Fréttablaðið - 13.12.2013, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 13.12.2013, Blaðsíða 36
FÓLK|| FÓ K | HELGIN4 HUNDASVÆÐI Hægt er að finna öll hundasvæði landsins á www.bestivinur.is er að finna öll hundasvæði landsins. Fleiri upplýsingar má einnig finna undir bestivinur.is á facebook. Síðastliðið sumar vorum við fjöl-skyldan á ferðalagi um landið og hundurinn okkar með í för. Þá lent- um við iðulega í vandræðum með hvar við mættum sleppa honum lausum. Mörg bæjar- og sveitarfélög hafa opnað sérstök hundasvæði þar sem hundar mega vera lausir en við rákum okkur á að upplýs- ingar um þessi svæði liggja ekki á lausu,“ segir Geir Gígja sem heldur ásamt konu sinni, Jónínu Einarsdóttur, úti vefnum tjalda.is þar sem er að finna upplýsingar um tjaldsvæði á landinu. „Okkur datt í framhaldinu í hug búa til vefsíðu þar sem hægt væri að finna öll hundasvæði lands- ins,“ segir hann og þannig vaknaði hug- myndin að vefsíðunni bestivinur.is. Geir segir fólk almennt ekki mjög upplýst um þau hundasvæði sem eru í boði. „Við búum í Hafnarfirði og þegar við höfum hitt hundaeigendur og sagt þeim frá hundasvæðinu hér í bænum vita fæstir af því.“ Geir segir ekki hafa verið hlaupið að því að útvega upplýsingar fyrir síðuna. „Ég margsendi pósta á sum sveitarfélögin en ég held að ég sé kominn með öll svæð- in,“ segir hann og vonar að sveitarfélögin sjái sér hag í að láta hann vita þegar ný svæði bætast við. „Ég veit til þess að slík svæði eru í vinnslu á nokkrum stöðum á landinu.“ Á vefsíðunni bestivinur.is er að finna kort sem sýnir hundasvæði á öllu land- inu. „Höfuðborgarsvæðið stendur ágæt- lega, líkt og Austurland og ákveðinn hluti af Norðurlandi, en á Vesturlandi og Vest- fjörðum er ekki að finna nein slík svæði,“ upplýsir Geir sem telur síðuna ekki síst gagnast hundaeigendum á ferðalagi. Fleiri upplýsingar er að finna á síðunni. „Við höfum safnað saman lista yfir hunda- þjálfara og -námskeið, hvar finna má pössun fyrir hundinn, annars vegar hótel- pössun og hins vegar heimapössun. Við setjum inn fréttir og skemmtileg mynd- bönd af hundum og verðum auk þess með sérfræðinga sem skrifa pistla,“ segir Geir og lofar lifandi og skemmtilegum vef. Hundur fjölskyldunnar heitir Ronja og er af labradorkyni. Hún er fyrsti hundur þeirra og Geir segir þau læra eitthvað nýtt af henni á hverjum degi. „Hún er þriggja ára, getur gert mann gráhærðan á köflum og er yndisleg þess á milli,“ segir hann hlæjandi. „Maður lærði ekki almennilega þolinmæði fyrr en maður eignaðist hund,“ segir hann kíminn. ■ solveig@365.is HVAR MÁ BESTI VINURINN VERA? HUNDAHALD Á nýju vefsíðunni bestivinur.is er hægt að fá upplýsingar um öll hundasvæði landsins auk fróðleiks, skemmtilegra myndbanda, upplýsinga um námskeið og hvar finna megi hundagistingu. BESTU VINIR Hjónin Geir Gígja og Jónína Einarsdóttir með fjölskylduhundinn Ronju. Hugmyndin að vefsíðunni bestivinur. is vaknaði á ferðalagi með hundinn síðastliðið sumar. MYND/DANÍEL Tónleikarnir eru í kirkjum lands- ins en í dag verða þau í Egils- staðakirkju kl. 20, á morgun kl. 16 í Norðfjarðarkirkju og í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði kl. 21. Á sunnudag troða þau síðan upp í Skálholtskirkju kl. 15 og í Selfosskirkju kl. 21. Þetta er í fjórða sinn sem Frið- rik Ómar ferðast um landið á aðventunni og hann segir að það sé ákaflega skemmtilegt og gef- andi. Hann er í fyrsta skipti með þessum hópi. „Okkur hefur verið mjög vel tekið á öllum stöðum. Það myndast mjög góð stemning þar sem við komum fram og fólk er þakklátt fyrir svona jólatón- leika á aðventunni,“ segir Friðrik Ómar. „Maður hefur stundum lent í því að vera veðurtepptur eða ekki komist á staðinn en núna hefur færðin ekkert spillt ferðalag- inu. Við syngjum aðallega jólalög, gömul og ný, en síðan flyt ég Faðir vor, eins og ég geri á plötu minni,“ segir Friðrik Ómar enn fremur. Efnisskráin er hátíðleg en í senn skemmtileg og því tilvalin fyrir alla fjölskylduna. Auk þeirra koma fram barnakórar frá hverj- um stað fyrir sig. SYNGJA Í KRINGUM LANDIÐ Söngvararnir Greta Salóme, Friðrik Ómar, Heiða Ólafs og Jógvan Hansen hafa verið á ferð um landið með jólatónleika sem þau kalla Jólin eru alls staðar. GÓÐUR HÓPUR Jógvan og Friðrik Ómar fara um landið og syngja jólalög með þeim Gretu Salóme og Heiðu Ólafs. MYND/GVA Öll börn eiga rétt á Gleðilegum Jólum www.hvitjol.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Landsins mesta úrval af sófasettum Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Opið virka daga kl. 10-18 laugard. 11-16 AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM TIL JÓLA Rín Río 30% Allt a ð Valencia TILBOÐ Roma
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.