Fréttablaðið - 17.12.2013, Side 16

Fréttablaðið - 17.12.2013, Side 16
17. desember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 16 STJÓRNSÝSLA „Ráðuneytin virðast vera svo lítil og veikburða og undir það miklu álagi af ýmsu tagi að þau hafa í raun og veru mjög veikar for- sendur til að leiða stefnumótunar- vinnu á sambærilegan hátt og ráðu- neyti gera í nágrannalöndum okkar. Þess vegna verða þau berskjöld- uð fyrir þrýstingi hagsmunaaðila af ýmsu tagi,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmála- fræði. Ýtarlegur samanburður hans og Hauks Arnþórssonar stjórnsýslu- fræðings staðfestir að fyrstu drög atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytisins að lagafrumvarpi sem á að auka notkun á endurnýjanlegum orkugjöfum í samgöngum voru að stórum hluta skrifuð af hagsmuna- aðilanum Carbon Recycling Inter- national. Fréttablaðið fjallaði fyrst um málið 29. nóvember síðastliðinn. Þá kom fram að Carbon Recycling hafði frumkvæði að því að senda ráðuneytinu skjal sem innihélt til- lögu að lagafrumvarpinu, en fyrir- tækið framleiðir metanól sem má nota sem íblöndunarefni í bensín. „Samanburðurinn sýnir að útgangspunkturinn í drögum ráðu- neytisins er skjal sem samið var af fyrirtækinu og ráðuneytið leggur það tiltölulega lítið breytt í hend- ur vinnsluaðila, sérstaklega hvað lagatextann varð- ar,“ segir Gunnar. „ Þ e t t a e r sennilega óvenju- legt og örugglega óheppilegt. Það hefði verið eðli- legra ef ráðuneyt- ið hefði samið erindisbréf fyrir einhvern starfs- hóp um það hvað ætti að koma út úr vinnunni sem lýsti pólitískri for- gangsröðun og þeim kröfum sem væru gerðar til þeirrar vinnu, frek- ar en að gera einhverja tillögu frá fyrirtæki sem á verulegra hags- muna að gæta að útgangspunkti.“ Gunnar segir ekkert óeðlilegt við það þegar ráðuneyti taka upp ákveð- in mál fyrir tilstilli hagsmunaaðila. „Það sem er einkennilegt í þessu máli er að fyrirtækið semur tilbúið frumvarp, en ég kann engin önnur dæmi um slíkt.“ Gunnar segir íslensk ráðuneyti þurfa að þróa vandaðri vinnubrögð við faglegan undirbúning frum- varpa. Þar þurfi að vanda betur til bæði upplýsingaöflunar og mót- unar þeirra valkosta sem taka á afstöðu til. Slík vinna er að hans sögn mun frumstæðari hér á landi en í nágrannalöndum okkar. „Til þess að við almennir borg- arar getum treyst þeim ákvörð- unum sem teknar eru í samstarfi ríkisstjórnar og Alþingis þarf undir- búningsvinnan að vera vönduð og það er hlutverk ráðuneytanna að hafa forystu um það,“ segir Gunn- ar. haraldur@frettabladid.is Ráðuneytin varnarlaus gagn- vart þrýstingi hagsmunaaðila Prófessor í stjórnmálafræði segir íslensk ráðuneyti vera berskjölduð fyrir þrýstingi hagsmunaaðila af ýmsu tagi. Hann segir ráðuneytin þurfa að þróa vandaðri vinnubrögð við undirbúning frumvarpa. Ýtarlegur saman- burður staðfestir að fyrstu drög ráðuneytis að lagafrumvarpi voru að stórum hluta skrifuð af hagsmunaaðila. Þegar drög ráðuneytisins voru borin saman við tillöguskjal Carbon Recycling International (CRI) var notað forrit sem mælir hlutfall breytts texta. Þá kom í ljós að drög ráðuneytisins breyttust um 25 prósent miðað við tillögu skjal CRI. Lagatexti ráðuneytisins innihélt minni breytingar, eða 14,6 prósent, sem þýðir að ráðuneytið hefur sent þann hluta frá sér með litlum