Fréttablaðið - 02.01.2014, Page 8

Fréttablaðið - 02.01.2014, Page 8
2. janúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 gullaldarinnar á Kringlukránni 3. og 4. janúar Gunnar Þórðarson úr Hljómum, Ásgeir Óskarsson úr Stuðmönnum, Jóni Ólafsson úr Pelican og Óttari Felix úr Pops. Tónlist sjötta og sjöunda áratugarins. Rætur rokksins. Stanslaust stuð. Gullkistan i NÝÁRSFAGNAÐUR Sími 568 0878 kringlukrain@kringlukrain.is www.kringlukrain.is Dansleikir frá kl. 23:00 - 03:00 ORKUMÁL Skipulagsnefnd Ölfuss segir að nýta eigi legu jarðstrengs milli Selfoss og Þorlákshafnar undir hjólreiðastíg. Árborg hefur sömu áform. Vegna kostnaðar hyggst Lands- net leggja jarðstrenginn í sandinn en ekki meðfram þjóðveginum eins og Ölfus óskar eftir og gerir ekki ráð fyrir hjólreiðastíg. „Lega jarðstrengsins verði nýtt fyrir hjólreiðastíg, óháð því hvort farið er um sandinn eða meðfram þjóðveginum,“ segir skipulags- nefndin og bendir á að í framtíð- inni kunni skipulagi svæðisins að verða breytt. Þurfi þá að flytja jarðstrenginn verði það gert á kostnað Landsnets. „Svæðið sem leggja á jarð- strenginn eftir yfir sandinn er á viðkvæmu svæði þar sem mikil hætta er á sandfoki. Undanfarin ár hefur verið unnið að landgræðslu á svæðinu og sandurinn bundinn til varnar sandfoki. Við framkvæmd- ina skal þess gætt að rof í jarðveg verði ekki til þess að sandfok geti aukist,“ segir skipulagsnefndin sem vill að skoðað verði að breyta rafmagnslínu í lofti frá Skötubót að Hafinu Bláa í jarðstreng. - gar Ölfusingar vilja nýta stæði jarðstrengs um land sveitarfélagsins: Hjólareiðastígur ofan á raflínu MENNING Stefnt er að því að safnið Eldheimar í Vestmannaeyjum opni næsta vor. Kostnaður við safnið nemur um 890 milljónum króna og hann er að mestu greiddur úr bæjar sjóði. Um þrjú hundruð milljónir króna koma frá ríkissjóði en sá peningur átti upphaflega að fara í byggingu nýs menningar- húss í bænum, sem síðan var hætt við. Að auki hefur bærinn fengið lægri upphæðir í styrk, m.a. sjö milljónir króna úr framkvæmda- sjóði Ferðamannastaða, og styrk frá Ferðamannaráði. Þungamiðja safnsins verða rústir af Gerðisbraut 10 sem grófst undir ösku í Vestmannaeyjagosinu 1973. Að sögn Kristínar Jóhanns- dóttur, menningar- og markaðs- stjóra Vestmannaeyjabæjar, er bygging safnsins komin langt á veg en uppgröfturinn hefur staðið yfir undanfarin ár. Húsið verður á tveimur hæðum, alls 1.161 fer- metri. Aðspurð segir Kristín að margir útlendingar bíði spennt- ir eftir því að safnið opni. „Þetta verkefni er búið að vera í heil- mikilli alþjóðlegri kynningu frá því að uppgröfturinn byrjaði. Við erum mikið bókuð þegar kemur að ferðamönnum almennt en það er mikill alþjóðlegur áhugi á Eld- heimum, enda er gossagan okkar gríðarlega mikilvæg,“ segir hún. „Við erum að klára þetta stóra gosár hérna og Eldheimar eru klárlega eitt af því sem við höfum verið að selja og gera út á.“ Hún telur að rúmlega eitt hundruð þúsund erlendir ferða- menn hafi komið til Vestmanna- eyja á árinu og vonast til að þeir verði enn fleiri 2014, meðal ann- ars með aðstoð Eldheima. Arkitekt hússins er Margrét Kristín Gunnarsdóttir, landlags- arkitekt er Lilja Kristín Ólafsdótt- ir og sýningarhönnuður er Axel Hallkell Jóhannesson, sem er einnig maðurinn á bak við hönn- un Landnámssetursins. freyr@frettabladid.is Eldheimar munu kosta 890 milljónir Safnið Eldheimar opnar í Vestmannaeyjum næsta vor. Kostnaðurinn nemur um 890 milljónum króna. Erlendir ferðamenn bíða spenntir eftir að safnið verði opnað. Rúmlega eitt hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Eyjar á síðasta ári. NOREGUR Erna Solberg, forsætis- ráðherra Noregs, vill auðvelda fólki með góða menntun að flytja til Noregs og fá þar atvinnu við hæfi. „Við verðum að gera Noreg meira aðlaðandi fyrir hámenntað vinnuafl frá öðrum löndum,“ segir hún, og treystir því að samstarfs- flokkur hennar í ríkisstjórn taki vel í þetta. Það er norska dagblaðið Dagsavisen sem skýrir frá þessu á vefsíðum sínum. - gb Forsætisráðherra Noregs: Vill menntaða innflytjendur TÉKKLAND, AP Jamel al Jamal, sendiherra Palestínu í Prag, lét lífið í sprengingu sem varð á skrifstofu hans í