Fréttablaðið - 13.12.2013, Qupperneq 50
FRÉTTABLAÐIÐ Hönnun og nudd. Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
14 • LÍFIÐ 13. DESEMBER 2013
Nýleg bambus-nuddmeð-
ferð sem hefur notið mik-
illa vinsælda um allan
heim er komin til Íslands.
„Við fórum tvær til Lond-
on á námskeið til að
læra þetta nudd og
vorum strax alveg heill-
aðar. Sjálf er ég sérstak-
lega hrifin af svona heit-
um meðferðum þar sem
mér finnst þær vinna
mjög vel á vöðvabólgu
og stífum vöðvum. Hitinn
er róandi og nuddþeg-
inn nær djúpri slökun.
Bambusnudd er einstök
upplifun,“ segir Ágústa Kristjánsdóttir, eigandi snyrtistofunnar Ágústu.
„Nudd hefur verið notað í gegnum aldirnar til að vinna á meinum
og viðhalda góðri heilsu. Í þessu nuddi mætast vestrænar og aust-
rænar nuddaðferðir og útkoman er áhrifarík.“ Ágústa segir nudd-
þegann fá nudd á allan líkamann með heitum bambus sem gefur
djúpt og áhrifaríkt nudd. Nuddarinn rúllar bambusnum eftir líkaman-
um með sérstakri tækni sem er afskaplega slakandi og róandi. Hitinn
af bambusnum er róandi og nuddið sjálft er slakandi, sem dregur úr
streitu og þreytu. Bambusinn örvar alla starfsemi líkamans og eykur
súrefnis- og blóðflæði til húðarinnar. „Þessi meðferð er fyrir alla sem
vilja fá jafnvægi á líkama og sál með djúpu og heitu nuddi, en þetta
er líka góð dekurgjöf í jólapakkann,“ segir Ágústa.
Nánari upplýsingar um bambusnuddið er að finna á
snyrtistofanagusta.is.
HEILSA
HIMNESKT BAMBUSNUDD
SEM DREGUR ÚR STREITU
OG VEITIR VELLÍÐAN
Ágústa Kristjánsdóttir segir nuddið unaðslegt.
É
g stofnaði fyrirtækið mitt,
Dimmblá, snemma á þessu ári
og hannaði fyrstu fatalínuna
með norðurljósin sem þema
því þau eru glæsilegt sjónar-
spil í einstakri náttúrufegurð Íslands,“
segir Heiðrún Ósk Sigfús dóttir, fram-
kvæmdastjóri hjá Dimmblá.
Fatalínan kemur á markað innan
skamms en hún varð að veruleika í
samstarfi við landslagsljósmyndar-
ann Sigurð Hrafn Stefnisson en ljós-
myndir hans af norðurljósunum eru
prentaðar á flíkurnar. „Það er mik-
ill heiður að fá að nota myndir Sigurð-
ar í fyrstu línu Dimmblár því hann er
talinn meðal þeirra fremstu á þessu
sviði á Íslandi,“ segir Heiðrún Ósk.
Hún segist bera mikla umhyggju fyrir
íslenskri náttúru og telur mjög dýr-
mætt að Íslendingar eigi ósnortna
náttúru. Verkefni af þessu tagi kost-
ar skildinginn og því hefur Heiðrún
Ósk óskað eftir aðstoð frá velunnur-
um til að greiða niður framleiðslu-
kostnaðinn. Hægt er að styrkja verk-
efnið á hópfjármögnunarvefsíðunni
Karolina Fund til 31. desember. „Þetta
er frábær leið fyrir lítil fyrirtæki
sem eru að hefja rekstur til að fjár-
magna verkefnin sín. Þeir sem styrkja
Dimmblá um ákveðna upphæð geta
valið sér flík úr nýju fatalínunni svo
að þeir sem styrkja mig eru jafnframt
að tryggja sér flík úr þessari fallegu
fatalínu.“
TÍSKA NÝ FATALÍNA MEÐ LJÓSMYNDUM AF
ÍSLENSKRI NÁTTÚRU Í VERSLANIR Á NÆSTUNNI
Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir óskar eftir styrk fyrir fyrstu fatalínunni frá vörumerkinu Dimmblá.
Hluti af ágóð-
anum af sölunni
mun renna til
Landverndar sem
stendur vörð um
íslenska náttúru.
Nánar um verkefnið á
karolinafund.com og
dimmbla.is
Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir,
framkvæmdastjóri hjá
Dimmblá.
Á flíkunum eru myndir af norðurljósunum. Fyrirsæta: Ásdís Svava Hallgrímsdóttir. MYNDIR/ ATLI MÁR HAFSTEINSSON
Fallegar gjafir og sérvara fyrir fjölskyldu og vini
fást hjá okkur. Erum við gömlu höfnina í Reykjavík.
Allir fá þá eitthvað fallegt
Hönnuður: Hendrikka Waage Hönnuður: Jón Ólafsson Hönnuður: Linda Húmdís
Hönnuður: Varma Hönnuður: SveinbjörgHönnuður: Kristín Þ. Helgadóttir
Geirsgata 5c | 101 Reykjavík | Sími: 522 777 | facebook.com/OldHarbourSouvenirs