Fréttablaðið - 17.12.2013, Side 26
17. desember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SKOÐUN | 26
Hópar lækna geysast
fram á ritvöllinn í þeim
tilgangi að ná eyrum fjár-
veitingavaldsins sem þeir
telja að nauðsynlegt til að
reisa við starfsemi LSH.
Þeir leggjast á eitt við að
lýsa eymdinni sem þar
ríkir og hvernig hún er
til komin. Í síðustu hóp-
grein lækna 22. nóvem-
ber sl. er aðgerðaráætl-
un í sex liðum lögð fram.
Áætlun sem aðrir eiga að
framkvæma strax annars? Höf-
undar höfða til þess að spítalinn sé
eign allra landsmanna, sennilega
í þeim tilgangi að leggja ábyrgð-
ina á okkar herðar. Mitt í þessari
umræðu stendur þjóðkirkjan fyrir
söfnun og fleiri láta hendur standa
fram úr ermum og færa spítalan-
um stórar fjárhæðir og tæki til að
bæta aðstöðuna. Landsmenn láta
spítalann sig varða. En hver er
ábyrgð starfsmanna og hvað ætla
þeir að gera í stöðunni?
Ég hef fylgst með málefninu
„öryggi sjúklinga“ í mörg ár og
átt í miður góðum samskiptum við
stjórnendur spítalans eftir alvar-
legt óhapp sem leiddi son minn til
dauða. Hvernig er staðan í örygg-
ismálum sjúklinga á LSH í raun
og veru? Þar sem ég hef fylgst
náið með langar mig að lýsa þess-
ari hlið á viðreisn spítalans.
Hættulegasti staður landsins
Í fyrsta lagi kom fram á ráðstefnu
um öryggi sjúklinga, í Hörpu 3.
september 2013, að óhöpp á LSH
leiða 170 manns á ári til dauða og
600 verða fyrir varanlegu tjóni en
samtals eru óhöppin 2.500 á ári.
Það má segja að LSH sé hættu-
legasti staður landsins. Sjálf veit
ég að verkefni við innleiðingu
atvikaskráningar hafa ítrekað
farið forgörðum vegna lélegrar
þátttöku. Annað sem fram kom á
ráðstefnunni var mikilvægi þátt-
töku sjúklinga í öryggi sjúklinga.
Það fer mjög hljótt um aðgerðir
í þessum efnum eftir ráðstefn-
una en sams konar ráðstefna var
haldin hér 2007 og ekkert breyt-
ist á milli þeirra. Almenningur og
stjórnvöld hafa enn enga formlega
aðkomu að vinnunni.
Í öðru lagi er staða á verk-
efninu „LEAN á LSH“ (gæðakerf-
inu LEAN á LSH) harla dapurleg.
Sem áhugamaður var ég forvit-
in enda er kerfið eitt það vinsæl-
asta í gæðamálum. Ég hlustaði á
erindi á um þetta þann
17. október sl. á LSH.
Þar kom fram að öryggi
sjúklinga er ekki á dag-
skrá verkefnisins fyrr en
eftir 2-3 ár, það síðasta sem á að
fara í. Af hverju er það aftast í röð-
inni? Einnig kom fram að hingað
til hefur LEAN-kerfi verið mest
notað til að taka til og endurraða
innanstokksmunum á skrifstofum
og vaktherbergjum spítalans. Í
þriðja lagi vil ég hvetja þig til að
horfa á Kastljós frá 4. desember
2012, en þar sagði framkvæmda-
stjóri lækninga um rannsókn spít-
alans á mistökum: „Í tilvikum sem
þessum þá er farið af stað í rann-
sókn alltaf með sama hætti. Það er
bara farið eftir ákveðnum reglum
og þessi tilvik eru bara skoðuð
nákvæmlega.“ Hann fullyrti að
alvarleg tilvik væru 5-10 á ári.
Athugaðu að hann segir að regl-
urnar séu í stöðugri endurskoð-
un. Ég hef í höndunum bréf frá
aðstoðarframkvæmdastjóra lækn-
inga LSH þar sem fram kemur að
þessar reglur séu ekki til og ekki
standi til að setja þær. Hvað var
framkvæmdastjórinn að reyna að
sannfæra okkur um?
Ég vil veg LSH sem mestan
og koma í veg fyrir dýrkeypt
óhöpp og óþarfa þjáningar.
Hvergi í ofangreindum skrifum
læknanna kemur fram hvernig
eigi að tryggja öryggi sjúklinga
en það ætti að vera fyrsti liður í
aðgerðaráætluninni. Það er verk-
efni starfsmanna en ekki almenn-
ings eða fjárveitingavaldsins. Það
er augljós tregða á LSH í að vinna
að öryggi sjúklinga og hljóma
umræddar greinar sem bjalla sem
ég bíð eftir að hljóðni því hún gerir
ekkert annað en að skera í eyrun.
Sjúklingar sækjast eftir virðingu
og umhyggju. Ég verð að sjá að
læknar beiti sér fyrir því að hefja
öryggi sjúklinga upp á æðra plan
og farið verði í að vinna mark-
visst að því að læra af mistökum
og klára slík mál með sóma. Þessu
verður að koma í gang strax svo
hægt verði að reisa Landspítalann
við fyrir alvöru.
Hin hliðin á
viðreisn LSH
Fjárhagsáætlun fyrir árið
2014 var samþykkt í bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar s.l.
