Fréttablaðið - 13.12.2013, Page 45
FRÉTTABLAÐIÐ
LÍFIÐ 13. DESEMBER 2013 • 9
Haldið upp á 17 ára afmæli Katrínar systur minnar. Mynd tekin úr „baby shower“ veislunni. Anita Briem að leika í Fólkinu í blokkinni í sumar.
Myndaalbúmið
fram á enskri tungu – sem sagt
nærri ómögulegt. Við ætlum að
halda því okkar á milli þangað til
hún fæðist, og þá verður hún sú
fyrsta sem heyrir nafnið sitt.“
Einmanaleg ólétta í L.A.
Ertu þá búin að vera á fullu
í hreiðurgerð? „Við vorum að
kaupa hús og erum þessa dagana
að rífa niður veggi og leggja gólf.
Mig sárlangar að byrja á alvöru
hreiðurgerð, þvo og strauja fötin
hennar og hengja upp glugga-
tjöld en það bíður í nokkra daga
í viðbót. Nú eigum við allavega
rosa sætan garð þar sem hún
getur hlaupið um og haldið teboð
í framtíðinni.“
Hvernig er að vera ólétt í
Hollywood? „Pínu einmanalegt.
Engin af vinkonum mínum hér
á börn. Ein var að láta frysta úr
sér egg, hún er það næsta sem ég
kemst að eiga vinkonu með barn.
Stelpur hér bíða miklu lengur
til að sinna framanum svo mér
fi nnst ég svolítið einangruð hér.
Umboðsmennirnir mínir og lög-
fræðingur voru ótrúlega ánægðir
fyrir mína hönd og það var mik-
ill léttir. Ég var hrædd um að þeir
myndu halda að ég myndi vera
svona amerísk mamma sem miss-
ir áhugann á vinnunni. Fólk hér
veit ekki hvers konar sjálfstæði
og töggur eru í íslensku kven-
fólki.“
Líta konur í Hollywood jafn-
vel öðruvísi á barneignir, nú
þegar margir þekktir eru farn-
ir að eignast fullt af börnum eins
og Brad Pitt og Angelina? „Já, ég
held að ímyndin hafi breyst frá
því að það að eignast börn geri
konur eldri og þær séu bara tekn-
ar af kjötmarkaðnum yfi r í að það
geri konur enn kvenlegri og kyn-
þokkafyllri fyrir vikið. Í rauninni
nær íslenskum hugsunarhætti,
guði sé lof.“
Talandi um framann, get-
urðu tekið þér almennilegt fæð-
ingarorlof? „Það er ekkert til
sem heitir fæðingarorlof í þess-
um bransa þar sem ég er bara
ráðin í eitt verkefni eftir annað
og ekki með fastan vinnuveit-
anda. Pínu erfi tt að því leyti. En
óvissan fylgir svolítið þessu lífi
sem ég hef kosið mér og ég verð
bara að lifa lífi nu af hugrekki en
ekki í áhyggjukasti yfi r hvað ger-
ist næst. Það er hægt að sóa hálfu
lífi í áhyggjur og missa af öllu
því mikilvæga á meðan. Ég veit
ég myndi sjá eftir því að lifa svo-
leiðis.
Ég hef verið mjög meðvituð
um að halda mér í góðu formi á
meðgöngunni til að auðvelda mér
að komast aftur í form. Það þarf
að gerast ansi hratt og ég reikna
með og stefni á að vera komin
aftur í „action“ sirka mánuði
eftir fæðingu.“
Ég vil áorka
hlutum sem hún
getur verið stolt
af. Mikilvægi þess
að hún sé stolt
af mömmu sinni
heldur mér vak-
andi á nóttunni.