Fréttablaðið - 13.12.2013, Síða 70

Fréttablaðið - 13.12.2013, Síða 70
13. desember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 46 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2013 Tónleikar 12.00 Í dag verða haldnir árlegir hádegisjólatónleikar í Háteigskirkju, sem eru einnig styrktartónleikar. Flutt verður hátíðleg jólatónlist af ýmsum flytjendum. Ágóði tón- leikanna verður notaður til að kaupa L-Z-BOY stóla fyrir fæðingardeild Landspítalans. Stólarnir koma að góðum notum fyrir verðandi foreldra sem og nýbakaða. 20.00 útskriftartónleikar Glódísar M. Guðmundsdóttur verða haldnir í Víðistaðakirkju. Hún útskrifast með Bmus-gráðu í píanóleik frá Listahá- skóla Íslands í janúar. 20.00 Sváfnir Sigurðarson skemmtir á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8. 21.00 Söngdjamm á Café Rosenberg. 22.00 Hljómsveitin In the Company of Men fagnar útgáfu smáskífunnar „A Very ITCOM Christmas“ með tón- leikum og hefur hún fengið hljóm- sveitina Icarus til að spila með sér á Bar 11. Aðgangur er ókeypis. Tónlist 23.00 Steed Lord DJ Set á skemmti- staðnum Park, Hverfisgötu 20. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is Hönnunarsjóður úthlutaði í fyrsta skipti til hönnuða og arki- tekta, ríflega 41 milljón króna, í gær. Alls hlutu 29 verkefni styrk auk þess sem veittir voru ferðastyrkir til þrettán verk- efna. Hæsta styrkinn hlaut Vík Prjónsdóttir, alls 3,8 milljónir. „Við erum rosalega þakklátar fyrir að hafa fengið styrkinn og þetta mun hafa gríðarlega mikið að segja fyrir okkur. Við sóttum um styrkinn til að geta farið í samstarfsverkefni við aðra hönn- uði. Annars vegar við tískuhús- ið JÖR og hins vegar við Hjalta Karlsson, sem er grafískur hönn- uður og rekur stofuna Karlsson- wilker í New York,“ segir Guð- finna Mjöll Magnúsdóttir, sem skipar hönnunarteymið Vík Prjónsdóttur ásamt þeim Bryn- hildi Pálsdóttur og Þuríði Rós Sig- þórsdóttur. „Við höfum fengið mikið út úr því að vinna með hönnuðum, þverfaglega. Þá gerast hlutir sem myndu annars ekki gerast ef við værum bara einar að vinna,“ segir Guðfinna jafnframt. Rúmlega tvö hundruð umsókn- ir bárust sjóðnum og var sótt um yfir fjögur hundruð milljónir, eða tífalda upphæðina sem var til skiptanna. „Fjöldi umsókna sýnir skýrt fram á þörfina á slíkum sjóði. Það er því bæði sjokkerandi og mikil synd að stjórnvöld sjái ekki ástæðu til að eyrnamerkja þetta fé áfram uppbyggingu í hönnun- arfaginu. Rannsóknir og þróun- arverkefni eru lífsnauðsynlegir þættir í uppbyggingu fagsins,“ segir Guðfinna, en útlit er fyrir að Hönnunarsjóðurinn verði lagður niður eftir sína fyrstu og einu úthlutun. olof@frettabladid.is Vík Prjónsdóttir hlaut hæsta styrkinn Fyrsta úthlutun Hönnunarsjóðs fór fram í gær. Rífl ega 41 milljón var úthlutað. FENGU 3,8 MILLJÓNIR Á bak við Vík Prjónsdóttur eru þær Þuríður Rós Sigþórsdótt- ir og Brynhildur Pálsdóttir ásamt Guðfinnu. MYND/ARI MAGG Þessir hlutu styrki yfir eina milljón: Vík Prjónsdóttir 3.800.000 kr. Studiobility ehf. 2.200.000 kr. Dögg Guðmundsdóttir 2.100.000 kr. Katrín Ólína Pétursdóttir 2.000.000 kr. Dagný Bjarnadóttir 2.000.000 kr. Signý Kolbeinsdóttir 2.000.000 kr. G. Orri Finnbogason 2.000.000 kr. María Kristín Jónsdóttir 1.800.000 kr. Anna Leoniak 1.500.000 kr. As We Grow ehf. 1.500.000 kr. Bryndís Bolladóttir 1.500.000 kr. Scintilla ehf. 1.500.000 kr. Steinunn Sigurd ehf. 1.500.000 kr. ÚTHLUTUN HÖNNUNARSJÓÐS Hönnunarsjóður veitir styrki til margvíslegra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs; þróunar og rannsókna, verkefna og markaðs- starfs auk sérstakra ferðastyrkja. Í ágúst síðastliðnum stóð hljóm- sveitin Of Monsters and Men ásamt Garðabæ fyrir opnum tón- leikum án aðgangseyris á Vífils- staðatúni. Aftur á móti var allur ágóði af sölu stuttermabola og geisladiska á tónleikunum látinn renna til Barnaspítala Hringsins. Of Monsters and Men ákvað að jafna þá upphæð sem safnaðist og gaf Barnaspítalanum eina milljón króna. Bolurinn sem seldur var á tón- leikunum sló svo rækilega í gegn að hljómsveitin leitaði leiða til að selja hann þeim sem ekki komust á tónleikana og þannig safna enn meiri peningum fyrir Barnaspít- alann. Bolurinn, sem er með mynd eftir tvö börn sem lágu á spítalanum, er nú til sölu í gegnum vefverslun Of Monsters and Men og í versluninni Sturlu við Laugaveg. Allur ágóði af sölu á bolnum fer óskiptur til Barnaspítalans. - glp Omam gerir góðverk Bolir sem seldir voru á tónleikum Omam til styrktar Barnaspítala Hringsins eru komnir í almenna sölu. GÓÐ OG GJAFMILD Hljómsveitin Of Monsters and Men gaf eina milljón króna til Barnaspítala Hringsins. NORDICPHOTOS/GETTY Miðasala er hafin á Málmmessu áratugarins sem sýnd verður í frá- bærum gæðum á sunnudaginn í Háskólabíói. Um er að ræða sýningu á mynd- og hljóðupptöku af tónleikum Skálmaldar, í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Karlakór Reykjavíkur, Kammerkórinn Hymnodiu og barnakór Kársnesskóla. Tónleikarnir fóru fram í Eldborg fyrir fullu húsi í lok nóvember. Mynd- og hljóðupptaka er væntanleg í verslanir á sambyggðum CD og DVD þann 17. desember og verður vísast í fjölmörgum jólapökkum þetta árið. Sýningin fer hins vegar fram klukkan 21.00 í sal 1 í Háskólabíói að kvöldi sunnudagsins 15. desember. - glp Málmmessa áratugarins í bíó Í HÁSKÓLABÍÓI Upptaka af tónleikum Skálmaldar í samstarfi við Sinfóníu- hljómsveit Íslands verður sýnd í Háskólabíói á sunndaginn . FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is NÝR BÆKLINGUR STÚTFULLURAF ÓTRÚLEGUM TILBOÐUM 8BLS SMELLTUÁ KÖRFUNANETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPP
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.