Fréttablaðið - 17.12.2013, Qupperneq 62
17. desember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 50
Hestarnir í beinni á Stöð 2 Sport í vetur
HANDBOLTI Fréttablaðið fékk alla
tólf þjálfara Olís-deildar kvenna í
handbolta til að velja þá leikmenn
deildarinnar sem að þeirra
mati skara fram úr á ákveðnum
sviðum leiksins.
Það er síðan ætlunin að birta
niðurstöðurnar úr könnun Frétta-
blaðsins í síðustu blöðum ársins
en deildin fer síðan á stað á ný
eftir áramót.
Þjálfarar deildarinnar völdu í
sameiningu mikilvægasta leik-
manninn, besta hraðaupphlaups-
manninn, besta varnarmanninn,
bestu skyttuna, duglegasta leik-
manninn, besta markvörðinn og
efnilegasta leikmann deildarinn-
ar. - óój
Þjálfarar völdu
þær bestu
HVAR STANDA ÞÆR? Ragnheiður
Júlíusdóttir úr Fram er ein af ungu og
efnilegu leikmönnunum í Olís-deild
kvenna í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HESTAR Meistaradeildin
í hestaíþróttum og 365
miðlar skrifuðu í gær undir
samstarfssamning um að
Stöð 2 Sport verði með beinar
útsendingar frá mótaröð
Meistaradeildarinnar í
hestaíþróttum árið 2014.
Öll keppnisröðin verður sýnd í
beinni útsendingu á Stöð 2 sport
sem og í gegnum netið í háskerpu-
gæðum.
Stöð2 Sport mun einnig verða
með sérstaka umræðuþætti um
keppnisröðina áður en keppnis-
tímabilið 2014 hefst og þá fer einn-
ig fram umræðuþáttur á stöðinni
eftir hverja keppni í vetur. - óój
SPORT
KÖRFUBOLTI „Ég er farin að geta hjól-
að aðeins og gera léttar æfingar hérna
heima,“ segir Birna Valgarðsdóttir leik-
maður Keflavíkur. Birna datt á hnéð í
leik meistara meistaranna milli Kefla-
víkur og Vals í byrjun október. Meiðslin
reyndust alvarlegri en talið var í fyrstu.
„Ég reif liðþófa og braut bein,“ segir
Birna sem gekkst undir aðgerð af þeim
sökum þann 29. nóvember. Liðþófinn var
lagaður og beinflísar teknar úr hnénu.
„Tvö göt voru boruð inni í hnénu til að
smá skel kæmist yfir brjóskið,“ segir
Birna sem notaði hækjur fyrstu dagana
á eftir. Nú er hún hækjulaus og endur-
hæfingin hafin.
Margir reiknuðu með því að Birna,
sem verður 38 ára í janúar, myndi leggja
skóna á hilluna í vor. Keflavík varð tvö-
faldur meistari og Birna bætti stigamet
Önnu Maríu Sveinsdóttur í deildarkeppn-
inni.
„Það kom nýr þjálfari og voru skemmti-
legir tímar fram undan svo ég ákvað að
taka eitt ár í viðbót,“ segir Birna. Hún
viðurkennir að sér finnist afar erfitt að
segja bara bless við íþrótt sína.
„Þessi meiðsli voru samt ekki á plan-
inu,“ segir Birna sem tók þátt í fyrsta
deildarleik Keflavíkur þrátt fyrir meiðsl-
in. Alvarleiki þeirra lá ekki ljós fyrir.
Síðan hefur hún þurft að sitja á bekkn-
um sem hún segir vera svakalega erfitt.
„Maður á ekkert smá bágt með sig að
geta ekki farið inn á og gert eitthvað,“
segir Birna. Hún mátti horfa upp á félaga
sína tapa stórt í toppslagnum gegn Snæ-
felli um helgina. Fyrir vikið misstu
Keflvíkingar toppsætið alfarið í hendur
Hólmara.
„Ég veit ekki alveg hvar við vorum í
þeim leik. Við mættum en samt ekki,“
segir Birna. Hver hafi verið í sínu horni
og leikmenn gleymt því sem lögð var
áhersla á í byrjun móts undir stjórn nýs
þjálfara, Andy Johnston.
„Maður hefur verið að hlaupa sömu
kerfin í yfir tíu ár. Svo kemur hann inn
með eitthvað allt annað,“ segir reynslu-
boltinn. Hún segir Johnston setja meiri
kröfur á leikmennina.
„Við komumst ekki upp með neitt kjaft-
æði. Ef þú spilar ekki vörnina almenni-
lega, leggur þig fram, stígur út og tekur
fráköst þá ertu sett á bekkinn,“ segir
Birna. Hún viðurkennir að í fyrstu hafi
verið erfitt að taka þeim aga en það
hafi horfið fljótt. Hann sé þjálfarinn og
honum beri að hlýða.
Birna vonast til þess að vera kominn
í slaginn sem fyrst til að hjálpa liðinu.
Óvíst sé hvenær það verði.
