Fréttablaðið - 13.12.2013, Blaðsíða 12
13. desember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Amerískir með klakavél
20%
afsláttur
Með því að kaupa
FRIÐARLJÓSIÐ
styrkir þú hjálparstarf
og um leið verndaðan
vinnustað.
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-
1
02
97
5
LÁTUM
FRIÐARLJÓSIÐ
LÝSA UPP AÐVENTUNA
SJÁVARÚTVEGUR „Reksturinn
stendur í járnum á þessu ári eins
og síðustu árin, en þá hefur jafnt
og þétt gengið á svigrúmið til að
halda úti kjarnastarfseminni. En
það eru horfurnar á næsta ári
sem setja þetta á alvarlegra stig,
en líka þarf að tryggja fjárhags-
forsendur starfseminnar árið
2015 og síðar, því hér er fyrst og
fremst um að ræða árlega vöktun
á fiskistofnunum, sem er nauðsyn-
leg forsenda fiskveiðiráðgjafar og
sjálfbærra veiða,“ segir Jóhann
Sigurjónsson,
forstjóri Haf-
rannsóknastofn-
unar.
Jóhann skrif-
aði grein í Morg-
unblaðið í gær
þar sem hann
segir að þrátt
fyrir margra
ára aðhald í rekstri og hartnær tíu
ára stöðuga rekstrarhagræðingu,
hafi stofnuninni tekist að halda úti
kjarnastarfsemi sinni.
Þessu sé öfugt farið nú í ljósi
niðurskurðar í ríkisfjármálum.
„Eins og á við um flestar stofn-
anir ríkisins eru horfur á að Haf-
rannsóknastofnun muni þurfa að
draga úr starfsemi sinni á næsta
ári. Fullyrða má hins vegar, að nið-
urskurður starfseminnar í viðbót
við það sem þegar er orðinn, mun
stefna sjálfbærri nýtingu fiski-
stofna á Íslandsmiðum í hættu,
sem og orðspori Íslands, íslenskra
sjávarafurða og markaðssetningu
þeirra,“ segir Jóhann. - shá
Niðurskurður hjá Hafrannsóknastofnun setur að óbreyttu sjálfbæra nýtingu fiskistofna í uppnám:
Segir að orðspori Íslands sé stefnt í hættu
BUNDINN Viðbúið er að draga þurfi úr
úthaldi skipa og fella niður rannsóknir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
JÓHANN
SIGURJÓNSSON
Maí 2005 Century Aluminium, Reykjanesbær og
Hitaveita Suðurnesja hefja könnun á möguleikum á álveri
Norðuráls í Helguvík. Þetta eru fyrstu staðfestu fregnirnar
um væntanlegt álver
Apríl 2006 Lóðarsamningur undirritaður milli Norður-
áls og Reykjanesbæjar. Með því tryggir Norðurál sér lóð,
ásamt því að semja um gjöld til Reykjanesbæjar
Apríl 2007 Samningur um orkusölu milli Hitaveitu
Suðurnesja og Norðuráls. Þessi samningur var undirritaður
í kjölfar viljayfirlýsingar milli Norðuráls, HS og Orkuveitu
Reykjavíkur, sem undirritaði orkusölusamning nokkrum
vikum síðar
Mars 2008 Reykjanesbær og Sveitarfélagið Garður veita
Norðuráli byggingarleyfi fyrir álveri. Tveimur dögum síðar
hófust undirbúningsframkvæmdir í Helguvík
Júní 2008 Fyrsta skóflustunga tekin að álveri í Helguvík.
Ráðherrar, bæjarstjórar og þingmenn svæðisins tóku þátt
í athöfninni þar sem andstæðingar álversins mótmæltu
harðlega
September 2008 Norðurál fær starfsleyfi frá Um-
hverfisstofnun
Júní 2009 Stöðugleikasáttmálinn undirritaður. Þar
kveður á um að Helguvíkurálveri verði unnið brautargengi
Ágúst 2009 Iðnaðarráðherra og forsvarsmenn
Norðuráls undirrita fjárfestingarsamning
Ágúst 2010 Iðnaðarráðherra stendur fyrir samstarfs-
fundi með Norðuráli, orkufyrirtækjunum, sveitar-
félögum og stofnunum, til að ræða stöðu mála og eyða
óvissu varðandi framhaldið
Desember 2011 Gerðardómur úrskurðar að HS
Orka þurfi að standa við samninginn við Norðurál um
að útvega álveri í Helguvík raforku
Maí 2012 Gerðardómur úrskurðar að Norðuráli hafi
verið óheimilt að skerða innkaup á rafmagni frá HS
Orku og OR
September 2012 Michael Bless, forstjóri Century
Aluminium, móðurfélags Norðuráls, segir að samningar
um orku fyrir álver í Helguvík séu á lokametrunum
Júní 2013 Forstjóri HS Orku segir álverð of lágt í
heiminum til að hægt sé að byggja bæði arðsamt álver í
Helguvík og arðbærar virkjanir
Desember 2013 Bless segir á fundi með Bank
of America að álver verði ekki byggt í Helguvík við
núverandi aðstæður. Hann segist tilbúinn að líta á fjár-
festingu fyrirtækisins í álveri í Helguvík sem „sokkinn
kostnað“
Átta ára ferli á krossgötum?– Álver í Helguvík 2005-2013
VIÐSKIPTI Matvælaframleiðslu-
fyrirtækið Bakkavör hefur selt
dótturfyrirtæki sitt í Tékklandi,
Heli Food Fresh.
Kaupverðið er
ekki gefið upp.
