Fréttablaðið - 13.12.2013, Qupperneq 82
13. desember 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 58
Ég tók minnst fjög-
ur flug í hverjum mán-
uði. Það tekur rosalega
orku frá manni.
Ásdís Hjálmsdóttir
spjótkastari
EM HÓPURINN 2013
MARKVERÐIR:
Aron Rafn Eðvarðsson Guif
Björgvin Páll Gústavsson Bergischer
Daníel Freyr Andrésson FH
Hreiðar Levý Guðmundsson Nötteroy
AÐRIR LEIKMENN:
Ásgeir Örn Hallgrímsson PSG
Árni Steinn Steinþórsson Haukar
Atli Ævar Ingólfsson Nordsjælland
Aron Pálmarsson Kiel
Alexander Petersson Rhein-Neckar Löwen
Ernir Hrafn Arnarson Emsdetten
Arnór Atlason St. Raphael
Bjarki Már Gunnarsson Aue
Guðjón Valur Sigurðsson Kiel
Bjarki Már Elísson Eisenach
Snorri Steinn Guðjónsson GOG
Ólafur Andrés Guðmundsson Kristianstad
Ólafur Bjarki Ragnarsson Emsdetten
Róbert Gunnarsson PSG
Arnór Þór Gunnarsson Bergischer
Ólafur Gústafsson Flensburg
Guðmundur Árni Ólafsson Mors-Thy
Gunnar Steinn Jónsson Nantes
Sverre Jakobsson Grosswallstadt
Stefán Rafn Sigurmannsson RN Löwen
Rúnar Kárason Hannover-Burgdorf
Kári Kristján Kristjánsson Bjerringbro-Silkeborg
Vignir Svavarsson Minden
Þórir Ólafsson Kielce
Landsliðið kemur saman til æfinga 28. desember.
Liðið spilar svo á æfingamóti í Þýskalandi gegn
heimamönnum, Austurríki og Rússlandi dagana 3.,
4., og 5. janúar
HANDBOLTI „Það eru góð nöfn í
þessum hópi og það er að koma
spenningur,“ segir Aron Krist-
jánsson, landsliðsþjálfari karla,
en hann tilkynnti í gær hvaða 28
leikmenn geta spilað með Íslandi
á EM í janúar.
Aðeins 16 munu fara með liðinu
til Danmerkur og æfingahópurinn
fyrir mótið verður með um 20 leik-
mönnum.
„Það eru ákveðin spurninga-
merki eins og með Alexander en
það skýrist eftir helgi hvort hann
verður með okkur á EM. Arnór
Þór er að koma aftur eftir meiðsli
og svo er Vignir reyndar meiddur
líka. Við sjáum hvernig það fer.“
Alexander Petersson fór á kost-
um með Rhein-Neckar Löwen gegn
Kiel á miðvikudag. Engu að síður
er öxlin á honum ekki góð þó að
hann spili mikið með Löwen þessa
dagana.
Það er taugatrekkjandi tími
fram undan fyrir landsliðsþjálfar-
ann en hann vonast eftir því að fá
sína leikmenn heila heilsu í verk-
efnið.
„Ég krosslegg fingur fram
að jólum og vona að allir haldi
heilsu.“ - hbg
Krosslegg fi ngur fram að jólum
Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari tilkynnti 28 manna EM-hóp sinn í gær.
ERFITT VAL Aron mun tilkynna æfingahóp sinn í næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FRJÁLSAR „Ég hef gaman af upp-
byggingartímabilinu. Það er
kannski ekki alveg að marka
mig. Mér finnst þessi erfiðis-
vinna ofboðslega skemmtileg og
nýt hennar í botn,“ segir Ásdís
Hjálmsdóttir. Spjótkastarinn
ver miklum tíma þessa dagana í
lyftingasalnum líkt og fjölmarg-
ir frjálsíþróttamenn þjóðarinn-
ar á undirbúningstímabilinu sem
stendur yfir frá hausti fram yfir
áramót.
„Ég er aðeins byrjuð í tækniæf-
ingum og að kasta spjótinu. Það
er ofboðslega gaman eftir hlé frá
köstunum.“
Ásdís býr í Zürich þar sem hún
æfir hjá þjálfara sínum, Terry
McHugh. Samstarf hennar við
Írann er tæplega ársgamalt og
hafa þau unnið í að breyta tækni
hennar á árinu.
Æfingarnar gengu betur en mótin
„Ég gerði mér grein fyrir því að
árið í ár yrði algjört spurninga-
merki, gæti farið hvernig sem er,“
segir Ásdís sem bætti Íslands-
metið í spjótkasti á Ólympíuleik-
unum sumarið 2012 með kasti
upp á 62,77 metra. Spjótið flaug
hins vegar aldrei yfir 60 metrana
á árinu þótt aðeins hafi munað
þremur sentimetrum í Stokkhólmi
í júní.
„Það gekk vel á æfingum en
undir pressu á mótum er svo auð-
velt að detta út úr því og fara að
gera það sem þú hefur vanið þig á
undanfarin tíu ár,“ segir Ármenn-
ingurinn. Sömuleiðis hafi sífelld
ferðalög á milli Íslands og Sviss
frá janúar fram á sumar tekið
sinn toll.