þriðjudag. Grunntónn áætl-
unarinnar er kraftur og
uppbygging á sviði upplýs-
inga- og tæknimála, viðhaldi
mannvirkja, framkvæmda í
gatnagerð, fjölgun kennslu-
stunda og þjónustu.
Meirihluti Samfylking-
ar og Vinstri grænna hefur
lagt mikla áherslu á mark-
vissan undirbúning að end-
urfjármögnun lánasafns
sveitarfélagsins með stefnufestu
í fjármálastjórn eins og á öðrum
sviðum. Á kjörtímabilinu hefur
verið unnið að endurskipulagn-
ingu á fjármálum og rekstri sveit-
arfélagsins. Slík vinna er lykillinn
að hagkvæmri endurfjármögnun á
lánasafni sveitarfélagsins til lengri
tíma.
Engin hækkun á gjaldskrám
fræðslu- og fjölskylduþjónustu
Hafnarfjarðarbær leggur sitt
að mörkum til að draga úr verð-
bólgu og auka kaupmátt með því
að halda öllum gjaldskrám tengd-
um fræðslu- og fjölskylduþjónustu
óbreyttum. Jafnframt er tekin upp
sú nýjung að frá 1. janúar 2014 ná
systkinaafslættir frá dagforeldri til
frístundaheimilis.
Álagningarhlutfall fasteigna-
skatts af íbúðarhúsnæði lækkar úr
0,30% niður í 0,28% eða um 6,7%.
Þar með hefur álagningarhlutfall
fasteignaskatts lækkað um 12,5%
á tveimur árum.
Fræðslumál eru fyrirferðar-
mikil í þessari áætlun eins
og undanfarin ár. Skipt-
istundum í grunnskólum
verður fjölgað enn frekar
frá og með næsta skólaári
auk þess sem sumarlokanir
leikskóla styttast úr fimm
vikum í fjórar. Sérstök
áhersla verður á áfram-
haldandi uppbyggingu í
upplýsingatækni í leik- og
grunnskólum bæjarins.
Aukin sérkennsla í leik-
skólum er mikið áhyggju-
efni en þeirri þörf er mætt
í þessari fjárhagsáætlun.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta
er jákvæð um 613 milljónir króna
og 266 milljónir í A hluta. Áætlað
veltufé frá rekstri A hluta er um
1,7 milljarðar króna og samantek-
ið fyrir A og B hluta 2,5 milljarðar
króna sem er rúmlega 14% af heild-
artekjum. Á árinu er gert ráð fyrir
því að greiða niður lán og skuld-
bindingar að fjárhæð 1,9 milljarð-
ar króna.
Í áætlanagerðinni í ár var ákveð-
ið að stíga fyrstu skrefin í átt að
kynjaðri áætlanagerð. Hvert svið
hefur valið að lágmarki eitt til-
raunaverkefni þar sem aðferða-
fræði kynjaðrar fjárhags- og starfs-
áætlunargerðar verður beitt.
Stefnufesta í stjórn bæjarins á
kjörtímabilinu
Mikil uppbygging er framundan hjá
sveitarfélaginu. Forhönnun Ásvalla-
brautar er að ljúka og við tekur nán-
ari útfærsla veghönnunar og verk-
framkvæmda. Samið hefur verið
um byggingu á þremur búsetukjörn-
um fyrir fatlað fólk. Áfram verður
unnið að undirbúningi byggingar
hjúkrunarheimilis í Skarðshlíð og
byggingar síðari áfanga Áslands-
skóla.
Stjórnun Hafnarfjarðarbæjar á
þessu kjörtímabili hefur einkennst
af stefnufestu, íbúalýðræði, bættu
aðgengi að gögnum, valdeflingu
íbúa og aðhaldi í rekstri sem skilar
fjárhagsáætlun með bættri afkomu,
aukinni niðurgreiðslu skulda og
lægri álögum á íbúa.
Markviss undirbúningur
að endurfjármögnun
SVEITAR-
STJÓRNARMÁL
Guðrún Ágústa
Guðmundsdóttir
bæjarstjóri
Hafnarfj arðar
HEILBRIGÐISMÁL
Auðbjörg
Reynisdóttir
markþjálfi og
hjúkrunarfræðingur
➜ Ég verð að sjá að
læknar beiti sér fyrir
því að hefja öryggi
sjúklinga upp á æðra
plan
➜ Stjórnun Hafnar-
fjarðarbæjar á þessu kjör-
tímabili hefur einkennst af
stefnufestu, [...] sem skilar
fjárhagsáætlun með bættri
afkomu, aukinni niður-
greiðslu skulda og lægri
álögum á íbúa.
Sími 570 2400 · oryggi.is
Stöndum vaktina allan sólarhringinn
Vefverslun með öryggisvörur á oryggi.is
Kertaljós og skreytingar þarf
að umgangast með varúð
Tryggið eldvarnir heimilisins, reykskynjarar,
slökkvitæki og eldvarnarpakkar í
miklu úrvali.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
33
56
6
Tilvalið í bílinn eða
ferðavagninn
Eldvarnarpakki 3
Tilboðsverð í vefverslun
13.398 kr.
Listaverð 20.772 kr.
Eldvarnarpakki 4
Tilboðsverð í vefverslun
7.205 kr.
Listaverð 11.171 kr.
Eldvarnarpakki 5
Tilboðsverð í vefverslun
14.177 kr.
Listaverð 21.980 kr.