„Maður verður ekkert yngri. Þetta
tekur allt smátíma að jafna sig,“ segir
Birna létt. Hún vill ekkert gefa upp um
hvort tímabilið í ár verði hennar síðasta.
„Það er svo hallærislegt að gefa eitt-
hvað út og svo standa ekki við það. Þegar
ég hætti þá verð ég alveg hætt.“
kolbeinntumi@frettabladid.is
Á ekkert smá bágt með mig
Birna Valgarðsdóttir hefur verið frá keppni undanfarnar vikur vegna hnémeiðsla. Reynsluboltinn 37 ára segir
afar erfi tt að fylgjast með af bekknum og neitar að gefa upp hvort tímabilið sé hennar síðasta eða ekki.
SÚ STIGAHÆSTA FRÁ UPPHAFI Birna Valgarðsdóttir bætti stigamet
Önnu Maríu Sveinsdóttir í lok síðasta tímabils. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI „Þetta verður tíunda ár
þjálfarans með liðið og í fyrsta
skipti sem útlendingur verður
fyrirliði,“ segir Dagný Brynj-
arsdóttir, leikmaður og nemi við
Florida State-háskólann. Dagný
er á sínu þriðja ári við skólann
en knattspyrnutímabilinu lauk
í síðustu viku. Florida State fór
alla leið í úrslitaleikinn þar sem
gullmark í framlengingu þurfti
til að knýja fram úrslit. Daginn
eftir var tilkynnt að Sunnlend-
ingurinn yrði fyrirliði liðsins á
næsta tímabili.
Liðið hafði komist í und-
anúrslit undanfarin ár en
ekki tekist að komast yfir
þá hindrun. Það tókst núna
þrátt fyrir að byggja hafi
þurft upp nýtt lið að vissu
leyti því margir lykilmenn
útskrifuðust.
„Á næsta ári
ættum við að vera
með reynslu-
mesta liðið af
þeim sem ég
hef verið í,“
segir Dagný sem þá verður á
lokaári sínu. Aðeins tveir mikil-
vægir leikmenn útskrifist í vor
og því verði minni breytingar en
oft áður.
Dagný er komin heim í jólafrí
og var önnum kafin við að passa
tvo unga frændur sína þegar
blaðamaður heyrði í henni í gær.
Hún er enn óviss um hvar hún
spili næsta sumar en undanfarin
ár hefur hún spilað með Val.
„Ég er búin að segja
þjálfaranum mínum að
ég fari ekki til Japan,“
segir Dagný sem
hvött var til þess að
fara í akademíu til
Asíu næsta sumar.
Nú vilji hann að hún
spili með Pali Blues
í Los Angeles í sum-
ardeildinni vestan-
hafs. Þá hafa lið á
Íslandi sett sig í
samband við Dag-
nýju.
„Ég tek örugg-
lega ekki ákvörð-
un fyrr en í janú-
ar,“ segir Dagný.
Hún vill fara yfir
málin með þjálf-
ara sínum hjá Flo-
rida State áður en
ákvörðun verður
tekin. -ktd
Dagný nýr fyrirliði
hjá Florida State
Miðjumaðurinn enn óviss um verustað næsta sumar.
HVAÐ GERIR
DAGNÝ?
Landsliðskonan
Dagný Brynjars-
dóttir er ekki
búin að ákveða
hvar hún spilar
á næsta ári.
SAMINGAR Í HÖFN Í NAUTHÓLSVÍK Kristinn Skúlason, formaður stjórnar
Meistaradeildarinnar og Freyr Einarsson, sjónvarpsstjóri 365 miðla. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Þórir Hergeirsson og stelpurnar hans í norska kvenna-
landsliðinu í handbolta tryggðu sér í gær sæti í átta liða
úrslitum HM í Serbíu. Norska liðið átti ekki miklum
vandræðum með Tékka og vann tíu marka sigur,
31-21.
Þórir hefur þar með stýrt liðinu til sigurs í fjórtán
HM-leikjum í röð því norsku stelpurnar unnu átta
síðustu leiki sína á HM í Brasilíu 2011 og hafa síðan
unnið sex fyrstu leiki sína á HM í Serbíu.
Noregur mætir Serbíu í átta liða úrslitunum á
morgun. Í hinum leikjunum mætast: Brasilía-Ung-
verjaland, Pólland-Frakkland og Danmörk-Þýskaland.
Noregur mætir sigurvegaranum úr leik Pólverja og
Frakka komist liðið í undanúrslitin.
Fjórtán HM-sigrar í röð hjá
Þóri og norsku stelpunum
- örugg bifreiðaskoðun um allt land
Þú gætir eignast
nýjan Spark ef þú drífur
bílinn í skoðun!
Þeir sem koma með bílinn í skoðun fyrir lok dags þ. 22. des.
eiga möguleika að eignast stórglæsilegan Chevrolet Spark
sem verður dreginn út þ. 23. des. 2013.
Aðal iv nningur er s lp u kn unýr Chevrolet Spark árg. 20 14
HAPPDRÆTTI
GÓÐ ÞJÓNUSTAOG HAGSTÆÐ KJÖR Á SKOÐUNUM