„Ég tók minnst fjögur flug í
hverjum mánuði. Það tekur rosa-
lega orku frá manni,“ segir Ásdís
sem flutti til Sviss í júní þar sem
hún hefur dvalið síðan. Mikill
munur sé að hafa þjálfara sinn á
öllum tækniæfingum ólíkt því að
hitta hann bara vikulega eins og
var fyrri hluta árs.
Komin í doktorsnám
„Það var rosalega mikið áreiti og
mikið að gerast í lífi mínu yfirhöf-
uð. Mér líður vel í rútínu og það er
gott að hún er komin aftur,“ segir
Ásdís sem hóf doktorsnám í ónæm-
isfræði við háskólann í Zürich í
nóvember. Hún starfar á húðsjúk-
dómadeildinni á háskólasjúkrahús-
inu og kann vel við sig.
„Þetta er mjög spennandi,“ segir
Ásdís en verkefni hennar snýr að
því að bæta ónæmismeðferð við
ofnæmi. Spjótkastarinn segir
henta sér vel að vera upptekin og
geta einbeitt sér að fleiru en íþrótt
sinni.
Get ekki setið heima og beðið
„Ég virka ekki ef ég er heima að
bíða eftir næstu æfingu,“ segir
Ásdís. „Ef þú gerir ekkert nema að
mæta á æfingar, hugsa um æfing-
ar og lífið snýst um það þá geturðu
fengið nóg einn daginn.“
Sömuleiðis geti meiðsli gert
vart við sig og ekkert sé verra en
að vera aðgerðarlaus og velta sér
upp úr meiðslum.
„Svo er um að gera að nýta tím-
ann og ná sér í menntun og vera
búin að öllu þegar íþróttaferlin-
um lýkur. Þá getur maður farið
að gera hvað sem mann langar til
að gera,“ segir Ásdís sem hlakk-
ar til næsta tímabils. Hápunktur-
inn er Evrópumeistaramótið sem
fer einmitt fram í Zürich í ágúst.
Ásdís hefur þegar náð lágmarkinu,
57,40 metrum, með köstum sínum
á árinu sem er að líða,
„Það er ansi hæpið að ég væri
að stressa mig á þessu lágmarki,“
segir Ásdís sem kastaði margoft
lengra á árinu. Líklegt er að Guð-
mundur Sverrisson, frjálsíþrótta-
maður ársins, verði einnig á meðal
keppenda. ÍR-ingurinn kastaði
80,66 metra síðastliðið sumar og
er til alls líklegur.
Guðmundur gerður úr stáli
Ásdís þekkir Guðmund vel og
fagnar árangri hans.
„Gummi hefur lent í miklum
meiðslum og alls kyns leiðind-
um. En það er þegar fólk lendir í
meiðslum sem maður sér úr hverju
það er gert. Þessi strákur er gerð-
ur úr stáli og það er frábært að sjá
hann uppskera.“
Ásdís kemur til Íslands í næstu
viku og verður í faðmi fjölskyld-
unnar fram yfir áramót. Hún mun
þó áfram æfa af kappi.
„Ætli það verði ekki bara frí á
aðfangadag, jóladag og gamlárs-
dag.“ kolbeinntumi@365.is
Ekkert verra en aðgerðarleysi
„Ég vissi að árið yrði algjört spurningamerki,“ segir spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir sem hyggur á nýja
sigra á nýju ári í íþróttinni. Hún býr nú í Sviss þar sem hún hefur hafi ð doktorsnám í ónæmisfræði.
EINBEITT Ásdís Hjálmsdóttir stefnir á þátttöku í Evrópumeistaramótinu í Zürich í
sumar, þar sem hún er nú búsett. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁNStúdíó – Hallgerði,
Nóatúni 17
Tímapantanir 561 5455
Allir velkomnir
Kv. Bjöggi klippari
Ég hef hafið störf á
Jakkaföt
frá kr. 19.980.
FÓTBOLTI Sænsku meistararn-
ir í LdB Malmö hafa farið fram
á að Glódís Perla Viggósdóttir
komi utan til æfinga í janúar.
Sara Björk Gunnarsdóttir og
Þóra Björg Helgadóttir spila með
Malmö.
„Hún er samningsbundin
okkur fram yfir tímabilið 2014.
Við ætlum ekki að láta hana fara
fyrir þann tíma,“ segir Einar
Páll Tamini, formaður meistara-
flokksráðs kvenna hjá Stjörn-
unni.
„Þeir leituðu til okkar og vildu
fá hana í skoðun,“ segir Einar
Páll. Hann telur sænska félagið
meðvitað um vilja Stjörnunnar til
að halda miðverðinum út næsta
tímabil. „Þeir vildu samt fá hana
og vilja væntanlega byggja upp
gott samband við hana.“ - ktd
Glódís eft irsótt
EFNILEG Glódís, sem er 18 ára, spilaði
tólf A-landsleiki á árinu. MYND/ÓSKARÓ