Fréttablaðið - 13.12.2013, Qupperneq 25
FÖSTUDAGUR 13. desember 2013 | SKOÐUN | 25
Í DAG
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Kæra (hugsanlega ímyndaða)
barn. Já, þú sem sendir mér bréf
og kvartaðir undan því að sumir
í skólanum þínum hafi fengið
iPhone 5 og dýrar græjur meðan
þú fékkst bara tréliti og mandar-
ínur. Þú spyrð af hverju ég gefi
ekki öllum duglegum börnum
sömu gjafir. Já, seisei.
Það er nú því miður einfalt
svar við því, kallinn minn. Ég
er goðsagnavera. Það eru for-
eldrarnir sem kaupa gjafirnar.
Þannig að ástæðan fyrir því að
þú fékkst mandarínu en Solla
iPhone 5 (sem ég trúi nóta bene
ekki að hún hafi í alvöru gert) er
sú að mamma þín keypti handa
þér mandarínu en mamma eða
pabbi Sollu keyptu handa henni
iPhone 5.
Ég geri raunar ráð fyrir að þú
vitir þetta nú þegar, rétt eins og
flest börn gera svona tveimur-
þremur árum áður en þau hætta
að spila þennan leik með foreldr-
um sínum. En ef það var ekki til-
fellið, ef ég var að stinga á ein-
hverri sápukúluveröld þá er það
leitt en það var nú erfitt að halda
áfram þessum blekkingum, úr
því að þú spurðir svona hnitmið-
að. Eitt er að fá barn til að haga
sér vel með loforðum um gjafir.
En annað er að reyna að útskýra
að jólasveinninn gefi ríkra
manna börnum dýrari gjafir.
Kommon! Af hverju ætti ég að
gera það? Og hvernig mögulega
gæti ég réttlætt það?
Þú veist aldrei alla söguna
Sumir vilja reyndar meina að þú
sért ekki til í alvörunni heldur
uppspuni fullorðins fólks sem
skrifaði þetta bréf í þínu nafni.
Ef svo er: Engar áhyggjur, vel-
kominn í klúbbinn. En sama
hvort það er tilfellið eða ekki
stendur eftir réttmæt spurn-
ing: Er það sanngjarnt að börn
fái misdýrar gjafir á jólunum?
Og miðað við hve margir deila
þessu bréfi þá finnst mörgum
það ekki sanngjarnt. Það var nú
við því að búast af okkur Norð-
urlandabúunum. Við viljum ekki
að neinn fái að halda að hann sé
eitthvað spes, því þá gæti öðrum
liðið illa. Fólk sem segist hata
efnishyggjuna kvartar sáran
undan því að aðrir fái flottara
dót.
Pössum okkur aðeins. Til að
byrja með þarf ekki að vera að
þeir sem segjast hafa fengið
dýrar gjafir segi satt. Fólk ýkir,
börn ýkja. Svo getur verið að
sumt af þessu sé bara rógburð-
ur og hluti af einhverju einelti.
„Gunna er rík – pabbi hennar
gaf henni dýran síma – lemjum
hana.“ En jafnvel þótt einhver
fái dýran hlut, þá veistu aldrei
alla söguna. Sumir foreldrar
hitta börn sín lítið. Sumir pabb-
ar vinna kannski á sjó. Sumir
foreldrar búa ekki einu sinni
með börnunum sínum. Sumir
eru kannski mikið lasnir. Svo
koma jólin og sumir foreldrar
reyna kannski að bæta fyrir
eitthvað með því að gefa dýrar
gjafir. Ég er ekki að segja að það
sé eitthvað frábærlega sniðugt,
en gefum fólki smábreik. Þetta
eru jólin. Breytum jólunum ekki
í norræna nornaveiðahátíð.
Sumir foreldrar eru ríkari en
aðrir og hafa þar af leiðandi efni
á dýrari gjöfum. En það getur
líka vel verið að foreldrar þess-
arar stelpu, sem átti að hafa
fengið dýran síma í skóinn, hafi
ekkert frekar haft efni á þessu
en mamma þín en keypt hann
samt. Þau hafi hækkað heim-
ildina á kortinu og steypt sér í
skammtímaskuldir. Það er ekki
mjög gáfulegt.
