við stöðuna í árslok 1983. Í nýjasta tölublaði Bændablaðsins er rýnt í gögn Hagstofu Íslands um kjötneyslu landans. Fram kemur í blaðinu að veru- legar breytingar hafi orðið á neyslu- mynstri Íslendinga frá 1983. „Sam- kvæmt þessum tölum var neyslan á kindakjöti í árslok 2012 innan við helmingur þess sem hún var í árs- lok 1983.“ Áður var kindakjöt uppistaðan, en 1983 neyttu Íslendingar að meðal- tali 45,3 kílóa á mann. „Neysla á kindakjöti minnkaði síðan jafnt og þétt þar til hún náði lágmarki árið 2011 í 18,8 kílóum á mann, eða 24 prósentum af heildarkjötneyslunni,“ segir í Bændablaðinu. Frá þeim tíma hafi neysla kindakjöts svo auk- ist aftur, komin í 26 prósent í árslok 2012. Alifuglar eru hins vegar enn í sókn, tóku fram úr kindakjöti 2007 og var neysla alifuglakjöts í lok síð- asta árs komin í 26 kíló á mann, 32 prósent af heildarneyslu. - óká Alifuglar hækkuðu enn flugið í kjötneyslumynstri landsmanna á síðasta ári: Helmingi minna kindakjöt borðað en 1983 ➜ Kjötneysla landans árin 1983 og 2012LANDBÚNAÐUR Í ár hafa þegar selst fleiri egg en selst hafa á einu ári áður, jafnvel þótt desember sé ekki nema hálfnaður. Á þetta er bent í nýútkomnu Bændablaði. „Það fór að bera á því fyrir svona tveimur til þremur árum að sala á eggjum fór að aukast,“ er haft eftir Þorsteini Sigmundssyni, eggja- og kjúklingabónda í Elliða- hvammi. Hann rekur breytinguna til lífsstílsbreytinga sem áhrif hafi á mataræði með áherslu á lítið af einföldum kolvetnum í fæðu. - óká Breyttur lífsstíll hefur áhrif: Egg seljast nú sem aldrei fyrr Dæla úr Rauðahafi í hverfandi Dauðahaf Ísrael, Jórdanía og Palestína leggja um 180 kílómetra vatnsleiðslu frá Rauðahafi til Dauðahafs. Leiðslan er svar við því að yfirborð Dauðahafsins lækkar um einn metra á ári. Gagnrýnendur efast og segja annað liggja að baki framkvæmdinni. 13% 5% 7%7% 68% 26% 17% 2%23% 32% Kindakjöt Nautakjöt Hrossakjöt Svínakjöt Alifuglakjöt SKIPTINGIN Gögn Hagstofunnar sýna breytt neyslu- mynstur landans. ● Dauðahafið er stórt stöðuvatn á landamærum Ísraels og Jórdaníu ● Nafn Dauðahafsins má vísast rekja til þess að það er svo salt að þar þrífast hvorki fiskar né aðrar stærri sjávarlífverur. Eina lífið sem þar finnst eru smásæir þörungar og gerlar ● Dauðahafið er miklu saltara en sjór. Ástæðan fyrir seltu þess er sú að þar ríkir ekki jafnvægi á milli innstreymis og útstreymis. Áin Jórdan streymir í Dauðahafið, auk þess sem minni ár leggja því til vatn. Hins vegar er ekkert útstreymi úr vatninu enda er það undir sjávarmáli ● Selta Dauðahafsins er nú 26-35%, um 10 sinnum meiri en selta hafsins ● Þessi mikla selta gerir það að verkum að menn sem baða sig í Dauðahafinu geta hvorki synt né sokkið ● Yfirborð Dauðahafsins er meira en 420 metra undir sjávarmáli og er það lægsti staður á yfir- borði jarðar. Á 20. öld lækkaði yfirborð Dauða- hafsins um rúma 25 metra; þróun sem nú er mun hraðari. Heimild: Vísindavefurinn Hvorki er hægt að synda né sökkva HVERFANDI Á síðustu öld lækkaði yfirborð Dauðahafsins um rúma 25 metra en nú er þróunin enn hraðari. NORDICPHOTOS/AFP PI PA R\ TB W A S ÍA 1 33 6 39 Fallegar jólagjafir - okkar hönnun og smíði jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind Lokað í dag föstudag! Opnum mánudag 16.12. að Dvergshöfða 27 110 Rvk Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Á FLOTI Vegna seltu Dauðahafsins er mönnum lífsins ómögulegt að sökkva, og því sækja milljónir manna þangað til heilsubaða. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES Ísrael Elat AqabaRauðahafið Egypta- land Jerúsalem Vesturbakkinn Hebron Jeríkó Amman 65 km. Dælustöð Afseltunarstöð Uppistöðulón Vatnsaflsvirkjun Dauðahafið Vatnspípa Jórdanía Afseltunarstöð Vatnsaflsvirkjun Dreifistöð VATNSLEIÐSLA FRÁ RAUÐAHAFI Í DAUÐAHAFIÐ Gaza 1983 2012 menn njóta í engu þeirrar auð- lindar sem svæðið er. Dauðahafið, sem liggur 400 metra undir sjávarborði, er segull fyrir ferðamenn. Þar leita menn sér lækninga og dægrastyttingar með því að láta sig fljóta um í vatni sem er tíu sinnum saltara en sjór, en Dauðahafið er í raun stöðuvatn. Ísraelsk fyrirtæki selja auk þess heilsu- og fegrunarvörur unnar á svæðinu fyrir geipi- háar upphæðir. Vatnsleiðslan mikla mun liggja um Jórdaníu og það mun taka fimm ár að leggja hana, með ærnum kostnaði. Talið er að framkvæmdin muni kosta 500 milljónir punda, eða tæpa 100 milljarða íslenskra króna. svavar@frettabladid.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.