Fréttablaðið - 13.12.2013, Síða 52

Fréttablaðið - 13.12.2013, Síða 52
Lífi ð FRÉTTABLAÐIÐ Helgarmaturinn og Spjörunum úr. HELGAR MATURINN MEXÍKANSKT PICADILLO Sólveig Guðmundsdóttir rekur veitingastaðinn Culiacan og hefur alltaf haft áhuga á hollum og góðum mat. Hún kynnt- ist mexíkóskri matar- gerð í Denver í Colorado þegar hún var að læra iðnhönnun. Hún segir fjölskylduna elska mexí- kóskan mat sem gott er að eiga í ísskápnum að grípa í. 1 kg nautahakk (eða nauta- og grísahakk) 2 hvítlauksrif 1 stór laukur 2 dósir tómatar kubbaðir 2,5 dl nautasoð (vatn og teningur) 1 ½ dl rúsínur 1 ½ dl möndluflögur 2 msk. tómatpúrra 1 msk. kanill 1 msk. cumin 1 msk. kóríander ½ msk. chiliflögur 1 tsk. cayennepipar 1 ½ tsk. salt og ½ tsk. pipar ½ dl rauðvínsedik Ferskt kóríander (má sleppa) Léttsteikið hakkið með lauknum og hvítlaukn- um. Setjið kryddin út í og steikið þau aðeins með hakkinu. Restinni af inni- haldi er hellt út á og látið malla í ca. 30 mínútur. Dreifið ferskum kóríander yfir rétt áður en borið er fram (má sleppa). Þessi kássa er rosalega góð með tortillum. Hægt er að hafa t.d. ferskt salsa, sterka eða milda sósu, ost og sýrðan rjóma með. Svo er auðvitað æðislegt að hafa nachos og ostasósu með þessu. Uppskrift á culiacan.is.í Hvern faðmaðir þú síð- ast? Mína yndislegu móður. En kysstir? Ég kyssti kær- ustuna mína. Hver kom þér síðast á óvart og hvernig? Þegar Danni bassaleikari mætti rakaður í morgun. Hann var búinn að heita því að raka ekki af sér skeggið (glerkuntuhýjunginn) út árið. Hvaða galla í eigin fari ertu búinn að umbera allt of lengi? Líklega er það óþolinmæði, hún hjálp- ar víst ekki. Ertu hörundsár? Já, lík- lega innst inn við beinið. Dansarðu þegar enginn sér til? Nei. Hvenær gerðirðu þig síðast að fífli og hvern- ig? Ég virðist oft lenda í því að heilsa fólki sem tekur ekki eftir því og stend eins og fífl með útrétta höndina óþægi- lega lengi. Þetta veldur kjánalegri vanlíðan bæði hjá mér og viðstöddum sem taka eftir þessu. Hringirðu stundum í vælubílinn? Já, einu sinni eða tvisvar. Tekurðu strætó? Já, en ekki nógu og oft. Hvað eyðirðu miklum tíma á Facebook á dag? Ég er ekki persónulega á Face book en hljómsveitin er með síðu og við reynum að vera virkir þar. Ferðu hjá þér þegar þú hittir fræga eða heils- arðu þeim? Ætli ég heilsi ekki án þess að fólk heyri það eða taki eftir því og fari þá hjá mér. Lumarðu á einhverju sem fáir vinir þínir vita um þig? Ég tala dönsku reiprennandi. Hvað ætlarðu alls ekki að gera um helgina? Verða mér til skammar. Jökull Júlíusson ALDUR: 23 STARF: Tónlistarmaður ...SPJÖ RU N U M Ú R FYRIR AÐSTOÐ INNANLANDS gjofsemgefur.is 9O7 2OO2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.