Fréttablaðið - 13.12.2013, Síða 66
13. desember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 42
„Ég ólst upp við það austur á Hér-
aði að klukkan sex á aðfangadag
var Mahalia Jackson sett á fóninn
og þá voru jólin komin,“ segir Est-
her Jökulsdóttir söngkona, sem sjö-
unda árið í röð efnir til tónleika í
Fríkirkjunni í Reykjavík þar sem
hún syngur lög sem Mahalia Jack-
son hljóðritaði.
„Ég syng aðallega lög af plötunni
Silent Night,“ segir Esther. „En svo
eru líka nokkur lög af I believe og
You‘ll never walk alone.“
Esther segir tónleikana tvískipta,
fyrrihlutinn sé almennt gospel
en í seinnihlutanum sé svifið inn
í jólin. „Þetta byrjaði nú bara
vegna þess að Silent Night er mín
uppáhaldsplata og Mahalia á svo
stóran sess í hjarta mér,“ svar-
ar hún spurð hvað hafi ýtt verk-
efninu af stað. „Ég hef lengi verið
viðloðandi gospel en hef samt
aðallega sungið blús. Þetta tvennt
er náttúrulega mjög líkt og þótt
ég hafi menntað mig í klassísk-
um söng hafa blúsinn og gospelið
eiginlega alveg tekið yfir.“ Esther
hefur reyndar líka sungið rokk,
folk-músík og kántrí og byrjaði
meira að segja í pönkhljómsveit
fimmtán ára. „Það entist í tvö
ár,“ segir hún og hlær. „Þá fann
blúsinn mig og það var eiginlega
hann sem leiddi mig út í klassískt
söngnám.“
Á tónleikunum á mánudags-
kvöldið hefur hún stuðning kvart-
etts sem í syngja Björn Thor-
arensen tenór, Gísli Magna tenór,
Skarphéðinn Hjartarson tenór og
Örn Arnarson bassi. Meðspil er í
höndum einvala liðs hljómlistar-
manna þar sem Aðalheiður Þor-
steinsdóttir spilar á píanó, Scott
McLemore á trommur, Gunnar
Gunnarsson á Hammondorgel og
Gunnar Hrafnsson á kontrabassa.
Esther segir tónleikana vera
orðna fastan lið í undirbúningi
jólanna hjá mörgum. „Það eru
engin jól án Mahaliu og jólin
byrja sem sagt í Fríkirkjunni
klukkan 20.30 á mánudagskvöld.“
fridrikab@frettabladid.is
Engin jól án Mahaliu
Esther Jökulsdóttir söngkona heldur gospeltónleika í Fríkirkjunni á mánudaginn
þar sem hún syngur lög af plötum Mahaliu Jackson sem hún elskar. „Klukkan
sex var Silent Night sett á fóninn og þá voru jólin komin,“ segir hún.
ÚR PÖNKI Í
GOSPEL Esther
hefur sungið
eiginlega allar
tegundir tónlis-
tar, er klassískt
menntuð
í söng, en
blúsinn og
gospelið eiga
þó hjarta
hennar.
Jólatónleikar Söngfjelagsins
verða haldnir í Grafarvogskirkju
á morgun og á sunnudaginn.
Á efnisskránni verða þekkt og
sígild jólalög í bland við nýrri tón-
list frá ýmsum löndum.
Gestir Söngfjelagsins eru að
þessu sinni kórinn Vox Populi og
kvartettinn Mr. Norrington, Björg
Þórhallsdóttir sópran, Kristjana
Arngrímsdóttir alt og Ragnheiður
Gröndal, ásamt kammersveit
skipaðri einvala hljóðfæraleik-
urum. Stjórnandi er Hilmar Örn
Agnarsson.
Frumflutt verður nýtt jóla-
lag eftir Hreiðar Inga Þorsteins-
son tónskáld, sem samið var fyrir
Söngfjelagið af þessu tilefni, og
Ragnheiður Gröndal frumflytur
einnig nýtt jólalag.
Þetta er í þriðja sinn sem
Söngfjelagið heldur tónleika á
aðventunni. Er það í anda hefðar
sem Hilmar Örn skapaði í Skál-
holti en hann stóð árum saman
fyrir aðventutónleikum sem nutu
mikilla vinsælda þar um slóðir og
urðu ómissandi þáttur í tónlistar-
lífinu á aðventu. Söngfjelagið held-
ur nú þessu starfi áfram á höfuð-
borgarsvæðinu.
Tónleikarnir laugardaginn 14.
desember hefjast klukkan 17 en á
sunnudaginn 15. desember hefjst
þeir klukkan 18.
Flytja tvö ný jólalög
Söngfj elagið heldur sína árlegu jólatónleika um helg-
ina. Þar verður meðal annars frumfl utt nýtt jólalag
sem Hreiðar Ingi Þorsteinsson samdi fyrir félagið.
SÖNGFJELAGIÐ Jólatónleikar Söngfjelagsins verða haldnir í Grafarvogskirkju á
morgun og á sunnudaginn.
ht.is
HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ S: 414 1740 • EYRARVEGI 21 SELFOSSI S: 480 3700 • GARÐARSBRAUT 18A HÚSAVÍK S: 464 1600 • GLERÁRGÖTU 30 AKUREYRI S: 460 3380 • KAUPVANGI 6 EGILSSTÖÐUM S: 414 1735 • SUÐURLANDSBRAUT 26 REYKJAVÍK S: 569 1500
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
YONANAS ÍSGERÐARVÉL
Yonanas 282700
Yonanas ísgerðarvél sem notar
allar gerðir af frosnum ávöxtum.
Auðvelt að hreinsa.
VERÐ
FRÁBÆRT VERÐ
12.995