Fréttablaðið - 13.12.2013, Qupperneq 48
FRÉTTABLAÐIÐ Skart og förðun. Hönnun og nudd. Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
12 • LÍFIÐ 13. DESEMBER 2013
Svava Halldórsdóttir hefur opnað nýja netverslun, Brother&Sister, sem selur
einstök viðarúr. Verslunin leggur áherslu á umhverfisvernd og gróðursetur tré
fyrir hvert selt úr. „Við erum í samstarfi við Skógræktarfélag Hafnarfjarð-
ar sem gróðursetur tré fyrir okkur í nafni verslunarinnar fyrir hvert selt úr.
Úrunum fylgir GPS-netkóði sem vísar viðskiptavinum á staðsetningu trés-
ins sem gróðursett hefur verið fyrir nýja úrið. Framleiðandur WeWood-úr-
anna í Bandaríkjunum gróðursetja einnig eitt tré fyrir hverja sölu,“ segir
Svava glöð í bragði. Úrin hafa vakið mikla athygli erlendis og hafa stjörnur
á borð við Paris Hilton og Colin Firth sést með þau. „Við opnuðum um síð-
ustu helgi og viðtökurnar voru rosalega góðar. Við erum langt komin með að
klára fyrstu pöntunina og það lítur út fyrir að við þurfum að panta aftur fyrir
jólin, sem kemur okkur ánægjulega á óvart,“ segir Svava. Árstíðirnar setja
svip sinn á úrin og engin tvö eru nákvæmlega eins á litinn. „Það er mismunandi
litur á viðnum og fer hann eftir því á hvaða árstíð viðurinn var nýttur í úrasmíði.
Úrin koma í endurnýttum umbúðum og allt kynningarefnið og nafnspjöldin okkar eru einnig
prentuð á endurnýttan pappír.“
Í netversluninni brotherandsister.is fást að auki skartgripir frá spænska fyrirtækinu Depeapa.
„Hönnuður fyrirtækisins gerir allt sjálfur, endurnýtir tré í gerð skartgripa og fallegra hluta fyrir heimilið.“
● Þegar við erum komnar á besta
aldur verðum við að huga að
breytingum í förðun og leggja
áherslu á aðra hluti, eins og
að draga augun fram með
skyggingu og forðast mikla
liti. Nota frekar „smokey“ förð-
un og er alveg tilvalið að nota
fölsk augnhár sem eru hálf og
mjög auðvelt er að setja sjálfar
á með Duo-lími sem er sérstakt
lím fyrir augnhár.
● Farðann eigum við að velja
vandlega og muna að fá ráð-
gjöf um réttan lit sem hentar
og nota fallega kinnaliti með
ferskjulit til að ná fram frísk-
legu útliti eða sólarpúður og
gott er að venja sig á að fara
yfir skilin á eftir með farða-
burstanum til að koma í veg
fyrir skörp skil. Gott er að
minnka púðurnotkun þar sem
púður kallar fram allar fínar
línur og nota það í hófi.
● Varalitinn eigum við að velja
eftir okkar eigin tilfinningu
og ekki láta ráðleggja okkur
liti sem við notum ekki nema
þetta eina skipti. Fjárfesta frek-
ar í nýjum varalitablýanti sem
breytir gamla góða varalitnum
og glossi yfir.
● Jólaförðunin í ár eru dökk
augu með „smokey“ förðun
og rauðar varir, klassískt jó-
laútlit sem allar konur geta
notið, tilvalið að fá aðstoð við
að finna sinn rétta rauða lit
en allar konur eiga að geta
fundið rauðan lit sem hentar
þeim, því mismunandi styrk-
leikar og tónar eru til sem
hægt er að velja úr.
FÖRÐUN Á 5 MÍNÚTUM
YFIR Í KVÖLDFÖRÐUN
Kristín Stefánsdóttir, höfundur bók ar innar Förðun, skref
fyrir skref, ráðleggur konum á besta aldri.
SKART TÖFF ÚR Í ÞÁGU
NÁTTÚRUVERNDAR
Keyptu viðarúr í netversluninni brotherandsister.is og Skógræktin gróðursetur tré.
Svona lítur Fimm mínútna förðun út. Kvöld-galaförðun með fölskum augnhárum.
