Fréttablaðið - 13.12.2013, Page 44
FRÉTTABLAÐIÐ Aníta Briem. Skart og förðun. Hönnun og nudd. Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
8 • LÍFIÐ 13. DESEMBER 2013
A
nita Briem býr í Los
Angeles með grísk-
ættuðum eiginmanni
sínum Constantine
Paraskevopoulus. Í
fjölda ára hefur hún sinnt leik-
konuferli sínum en um jólin eiga
þau hjónin von á frumburðinum.
Anita segir meðgönguna vera
stórbrotna reynslu og hlakkar til
að kynnast litla englinum sínum.
Til hamingju með óléttuna.
Hvenær áttu von á þér? „Takk
fyrir. Ég er sett á 28. desemb-
er, svo hún gæti í rauninni
komið hvenær sem er frá þess-
ari stundu. Hún er orðin svo stór
og sterk að hún ýtir líffærum
mínum til miskunnarlaust. Þetta
er allt alvöru núna. Litlir fætur
potast upp í rifbein.“
Hvernig hefur þér liðið á með-
göngunni? „Ég hef verið ótrú-
lega heppin. Ég fann fyrir smá
ógleði fyrst en síðan bara smá
þreytu einstöku sinnum. Ég get
tekið mér 10 mínútna „djúp-
svefns-kríu“ næstum því hvar
og hvenær sem er. Þegar ég var
í tökum á Fólkinu í blokkinni í
sumar festi ég oft djúpan svefn
á milli atriða, þá vissi enginn af
þessu enn og allir héldu ábyggi-
lega að ég þjáðist af drómasýki,“
segir hún og hlær.
Þetta barn er kraftaverk
Hefurðu fengið einhverja sér-
staka löngun í mat á meðgöng-
unni? „Ég fæ ekki nóg af korn-
fleksi. Stundum vakna ég um
miðja nótt að drepast úr hungri
og verð að fara og fá mér korn-
fleks með ískaldri mjólk. Þetta
er alveg orðið vandamál. Svo er
ég frekar sjúk í ávexti og hangi
stundum aðeins í ávaxtadeildinni
í búðinni til að njóta ilmsins af
ferskum fíkjum og ferskjum.“
Er meðgangan eitthvað í lík-
ingu við það sem þú bjóst við?
„Ég er orðlaus næstum daglega
yfir öllu því sem líkami minn
er að gera. Þetta er margfalt
meira undur en ég gat ímyndað
mér. Svo hefur þetta líka verið
ánægjulegra. Mig langaði lengi
til að búa til barn en var mjög
hikandi og áhyggjufull yfir að
kippa mér svona af markaðinum.
Ég hef unnið alveg rosalega hörð-
um höndum að mínum ferli til að
geta klifið hærra og haft meira
frelsi til að velja mér leikstjóra
til að vinna með og verkefni sem
hafa virkilega merkingu fyrir
mig. Þó að ég hafi áorkað miklu
er þetta allt ósköp brothætt. En
þetta kraftaverk gaf mér þá gjöf
að sleppa aðeins óttanum og
kvíðanum. Maður fær bara að
vera barnshafandi í fyrsta skipti
einu sinni og ég ætla ekki að
leyfa neinum að taka frá mér þá
stórbrotnu upplifun.“
Amerískt gjafaregn
Hefurðu upplifað eitthvað
óvenjulegt á þessum tíma?
„Almenna kurteisi og tillits-
semi sem maður finnur á allt
annan hátt þegar maður er sýni-
lega óléttur. Svo upplifði ég al-
vöru amerískt „baby shower“.