Fyrirmyndargjöf
Mömmu þinni þykir vænt um
þig. Þess vegna verður hún leið
þegar hún heyrir að þér finnist
gjafirnar sem þú færð ekki nógu
fínar. En þú mátt bara vera glað-
ur yfir að eiga mömmu sem er
þér svona góð fyrirmynd. Hún
ætlar ekki að nota peninga sem
hún á ekki til að kaupa handa
þér hluti sem þú þarft ekki á að
halda. Hún kaupir handa þér það
sem hún hefur efni á. Hún má
vera stolt af þeirri gjöf sem hún
er að gefa þér með þessu góða
fordæmi. Með þá fyrirmyndar-
gjöf ættirðu að pluma þig ágæt-
lega í lífinu.
Gleðileg jól
- Jólasveinninn
(Samt bara Pawel)
Jólasveinninn svarar
Breytum
jólunum ekki í
norræna nornaveiðihátíð. Ekkert lát virðist á vin-
sældum loðfelda á Íslandi
og er það ekki síst áberandi
nú í aðdraganda jólanna
þegar kuldinn sækir að
landsmönnum. Búið er að
fylla á lagera verslana og
mikið úrval tegunda er að
finna í hillum. Loðfeldur er
vinsæl jólagjöf í ár líkt og
undanfarið. Flík sem áður
var munaðarvara, kostaði
handlegg og var oft aðeins
gefin á stórafmælum er nú
seld í flestum tískuvöru-
verslunum á verði sem
neytendur ráða auðveldlega
við. Hvernig má það vera?
Kínverjar eru stærstu framleið-
endur loðfelda á heimsvísu. Kín-
versk bú eru óteljandi og þeim fer
fjölgandi. Sögum ber ekki saman
um það hvort lög um dýravelferð
séu yfirhöfuð til staðar í Kína.
Aðferðir, sem beitt er við loð-
dýraframleiðslu þar, eru vægast
sagt hræðilegar og næsta víst að
íslensku búi yrði samstundis lokað,
gerðist íslenskur framleiðandi upp-
vís að því að beita sömu aðferðum.
Framleiðslan í Kína miðar að því
einu að hámarka hagnað. Búin
stækka og framleiðslukostnaðurinn
lækkar. Keppst er við að koma sem
flestum dýrum á hvern fermetra,
sem minnstu er kostað til við fóður,
vatn, hita og birtu; rétt þannig að
dýrin haldist á lífi nógu lengi til
þess að hægt sé að koma loðfeld-
inum í verð. Kostnaður við aflífun
er mismikill og aðferðirnar margar
eins og ógrynni myndbanda á ver-
aldarvefnum sýna. Dýrin eru ýmist
kæfð með útblæstri frá
mótor, gefið raflost í enda-
þarm, barin til dauða með
prikum, stigið á háls þeim
og stappað og þau jafnvel
fláð lifandi. Þessar mynd-
bandsklippur geta eflaust
fáir horft á til enda.
Loðfeldur í íslenskum
verslunum er iðulega
merktur íslensk hönnun, en hvergi
kemur fram upprunaland feldar-
ins. Íslenskir loðdýrabændur selja
allan sinn loðfeld úr landi og þar
sem Kínverjar framleiða mest allra
af loðfeldi er ekki erfitt að gera sér
í hugarlund hvaðan ódýri loðfeldur-
inn, sem við sjáum hér í verslunum,
kemur.
Samstillt átak tískuhúsa og fram-
leiðenda hefur byrgt okkur sýn
á það hvers dýrin raunverulega
gjalda til þess að við getum klæðst
þessari tískuvöru. Standa íslensk-
ir neytendur kannski í þeirri trú
að lög og reglugerðir komi ein-
hvern veginn í veg fyrir að vörur
framleiddar á þennan hátt nái inn
á íslenskan markað? Á meðan við
gerum ekki lágmarkskröfur til
framleiðenda um að velferð dýr-
anna sé tryggð mun þessi tísku-
vara halda sessi sínum á íslenska
markaðnum. Hvar drögum við lín-
una? Hvers eiga dýrin að gjalda?
Munum að við kjósum með veskinu.
Hvers eiga dýrin
að gjalda?
DÝRAVELFERÐ
Guðný Nielsen
iðnaðarverk-
fræðingur og
stjórnarmeðlimur
í Velbú, sam-
tökum um velferð í
búskap.
➜ Kínverjar eru
stærstu framleið-
endur loðfelda á
heimsvísu.
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS
HEIMABÍÓ Í EINUM HÁTALARA
JBL Cinema SB200
59.990 VERÐ
HELSTU KOSTIR
• Getur notað sömu fjarstýringu og sjónvarpið
• Harman Display Surround tækni
• Þráðlaus Bluetooth tenging
• Einfalt í uppsetningu
SM.I
S