Dökk augu með grárri og „beige“ skyggingu og rauðar varir.
Svava Halldórsdóttir, eigandi netverslunarinnar Brotherandsister.is
Fræga fólkið hefur verið mjög hrifið af úrunum frá WeWood en bæði Colin Firth og Paris Hilton eiga slík.
Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir, einka-
þjálfari í World Class, hóf að keppa
í módelfitness árið 2009 og hefur
síðan rakað til sín verðlaunum en
hún er meðal annars Íslandsmeist-
ari, bikarmeistari og heimsbikar-
meistari í greininni.
Aðalheiður notar mikið af brúnku-
kremi til að ýta undir vöxtinn. „Það
gerir vöðvana sýnilegri og er ein
aðal ástæðan fyrir því að það er
notað jafn mikið í fitness og raun-
in er. Ég hef notað Brasilian Tan frá
því ég var sextán ára og ber það á
mig vikulega til að halda jöfnum lit
og frísklegu útliti allt árið. Vörurnar
frá Jan Tana nota ég svo í kringum
keppnir,“ segir Aðalheiður sem hefur
þegar hafið niðurskurð fyrir Arnold
Classic í Ohio í febrúar en hún varð
í öðru sæti á sama móti í fyrra. Aðal-
heiður stefnir ótrauð á toppinn en
sigur myndi tryggja henni atvinnu-
mannsskírteini í greininni.
Heildsalan AT-hús sér um inn-
flutning á Jan Tana og er framleið-
andi Brasilian Tan sem hefur verið
fáanlegt í þrettán ár og verið mest
selda brúnkukremið á markaðnum
frá upphafi. Það er mikið notað af
dönsurum, vaxtarræktarfólki og fólki
sem notar brúnkukrem yfir höfuð.
AT-hús hefur styrkt Aðalheiði frá
upphafi ferilsins. Hún segir Brasilian
Tan rauðtóna en Jan Tana gultóna.
„Jan Tana er aðallega hugsað fyrir
keppendur en undir merkjum þess
fást þó líka hefðbundin brúnkukrem,
svipuð Brasilian Tan.“
Þremur dögum fyrir keppni notar
Aðalheiður Jan Tana Skin Prep en
með því er líkaminn skrúbb-
aður hátt og lágt til að gera
húðina jafna og hreinsa burt
dauðar húðfrumur. Næstu
daga er Jan Tana Fast Tan
borið á í nokkrum lögum.
Að lokum er Jan Tana
Glaze sett yfir svo litur-
inn haldist og húðin fái
ljóma. Ef eitthvað mis-
ferst er svo alltaf hægt
að nota Glaze og svamp
til að stroka út.
Aðalheiður mælir hik-
laust með vörunum frá
AT-hús. „Þær lita ekki föt
en komi slikja í ljósan fatn-
að fer hún auðveldlega úr
í þvotti.“ Aðalheiður segir
alls ekki ráðlegt að fara í
ljós. „Kremin gefa mun
betri árangur og fara miklu
betur með húðina.“
Þess má geta að allir keppendur í
Ungfrú Ísland 2013 notuðu Brasili-
an Tan og var Brasilian Tan-stúlk-
an valin í fyrsta skipti. Þá nafnbót
fékk Hildur Karen Jóhannsdótt-
ir. Brasilian Tan verður framveg-
is fáanlegt víðar en á Íslandi en
nýlega var gerður samningur
við Kris J. sem mun dreifa
vörunni í Bretlandi. Eins
liggur fyrir samningur
við Skandinavian Tan.
Nánari upplýsingar á
www.heilsa ogutlit.is.
Jan Tana fæst í Lyfju
og Fjarðkaup og Brasilian Tan
fæst í Hagkaup, Fjarðarkaup og
apótekum.
Hér er Aðalheiður með brúnku-
krem og glans frá Jan Tana sem
hún notar til að gera vöðvana
sýnilegri.
Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir snyrtifræðingur er Íslands- bikar- og heimsbikarmeist-
ari í módelfitness.
AUGLÝSING: AT-hús kynnir
EITT VINSÆLASTA
BRÚNKUKREMIÐ
Módelfitnesskeppandinn Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir notar Brasilian
Tan-brúnkukrem og vörur frá Jan Tana þegar hún keppir.