Dótturfyrir-
tækið hefur fram
að þessu haldið
utan um fram-
leiðslu Bakka-
varar í Tékk-
landi á tilbúnum
réttum.
Ágúst Guð-
mundsson, forstjóri Bakkavarar,
segir í tilkynningu vegna sölunn-
ar að hún sé annað skref í átt að
markmiði fyrirtækisins um að ein-
blína eingöngu á þá markaði sem
bjóði upp á bestu vaxtarskilyrðin.
- hg
Bakkavör losar sig við eign:
Seldi tékkneskt
dótturfyrirtæki
ÁGÚST
GUÐMUNDSSON
IÐNAÐUR „Það er ekkert nýtt í
þessu en það eru heldur ekki
góðar fréttir. Það eru engar góðar
fréttir í kringum álver í Helgu-
vík,“ segir Árni Sigfússon, bæjar-
stjóri í Reykjanesbæ.
Viðskiptablaðið greindi frá því
í gær að forstjóri Century Alum-
inium, Michael Bless, hefði sagt á
fundi með bandarískum greining-
araðilum að ekki yrði farið lengra
með álver í Helguvík nema arð-
semi yrði góð.
Viðskiptablaðið segir að sam-
kvæmt þeim gögnum sem það
hafi, hafi Bless sagt að orku-
verð sem HS Orka og Orkuveita
Reykjavíkur bjóði sé of hátt og
Landsvirkjun geti ekki útvegað
þá orku sem til þarf.
Sagðist Bless tilbúinn að líta
á fjárfestingu í Helguvík sem
„sokkinn kostnað“.
Árni segir að menn séu ekki
hættir við verkið þó enn sé ekki
búið að semja um orkuverð eða
afhendingu orkunnar.
„Þegar forstjórinn talar um
sokkinn kostnað þá meinar hann
að það sé ekki hægt að gera ráð
fyrir að það verði ávöxtun af
framkvæmdinni. Það verði að taka
tillit til þess mikla vaxtakostnaðar
sem hafi orðið af því og hann verði
að fella niður.“
Ragnar Guðmundsson, forstjóri
Norðuráls, segir að enn sé áhugi á
verkefninu.
„Það þarf að klára orkumálin
en ekkert liggur fyrir með orku-
afhendingu frá HS Orku og Orku-
veitunni. Við höfum verið að kanna
hvort fleiri séu aflögufærir en
það hefur verið lítið um svör enn
þá. Menn vísa til endurskoðunar
rammaáætlunar,“ segir Ragnar.
Hann bætir við að menn hafi
verið að bjóða hærra verð fyrir
orkuna og það yrði litið fram hjá
þeim kostnaði sem kominn sé en
það hafi ekki dugað til enn þá.
Ásgeir Margeirsson, stjórn-
arformaður HS Orku, segir að
fyrir tækið hafi fullan hug á að ná
samningum um orkusölu til álvers
Norðuráls í Helguvík. „Við höfum
enn fullan hug á að ná samning-
um og höfum unnið að því allan
tímann. Við trúum því að það geti
gerst. En hvort það gerist veit ég
ekki,“ segir Ásgeir
johanna@frettabladid.is
Engar góðar fréttir
af álveri í Helguvík
Enn er vonast til að álver rísi í Helguvík. Forstjóri Norðurorku segir að enn sé
áhugi á verkefninu. Stjórnarformaður HS orku segir að menn hafi fullan hug á að
ná samningum um orkusölu. Hvort það gerist viti hann hins vegar ekki.
Í UPPNÁMI Fréttir bárust af því í gær að forstjóri Century Aluminium hefði sagt að
ekki yrði farið lengra með álver í Helgvík nema tryggt væri að arðsemi yrði góð. For-
stjóri Norðuráls segir að enn sé hugur í mönnum að reisa álver. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÁRNI SIGFÚSSON MICHAEL BLESS
Við
höfum ennþá
fullan hug á
að ná samn-
ingum.
Ásgeir Margeirsson,
stjórnarformaður
HS Orku.
DÓMSMÁL Samningur Fluga-
straums ehf. við SP-Fjármögnun
hf. um fjármögnun á kaupum á
dráttarvél var lánssamningur
að mati Hæstaréttar og gengis-
trygging fjárhæða því ólögmæt.
Í samningnum, sem gerður var
árið 2006, var kveðið á um geng-
istryggingu fjárhæða. Slík geng-
istrygging telst vera ólögmæt ef
um er að ræða lánssamning en
lögmæt ef um er að ræða leigu-
samning.
Í tilkynningu frá Landsbankan-
um segir að ljóst sé að dómurinn
hafi áhrif á mat á því hvort sam-
bærilegir samningar hjá Lands-
bankanum teljist vera leigusamn-
ingar eða lánssamningar með
ólögmæta gengistryggingu. Farið
verður yfir fordæmisgildi dóms-
ins á næstunni. - hva
Gengistrygging ólögmæt:
Hefur áhrif á
aðra samninga
LÖGREGLUMÁL Svo virðist sem
karl og kona hafi komið hingað
til lands í þeim eina tilgangi að
stela. Parið var handtekið í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar í gær og
á því fundust skartgripir fyrir á
fjórðu milljón króna.
Þau komu til landsins á mánu-
dag og sama dag hafði lögregla
afskipti af þeim vegna þjófnaðar
á fatnaði og matvælum. Þau héldu
svo áfram að láta greipar sópa
uns þau voru handtekin, yfir-
heyrð og send úr landi. - jme
Handtekin í flugstöðinni:
Stálu djásnum
fyrir milljónir