Fréttablaðið - 13.12.2013, Qupperneq 40
FRÉTTABLAÐIÐ Tónleikar og heilsa. Jóladressið. Aníta Briem. Skart og förðun. Hönnun og nudd. Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
4 • LÍFIÐ 13. DESEMBER 2013
Sjá fleiri myndir á
FLOTT FYRIR JÓLIN
Kápur
Áður 24.990
Nú 19.990 kr.
Kjólar
Áður 14.990
Nú 11.990 kr.
20% afsláttur af öllum vörum
um helgina
Desember er runninn upp, fullur
af skemmtilegum uppákomum og
veisluhöldum en jafnframt er þetta
tímabil sem margir kvíða. Sérstak-
lega þeir sem eiga í baráttu við
aukakílóin. Jólahlaðborðin, en
margir fara á 2-3 slík í desember,
auk aðventuveislanna í vinnunni og
jólabakstursins heima geta skapað
mikinn kvíða og stress fyrir einstak-
ling sem er umhugað um að halda
aftur af sér og passa upp á að
neyta ekki of margra hitaeininga.
Félagsleg pressa frá vinum og
vandamönnum um að smakka og
vera með er mikil og gerir fólki erf-
itt fyrir. Mörgum finnst einnig erf-
itt að finna sér tíma til þess að
mæta í ræktina og viðhalda heil-
brigðum lífsstíl. Af hverju ættum við
að hætta að næra og bæta líkam-
ann? Ekki hættum við að tannbursta
okkur þó að það sé mikið álag hjá
okkur.
10 góð ráð fyrir jólamánuðinn
1. Haltu þinni daglegu rútínu og
ekki sleppa úr máltíðum yfir dag-
inn.
2. Borðaðu mikið grænmeti og
hreint gæðakjöt.
3. Passaðu skammtastærðirnar,
notaðu lítinn disk, veldu á diskinn
það sem þú telur hollt/betri kost.
4. Drekktu vel af vatni yfir daginn,
vatn fyllir magann og eykur grunn-
brennsluna.
5. Áfengi er hitaeiningaríkt, í einu
rauðvíns- eða hvítvínsglasi eru um
110-130 hitaeiningar, ekki bæta
á þig fljótandi og innihaldslausum
hitaeiningum, vandaðu valið!
6. Skrifaðu niður raunhæf mark-
mið í jólamánuðinum og límdu upp
á ísskáp. Það heldur okkur betur
við efnið.
7. Ef þú ert að fara í jólahlaðborð
um kvöldið, borðaðu léttan há-
degisverð, grænmeti og ávexti yfir
daginn og drekktu vel af vatni.
8. Ekki fara í megrun, hreyfðu þig
frekar meira.
9. Ekki halda að allt sé ónýtt þó
að þú eigir einn slæman dag, það
er 31 dagur í desember.
10. Passaðu magnið af óhollust-
unni sem þú setur í matinn þinn,
það er hægt að minnka smjörið,
sykurinn og hveitið sem við notum
mikið í jólamánuðinum. Maturinn
og kökurnar þurfa ekki að bragð-
ast neitt verr og okkur líður betur í
kjölfarið.
HEILSA TÍU
GÓÐ RÁÐ FYRIR
JÓLAMÁNUÐINN
Hægt er að njóta allsnægta um jólin með góðri samvisku
Tinna Arnardóttir.
TÓNLEIKAR ILMUR AF JÓLUM
Í GRAFARVOGSKIRKJU
Gestir skemmtu sér konunglega á tónleikum Heru Bjarkar og félaga í Grafarvogskirkju.
Hera Björk og Pétur Örn í góðum gír.
S
tandandi fagnaðarlæti
urðu í lok tónleikanna
Ilmur af jólum í troð-
fullri Grafarvogskirkju
þar sem Hera Björk,
Eyþór Ingi, Pétur Örn og Mar-
grét Eir komu fram með stór-
kór Lindakirkju, gospelröddum
og hjómsveit undir stjórn Óskars
Einarssonar.
Flutt voru lög af nýrri plötu
Heru, Ilmur af jólum 2, ásamt
lögum af þeirri eldri sem kom út
fyrir 13 árum. Til viðbótar voru
sungin þekkt jólalög. Þá komu
Eyþór Ingi og Pétur Örn fram og
fluttu lagið Ég á líf, ásamt kórn-
um, gospelröddunum og hljóm-
sveitinni svo fagnaðarlátunum
ætlaði aldrei að linna.
Eftir tónleikana myndaðist
löng röð í áritun hjá Heru Björk
sem flytur af landi brott fljótlega
eftir áramót.
Eyþór Ingi, Hera Björk og Margrét Eir komu fram á tónleikum í Grafarvogskirkju.
Óskar Einarsson var í miklu stuði.
„Hugsunin á bak við Ígló og Indí hefur verið að búa til föt sem
börn hafa fulla hreyfigetu í, föt sem eru litrík og glaðleg með
flottri grafík, því börn tengja svo mikið við myndir,“ segir Guð-
rún Tinna Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Ígló & Indí. Hún segir
að þær Helga hafi uppgötvað að foreldrarnir, einkum mæðurn-
ar, hafi gríðarlega mikinn áhuga á að hafa systkini klædd í stíl,
sérstaklega þegar kemur að sparifötum. „Við tókum þá ákvörðun
fyrir tveimur árum að hanna sparilínuna okkar út frá svokölluðu
„systkinakonsepti“ þar sem fötin passa saman fyrir börn á aldr-
inum 0 til 12 ára,“ segir Guðrún Tinna og heldur áfram: „Nú hafa
náttfötin bæst í hópinn með eitt af uppáhaldsdýrunum okkar úr
Ígló & Indí-heiminum, sem er ljónið, en þau fást bæði fyrir stelp-
ur og stráka.“
Náttfötin fást í stærðunum 92/98 til 152/158 í verslun Ígló &
Indí í Kringlunni eða í vefversluninni igloandindi.com.
ÚLFUR OG YLFA NÁTTFÖTIN FRÁ
ÍSLENSKA BARNAFATAMERKINU ÍGLÓ & INDÍ
Guðrún Tinna Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Ígló & Indí, segir mæður
vilja hafa systkini í stíl, sérstaklega yfi r hátíðirnar.
Guðrún Tinna Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri
Ígló & Indí.
Sæt
systkini
í nátt-
fötum.