Fréttablaðið - 13.12.2013, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 13.12.2013, Blaðsíða 16
13. desember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 16 SAMFÉLAGSMÁL Samtökin Röddin – baráttusamtök fyrir réttindum utangarðsfólks voru stofnuð á fjöl- mennum fundi í Iðnó. Í stjórn eru sjö félagsmenn og þrír til vara. Stjórnarformaður var einróma kjörinn Alma Rut Lindudóttir. Auk hennar eru í stjórn þau Bjarni Tryggvason, Elísabet Kristjánsdóttir, Gunnhildur Bragadóttir, Hrafnhildur Jóhannesdóttir, Laufey Bára Einarsdóttir og Þorleifur Gunnlaugsson. Samtökin eru landssamtök og tilgangur þeirra er, eins og nafnið bendir til, að berjast fyrir réttindum og vinna að málefnum utangarðsfólks. Samtökin munu leitast við að koma að og hafa mótandi áhrif á allar aðgerðir stjórnvalda sem lúta að málefnum utangarðsfólks. Það verður m.a. gert með því að efla samtakamátt þeirra sem láta sig málið varða og vinna með öðrum félagasamtökum og hópum sem hafa svipuð markmið. Einnig skal sjá til þess að jafnræðisregla stjórnarskrárinnar verði virt og þeim mannréttindasáttmálum sem Ísland á aðild að sé framfylgt. Efla skal gagnrýna og málefnalega umræðu um þjónustu við utangarðsfólk og stuðla að því að þeim sem lenda utangarðs verði búin skilyrði til að njóta hæfileika sinna. Þeir sem vilja gerast stofnfélagar geta haft samband við Ölmu Rut Lindudóttur á netfanginu Almarut@internet.is. - fb Baráttusamtök fyrir réttindum utangarðsfólks voru stofnuð í Iðnó í gær: Röddin fyrir utangarðsfólk STJÓRNARFORMAÐUR Alma Rut Lindudóttir hefur verið kjörin stjórnarformaður Raddarinnar. MYND/ERNIR EYJÓLFSSON HEILBRIGÐISMÁL Landssamband eldri borgara (LEB) og Securitas hafa gert með sér langtíma- samning um kynningu, þróun og innleiðingu á tæknilausnum sem auðvelda öldruðum búsetu á eigin heimili. Með slíkum lausnum má tryggja að fólk geti búið á eigin heimili eins lengi og mögulegt er. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður LEB, tekur í sama streng „Það er mikilvægt fyrir farsæld þeirra 21 þúsund einstaklinga sem eru félagsmenn í 53 aðildarfélögum LEB að velferðartækni sé nýtt þar sem hennar er þörf og þetta samstarf er liður í þeirri viðleitni.“ Um er að ræða svonefnda velferðartækni sem auk öryggismála felur í sér notkun ýmiss konar tækja til að auðvelda daglegt líf aldraðra. Þar á meðal til samskipta, hreyfiaðstoðar, heilsu- farsvöktunar og heimilisstarfa. Með breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar þar sem hlut- fall aldraðra fer vaxandi verður velferðartækni sífellt mikilvægari, að því er segir í fréttatil- kynningu. „Þessi samningur við LEB er þýðingar mikill fyrir okkur í Securitas til að skilja sem best þarfir þessa mikilvæga hóps sem við viljum þjóna vel og lengi við síbreytilegar aðstæður,“ segir Guðmundur Arason, forstjóri Securitas. - fb Landssamband eldri borgara og Securitas semja um tæknilausnir sem auðvelda fólki að búa heima: Tæknin nýtt þar sem hennar er þörf SAMIÐ Guðmundur Arason, forstjóri Securitas hf., og Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður LEB, handsala samkomulagið. EFNAHAGSMÁL Að mati Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins (AGS) kemur boðuð skuldaniðurfærsla ríkis- stjórnarinnar til með að auka byrð- ar Íbúðalánasjóðs. Í viðtali við Bloomberg-frétta- veituna segir Daria Zakharova, sendifulltrúi AGS sem fer með málefni Íslands, að aðgerðirnar hafi í för með sér aukna hættu fyrir Íbúðalána- sjóð vegna þess að þær ýti undir uppgreiðslu lána hjá sjóðnum. Uppgreiðsla lána skapar sjóðnum vandræði þar sem hann getur ekki endurfjár- m a g n a ð e ð a breytt kjörum skuldabréfa sem gefin voru út til að fjármagna útlánin. Þetta segir Zakharova að kalli á enn aukin fjárframlög ríkisins til sjóðsins. Í frétt Bloomberg segir að AGS áætli að ríkið kunni að þurfa að leggja sjóðnum til 40 milljarða króna til viðbótar á næstu fjórum árum til þess að eiginfjárhlutfall hans haldist yfir 2,5 prósentum. Það sé þó ekki nema helmingurinn af lögboðnu 5,0 prósenta eiginfjár- hlutfalli. Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, kveðst ekki tjá sig um tölulegar fullyrðingar Bloom- berg. Hvað áhrif skuldaleiðréttinga ríkisstjórnarinnar varði þá sé enn nokkur óvissa um endanleg áhrif þeirra á Íbúðalánasjóð. „Málið á eftir að fara í þing- lega meðferð og þar geta ýmsir hlutir breyst. En ljóst er að þetta er bæði stór aðgerð og eins og hún hefur verið kynnt þá er ljóst að hún kemur til með að hafa jákvæð áhrif á lánasafn sjóðsins.“ Með aðgerðunum getur greiðslu- geta lántaka aukist og þar með gætu heimtur sjóðsins á lánum batnað. Að auki kunna veð sem, sjóðurinn hefur fyrir lánum, að hækka með hækkandi eignaverði. Sigurður segir hins vegar erfitt á þessu stigi að meta mögulega upp- greiðsluáhættu sjóðsins af aðgerð- unum. „Heilt yfir þá líður manni ekkert illa með þetta.“ Sigurður segir um leið ljóst að við aðgerðirnar þurfi sjóðurinn að færa niður lán í lánasafni sínu, en á móti komi framlag úr ríkissjóði. „Það er að segja fullar bætur fyrir þau lán sem við þurfum að færa niður. Þannig að nettóáhrifin eru þau að lánasafnið minnkar og við fáum fjármuni á móti því.“ Í rökstuðningi vaxtaákvörðunar peningastefnunefndar Seðlabank- ans í vikunni kom fram að nefnd- in teldi að áhrif skuldaniðurfærsl- unnar á verðbólgu hafi verið vanmetin. Í viðtali Bloomberg við sendifulltrúa AGS kemur jafnframt fram að sjóðurinn telji að fjármun- um sem verja eigi í niðurfærsluna yrði betur varið í að greiða niður skuldir ríkisins. olikr@frettabladid.is Segja Íbúðalánasjóð fá niðurfærslu í bakið Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar við leiðréttingu hús- næðisskulda auka á vanda Íbúðalánasjóðs. Forstjóri sjóðsins segir endanleg áhrif aðgerðanna vegna uppgreiðslu lána óljós. Aðgerðirnar hafi einnig jákvæð áhrif. SÉRTÆKAR AÐGERÐIR KYNNTAR Fjármálaráðherra og forsætisráðherra kynntu fyrir hálfum mánuði niðurfærslu lána og hugmyndir um að séreignarlífeyrissparn- aður nýtist í niðurgreiðslu húsnæðislána. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SIGURÐUR ERLINGSSON DARIA ZAKHAROVA ORKUMÁL Byggja á sex þúsund rúmmetra heitavatnstank á Akranesi í stað tvö þúsund rúmmetra tanks sem þar er. Vandamál hafa verið með heitt vatn á Akranesi sem veitt er til bæj- arins frá Deildartunguhver í Borgarfirði. Bæjarstjórnin segist ánægð með nýja heitavatnsgeyminn en að byrja verði á að leita að framtíð- arlausn. „Í því felst bæði að hefja tilraunaboranir eftir heitu vatni í nágrenni Akraness og að flýta endurbótum við Deildartunguæðina eins og kostur er,“ segir bæjarstjórnin. - gar Brugðist við ítrekuðum vanda hitaveitu á Akranesi: Þrefalda tank fyrir heitt vatn HEITAVATNSLÖGN Pípur frá Deildartunguhver voru endurnýjaðar 2011. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA EVRÓPUSAMSTARF Opnað fyrir umsóknir Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Horizon 2020, nýrri rannsókna- og nýsköpunaráætlun Evrópusambands- ins. Áætlunin nær til áranna 2014 til 2016. Hér hefur Rannís umsjón með áætluninni. Íslensk heimasíða Horizon 2020 er sögð í smíðum. EFNAHAGSMÁL Viðspyrnu náð í OECD Í nýrri mánaðarskýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, eru horfur í heimshagkerfinu sagðar jákvæðari á næsta ári. Í umfjöllun IFS Greiningar kemur fram að merki séu sögð um viðspyrnu og ráð gert fyrir aukinni iðnframleiðslu. RÁÐNING Finnur Árnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Þörungaverksmiðjunnar á Reyk- hólum. Finnur hefur komið víða að stjórn og rekstri fyrirtækja, svo sem í sútun og harðviðarþurrk- un, auk þess sem hann var fram- leiðslustjóri Slippfélagsins. Finnur, sem er fæddur 1958, lauk B.Sc.-námi í efnafræði við HÍ árið 1985 og Fil.cand.-prófi í rekstrarhagfræði frá Háskólan- um í Gautaborg 1988. - fb Þörungaverksmiðjan: Finnur Árnason ráðinn til starfa milljarða króna gætu stjórnvöld þurft að leggja Íbúðaláni til næstu fj ögur árin til að halda eiginfj árhlutfalli sjóðsins yfi r 2,5 prósentum. 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.