breytingum. Greinargerð frumvarpsins breyttist meira frá tillögum fyrirtækisins, eða um 29 prósent. ➜ Samanburðurinn STJÓRNARRÁÐSHÚSIÐ Gunnar Helgi segir ráðuneytin þurfa að þróa vandaðri vinnubrögð við gerð frumvarpa. GUNNAR HELGI KRISTINSSON KÍNA, AP Kínverjar ætla ótrauðir að halda áfram að senda geimför til tunglsins. Eftir vel heppnaða lendingu geimfarsins Chang‘e 3 á tungl- inu um helgina og rannsóknir með tungljeppanum Yutu kynntu Kínverjar í gær áform sín um að senda nýja flaug til tunglsins árið 2017. Í það skiptið er ætlunin að ná í jarðvegssýni og flytja þau aftur til jarðar. Bæði Xi Jinping forseti og Li Keqiang forsætisráðherra voru viðstaddir kynninguna í Peking, þar sem vísindamenn skýrðu frá því hve allt hefði heppnast vel um helgina. Þetta var í fyrsta skipti í 37 ár sem geimfar hefur lent á tungl- inu, en áður hafa bæði Banda- ríkjamenn og Rússar sent geim- för þangað. Þótt athygli Bandaríkjamanna beinist nú frekar að Mars hefur áhugi á tunglinu engan veginn minnkað. Japanir og Indverjar hafa á síðustu árum sent geim- för á braut umhverfis tunglið og bandarískt geimfar er enn að hringsóla kringum tunglið að kanna jarðveginn þar, hugsanlega til að undirbúa rannsóknarstöð á tunglinu síðar meir. - gb Hæstánægðir með tunglkönnun um helgina: Kínverjar boða fleiri ferðir til tunglsins FRÁ GEIMFERÐAMIÐSTÖÐINNI Í PEKING Vísindamenn fylgdust á sunnudag spenntir með geimfarinu og rannsóknartækjum á yfirborði tunglsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 2017 Kínverjar opinberuðu í gær áætlanir um að senda aðra geimfl aug til tunglsins árið 2017. Þá verða sótt jarðvegs- sýni og fl utt aft ur til jarðar. SVEITARSTJÓRNIR Bæjarstjórn Ísa- fjarðar hefur einróma ákveðið að taka eignarnámi einbýlishús sem stendur á snjóflóðahættusvæði á Seljalandsvegi. „Viðræður um kaup á fasteigninni hafa reynst árangurlausar,“ segir bæjarstjórn- in um ástæðu eignarnámsins. Ágreiningur um fjárhæð eignar- námsbóta fer fyrir matsnefnd eignarnámsbóta. Húsið er tæpir 190 fermetrar, byggt 1937. - gar Samkomulag náðist ekki: Flóðahús tekið eignarnámi ÍSAFJÖRÐUR Snjóflóðahætta er á Selja- landsvegi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SORPHIRÐA Reykvíkingar eru hvattir til að hreinsa snjó frá sorp- geymslum þá daga sem sorphirðu- menn eru að störfum. Í dag verður hirt sorp í Grafarvogi og á morgun í Vesturbænum. Á fimmtudag er sótt sorp í Miðbæinn og Hlíðar. Í tilkynningu borgarinnar segir að starfsmenn í sorphirðu hafi þurft að vinna lengur síðustu daga til að halda áætlun. Þá var unnið aukalega á laugardag. „Einnig er gott að athuga hvort hægt sé að opna hurðir að sorpgeymslum þar sem þær vilja frjósa fastar þegar ekki hefur verið mokað frá.“ - fb Tilmæli til Reykjavíkurbúa: Hvattir til að hreinsa snjóinn ÞINN STUÐNINGUR GERIR KRAFTAVERK Aðgangur að hreinu vatni er ekki sjálfgefinn. Hjálparstarf kirkjunnar gerir fólki kleift að byggja brunna í Afríku – og þitt framlag skiptir sköpum. Þú getur hjálpað núna með því að greiða valgreiðslu í heimabanka. EINNIG: Frjálst framlag á framlag.is Gjafabréf á g jofsemgefur.is Styrktarsími: 907 2003 (2.500 kr.) Söfnunarreikningur: 0334-26-50886, kt. 450670-0499 HREINT VATN BJARGAR MANNSLÍFUM PI PA R \ TB W A SÍ A

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.