Vinkona mín hélt veislu fyrir
mig og var hún líkust brúðkaups-
veislu. Ég vildi endilega hafa
bæði stelpur og stráka því ég hef
alltaf verið mjög óttaslegin yfir
þessum „barnasturtum“ sem þú
sérð í bíómyndunum. Það eina
sem ég bað um var að strákarnir
mættu vera með og nóg væri til
af áfengi svo við gætum nú hald-
ið gott partí. Mamma kom ásamt
Evu Ásrúnu, bestu vinkonu sinni,
(sem var líka ljósmóðir mömmu
og tók á móti mér) og þær héldu
uppi stuðinu fram á kvöld með
söng og kennslustund í íslenskum
drykkjusiðum.“
Veistu kynið? „Við eigum von
á lítilli dömu.“
Fórstu í 3D-sónar sem er svo
vinsælt? „Já, ég bað reyndar ekki
um það en þeir gerðu það bara
óumbeðnir. Fyrst um 20 vikur
þar sem hún leit út eins og gam-
all krumpaður karl, og svo núna
aftur nýlega þar sem dásamlega
litla andlitið hennar og gígan-
tísku varirnar hennar færðu for-
eldrum hennar mikinn létti og
gleði. Við fengum meira að segja
vídeó af henni í 3D þar sem hún
er að naga á sér handarbakið.
Þetta litla vídeó getur lyft hjart-
anu til tunglsins í hvaða kringum-
stæðum sem er.“
Eruð þið hjónin búin að velja
nafn? Kannski íslenskt nafn?
„Við erum ekki búin að velja
nafn ennþá en erum komin með
nokkur í úrslit. Þetta er gríðar-
lega mikið ábyrgðarstarf. Það
er mér mikilvægt að nafnið sé
íslenskt og við viljum gjarnan
fi nna nafn sem virkar bæði á ís-
lensku og grísku þar sem barns-
faðir minn er af grískum upp-
runa. Svo þarf það líka að vera
eitthvað sem auðvelt er að bera
ANITA MEÐGANGA ER MEIRA
UNDUR EN ÉG GAT ÍMYNDAÐ MÉR
Anita Briem leikkona býr í Hollywood og hefur unnið hörðum höndum að frama sínum þar ytra. Á næstu vikum tekst hún á við stærsta hlutverk sitt
hingað til, sem móðir. Lífi ð ræddi við Anitu um framann, brenglaða móðurímynd í Hollywood og draumabarnið sem er á leiðinni.
Uppáhalds
Anita Briem er
stórglæsileg
verðandi
mamma.
NAFN
Anita Briem
ALDUR 31
STARF
Leikkona
HJÚSKAPARSTAÐA
Gift
En óvissan fylgir
svoldið þessu lífi
sem ég hef kosið
mér og ég verð
bara að lifa líf-
inu af hugrekki
en ekki í áhyggju-
kasti yfir hvað
gerist næst. Það
er hægt að sóa
hálfu lífi í áhyggj-
ur og missa af
öllu því mikil-
væga á meðan.
Ég veit ég myndi
sjá eftir því að
lifa svoleiðis.
MATUR
Sushi, Dan Tanas steik, harð-
fiskur, silungur og íslenskt lamb.
Grænkál, brokkólí og rauðrófur.
DRYKKUR
Malt er í uppáhaldi, kaldur bjór,
grískt hvítvín, vatn og lífræn
nýmjólk.
VEITINGAHÚS
Allir veitingastaðirnir í nýja hverf-
inu mínu.
VEFSÍÐA
thedailyshow.com til að byrja
daginn hlæjandi og ruv.is til að
horfa á Kastljós.
VERSLUN
Amazon.com, Free People,
West Elm og The Pump Station.
HÖNNUÐUR
Harpa Einarsdóttir, Stella
McCartney.
HREYFING
Ég er ónýt ef ég geri ekki jóga á
hverjum degi.
DEKUR
Hand- og fótsnyrting. Stund-
um í kóreskt baðhús þar sem ég
baða mig bæði í heitum pott-
um og ísköldum laugum til skipt-
is svo er allur líkaminn skrúbb-
aður í bak og fyrir af kóreskum
konum í svörtum blúndunærfötum
og að lokum er ég svo böðuð
upp út mjólk. Einstaklega mögn-
uð reynsla.
IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk.
opið til 22 alla daga.