gær. Sendiherrann var að opna peningaskáp sem hafði ekki verið opnaður í að minnsta kosti þrjátíu ár. Skápurinn hafði nýlega verið fluttur inn í sendi- herrabústaðinn, eftir að hafa verið geymdur í öðru húsi þar í borg. Engar vísbendingar eru um að sprengingin hafi verið hryðju- verk. Al Jamal var nýtekinn við sem sendiherra og hafði aðeins búið í sendiherrabústað sínum í tvo daga. - gb Sprenging í Prag: Palestínskur sendiherra lést FLUG Evrópuþingið samþykkti nýlega reglur sem heimila lengri vaktir flugáhafna. „Reglurnar eru í hag flugrekenda á kostnað flug- öryggis flugáhafna og farþega,“ skrifar Ásta Kristín Gunnars- dóttir, hjúkrunarfræðingur og flugfreyja, í grein sem birtist í Fréttabréfi Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Rannsóknir sýna að flugmenn sofna án þess að taka eftir því í flugi, og með lengri vöktum má gera ráð fyrir þreytt- ari flugmönnum. „Ekki þarf að leita langt aftur í tímann til þess að rifja upp dæmi þess að báðir flugmenn hafi sofn- að í flugi,“ segir í grein Ástu. Hún heldur því fram að flugþreyta sé alvarlegra vandamál en almennt er talið. 65% flugslysa og óhappa megi rekja til mannlegra mistaka, og þar af séu 4-7% ofþreytu og svefnleysi áhafnar um að kenna. Bandaríska geimferðarstofnun- in mældi vökuástand flugmanna sem flugu langar leiðir milli heimsálfa. Rannsóknin leiddi í ljós að flugmennirnir áttu það til að sofna á síðustu 90 mínútunum jafnvel þótt þeir héldu sig vak- andi. Flugmennirnir sváfu svoköll- uðum örsvefni, með augun opin. Þetta hendir einkum þegar starfs- maðurinn er úrvinda af þreytu seinnipart nætur. Mikil þreyta getur lýst sér eins og áfengisneysla og skaðað hæfni til að taka mikilvægar ákvarðanir. Eftir að hafa vakað í 17 til 19 klukkustundir mælist þreyta eins og 0,5 prósent áfengismagn í blóði. Ásta segir að það sé um- hugsunarefni fyrir stéttir sem bera ábyrgðarhlutverk, og til saman burðar megi nefna að áfengis magn megi ekki vera hærra en 0,2 prósent í blóði öku- manns á Íslandi. - ue Nýjar reglur Evrópuþingsins slaka á flugöryggiskröfum að sögn flugfreyju: Flugmenn sofna í háloftunum LÖGREGLA Ekið var á gangandi vegfaranda klukkan hálfsjö á nýársmorgun á Suðurströnd. Vegfarandinn slasaðist, og var fluttur á slysadeild, en var við góða meðvitund þegar lögregla ræddi við hann um morguninn. Áverkarnir eru ekki taldir lífs- hættulegir. Ökumaðurinn er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. - ue Grunaður um ölvunarakstur Ók á gangandi vegfaranda VIÐ SENDHERRABÚSTAÐINN Enginn grunur er um hryðjuverk. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 1.161 fermetrafj öldi Eldheima. ELDHEIMAR Bygging safnsins er komin langt á veg. Þungamiðjan verða rústir af Gerðisbraut 10 sem grófst undir ösku í gosinu 1973. MYND/ÓSKAR PÉTUR FRIÐRIKSSON ÞORLÁKSHÖFN Jarðstrengur á að liggja frá Selfossi að Þorlákshöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA FLUGMENN Mikil þreyta getur skaðað hæfni fólks til að taka mikilvægar ákvarðanir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGURJÓN. BANDARÍKIN, AP Sitt sýnist hverjum um þá nýbreytni í Colorado að frá og með áramót- unum sé löglegt að selja þar og kaupa kannabisefni. Löggjafarþing ríkisins sam- þykkti lög þess efnis á síðasta ári, og tóku þau gildi 1. janúar. Washingtonríki hefur einnig sett sambærileg lög og taka þau gildi um mitt ár. Stuðningsmenn nýju laganna vonast til þess að dýrkeypt stríð stjórnvalda gegn fíkni- efnum verði nú viðráðanlegra, en gagnrýnendur telja þetta olíu á eldinn. Margir hafa meðal annars áhyggjur af því að ung- lingar eigi nú auðveldara með að komast yfir þessa tegund fíkniefna. - gb Löglegt í Colorado: Hafa leyft sölu kannabisefna NÝR VERULEIKI Íbúi í Colorado reykir löglega keypt kannabisefni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP AKUREYRI Fráveitan til Norðurorku Norðurorka hf. hefur tekið yfir fráveitu Akureyrarbæjar. Yfirtökuverð fráveit- unnar er 2,3 milljarðar króna sem að hluta til felst í yfirtöku á lánum. Í samningi bæjarins við Norðurorku er gert ráð fyrir byggingu hreinsistöðvar við Sandgerðisbót á næstu árum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.