Fréttablaðið - 13.12.2013, Qupperneq 38
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og tíska. Tónleikar og heilsa. Jóladressið. Aníta Briem. Skart og förðun. Hönnun og nudd. Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
2 • LÍFIÐ 13. DESEMBER 2013
HVERJIR
HVAR?
Umsjón blaðsins
Marín Manda Magnúsdóttir
marinmanda@frettabladid.is
Umsjón Lífsins á Vísir.is
Ellý Ármanns
elly@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Forsíðumynd
Constantine Paraskevopoulos
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
Lífið
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
www.visir.is/lifid
Lífi ð
Hamingja, fólk og
annað frábært
N
ú er tíminn þar sem
fólk er í hátíðarskapi
og er að gera sig fínt
fyrir jólin svo mér
fannst tilvalið að búa
til leik þar sem fjölskyldur gætu
tekið þátt, sameinað skemmti-
lega samverustund og unnið til
frábærra verðlauna í leiðinni,“
segir Theódóra Mjöll Skúladóttir
Jack, höfundur nýju bókarinnar
Lokkar. Theódóra Mjöll skrif-
aði bókina Hárið í fyrra en hún
er hárgreiðslusveinn. „Ég held að
fólki finnist einstaklega gaman að
taka þátt í leikjum og mér þætti
mjög gaman ef einhver nýtti sér
greiðslurnar í bókinni minni.“
Theódóra Mjöll segir leikinn
vera einfaldan þar sem allir geta
tekið þátt. Dæmt verður út frá út-
færslunni á greiðslunni og sjálfri
myndatökunni. „Hugmyndin þarf
ekki að vera fullkomin en miklu
máli skiptir að greiðslan sjáist vel,
hvort sem um er að ræða uppsett
hár, fléttur eða annað. Ég vona að
sem flestir taki þátt því að það eru
svo frábærir vinningar í boði.“
Leikurinn
Gerðu fallega hárgreiðslu í þig
eða litlu stelpuna, vinkonu eða
fjölskyldumeðlim og taktu þátt
í leiknum. Sendu myndina á
Facebook-síðuna Lífið á Vísi eða
í gegnum Instagram með því að
merkja myndirnar með #lokk-
aroglifið eða sendu með tölvu-
pósti á netfangið marinmanda@
frettabladid.is. Myndirnar birtast
á Vísi og úrslitin verða tilkynnt
20. desember.
Flottustu greiðslurnar að
mati dómnefndar hljóta glæsi-
lega vinninga en dæmt verður út
frá gæðum hárgreiðslunnar og
myndatökunni. Vinningslíkurn-
ar aukast sé bakgrunnurinn stíl-
hreinn og skemmtilegur.
Glæsilegir vinningar fyrir
1. 2. og 3. sæti
Nánar um leikinn á Vísir.is
TAKTU ÞÁTT HÁRGREIÐSLU-
LEIKUR LOKKA OG LÍFSINS
Theódóra Mjöll Skúladóttir Jack hvetur fólk til að taka þátt í hárgreiðsluleik
en stórir vinningar eru í boði.
Theódóra Mjöll Skúladóttir Jack,
höfundur hárbókarinnar Lokkar.
Grínistinn og fjölmiðlastjarn-
an Russell Brand hélt seinna
uppistand sitt í Hörpu á
þriðjudaginn. Sýningin ber
heitið Messiah Complex. Ís-
lendingar eru ólmir í grín ef
marka má fjölda gesta sem
lögðu leið sína í tónlistar-
húsið. Þar mátti sjá Jón
Gnarr borgarstjóra,
Sunnu Ben, útvarpskonu
á X-inu, og Björk Guð-
mundsdóttur tónlistarkonu.
Þá mátti einnig sjá systurn-
ar Elínu, Elísabetu og Sig-
ríði Eyþórsdætur sem saman
skipa hljómsveitina Sísý Ey, í
góðu yfirlæti.
Hugmynd að greiðslu úr bókinni Lokkar.
H
erraföt eru bara eitt-
hvað sem er í DNA-inu
mínu og ég hef sakn-
að þess að gera herra-
föt þar sem ég hef meira
og minna verið að skoða blúnd-
ur og perlur undanfarin miss-
eri fyrir Freebird,“ segir Gunn-
ar Hilmarsson fatahönnuður. „Ég
var fenginn til að vinna fyrir Kor-
mák og Skjöld og ég veit ekkert
skemmtilegra en að sitja fyrir há-
degi og drekka kaffi með þeim
og ræða lögun á tölum. Kaffið er
ágætt en félagsskapurinn frábær,“
segir Gunnar. Hann segir sam-
starfið hafa verið til fyrirmynd-
ar og að augljóst sé að þeir deili
sömu ástríðu hvað varðar gæði,
snið og söguna á bak við herrafatn-
að, sérstaklega áður en iðnaðar-
framleiðslan tók yfir. Gunnar
segir tíðarandann henta einstak-
lega vel hugmyndafræði Kormáks
og Skjaldar þar sem fyrirtækið sé
byggt upp á skemmtilegum hefð-
um og gildum. „Áður fyrr entust
föt svo lengi en hér í seinni tíð eru
flíkur oft of hannaðar og menn eru
bara orðnir eins og jólatré. Í dag
vill fólk ákveðin gæði fyrir pen-
inginn en það er eitthvað sem við
leggjum mikið upp úr,“ segir hann.
Nýja herra fatalínan var að mestu
unnin úr ítölskum efnum og fram-
leidd í Tyrklandi á sömu stöðum og
Armani og Paul Smith láta fram-
leiða sínar vörur. Kormákur Geir-
harðsson segir umræðurnar yfir
kaffibollanum snúast um hvernig
hægt sé að betrumbæta hönn-
unina og þróa grunnhugmynd-
ina til að hanna gæðaflíkur, sem
henta íslensku veðurfari, á skikk-
anlegu verði. „Við notum gömul
snið og klassískar hugmyndir en
það er alltaf eitthvert tvist í flík-
unum. Okkur hefur fundist tweed-
efnið heillandi og við erum ótrú-
lega sáttir við þróunina á hönnun-
inni með samstarfinu við Gunna,“
segir Kormákur og bætir við: „Í
skyrtulínunni okkar kennir einnig
margra grasa en við höfum verið
að prófa okkur áfram með þykk-
ari efni þannig að skyrturnar henti
jafn vel sem vinnuskyrtur.“
Meira um nýju herrafatalínuna á
Facebook undir Herrafataverzlun
Kormáks og Skjaldar.
TÍSKA TÍÐARANDINN HENTAR
HUGMYNDAFRÆÐI KORMÁKS OG SKJALDAR
Fatahönnuðurinn Gunnar Hilmarsson hannar nýja og spennandi herrafatalínu með tvíeykinu Kormáki og Skildi.
Kormákur, Skjöldur og Gunni.
Kormákur og Skjöldur.