Fréttablaðið - 02.01.2014, Síða 14
2. janúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 14
Til þess að fyrirbyggja hjarta- og æðasjúkdóma getur verið
skynsamlegt að eiga gæludýr og þá helst hund. Þetta sýna
niðurstöður rannsókna bandarísku hjartaverndarsamtakanna.
Hundaeigendur hreyfa sig meira en aðrir þar sem þeir þurfa að
viðra hundana sína, að því er segir á vef samtakanna. Hunda-
eigendur eru 54 prósentum líklegri til að fá þá hreyfingu sem
mælt er með en aðrir.
Á vef samtakanna segir jafnframt að gæludýr geti haft
jákvæð áhrif á viðbrögð líkamans við streitu.Tekið er fram að
ekki sé hægt að fullyrða að það að eiga gæludýr dragi úr hættunni
á hjarta- og æðasjúkdómum. Mögulega sé því þannig farið að þeir
sem eru heilsuhraustir fái sér frekar gæludýr.
Vísindamennirnir leggja áherslu á að menn eigi ekki að fá sér
hund eingöngu til þess að gæta að eigin heilsu. Það eigi einnig að
vera vegna hundsins sjálfs. Hafa verði í huga að hugsa þurfi vel um
hann. - ibs
Niðurstöður rannsóknar bandarísku hjartaverndarsamtakanna:
Gott fyrir hjartað að eiga hund
Litla loðdýrið Furby var í ár afar
vinsæl jólgjöf fyrir börn. Í Hag-
kaupum og Toys‘R‘us var leik fangið
ein mest selda varan og þurfti til að
mynda að fá auka sendingu af dýr-
inu í Hagkaupum.
Furby er krúttlegt dýr sem syng-
ur, hlær og talar við barnið. Leik-
fangið er tölvustýrt, hægt er að
stýra því af smáforriti úr snjall-
síma eða spjaldtölvu og eiga börnin
að annast dýrið
sitt í gegnum það.
Furby bregst við
hljóðum, snert-
ingu og skiptir
skapi ef því er
ekki sinnt nægi-
lega vel.
Jóhanna Krist-
ín Jónsdóttir sál-
fræðingur segir
ýmislegt athugavert við leikfangið
sem foreldrar ættu að vera vakandi
yfir. „ Leikur barna er mikilvæg for-
senda þroska. Leikur barna á þó að
vera á þeirra eigin forsendum, þau
eiga að stýra leiknum, ráða fram-
vindu hans og taka sér hlé þegar
þau þreytast. Leikur með Furby
er aftur á móti ófyrirsjáanlegur og
ekki nema að litlu leyti á forsendum
barnsins.“
Jóhanna segir að allt sé gert til
að gera Furby sem raunverulegast-
an og megi spyrja sig hvort það sé
æskilegt í markaðssetningu leik-
fangs ætlað yngri börnum, en dýrið
er fyrir börn allt niður í fimm ára.
„Þegar dýrið skiptir skapi lýsast
augun upp og það verður viðskota-
illt. Yngri börn geta orðið óörugg og
ekki skilið af hverju dýrið bregðist
svona við og orðið jafnvel skelkuð.
Í hugum ungra barna getur Furby
verið lifandi og mörkin milli leiks
og raunveruleika því óljós.“
Foreldrar barna hafa kvartað yfir
því að Furby þagni ekki og ekki sé
neinn takki til að slökkva á sjálfu
dýrinu. Það sofnar ef það er látið í
friði en það má ekki koma minnsta
hljóð eða snerting til að það vakni
aftur. Ef barnið er hætt að leika með
dýrið og snýr sér að öðru þá kallar
Furby á athygli og ruglar þar með
barnið í ríminu. Dýrið vaknar jafn-
vel upp á nóttunni.
„Furby getur auðveldlega orðið
streituvaldur í lífi barnsins með
því að kalla sífellt á athygli. Það
getur jafnvel vakið með því kvíða
og óöryggi. Mín ráð eru þau að for-
eldrar séu vakandi yfir því hvern-
ig leikurinn þróast og ræði það við
börnin sýni þau merki um óöryggi
og streitu. Það má útskýra hvernig
leikfangið virkar og ræða leiðir svo
barnið nái stjórninni, ekki leikfang-
ið. Ef það gengur ekki má hiklaust
setja Furby í einveru og hvíla alla
um stund,“ segir Jóhanna.
Leikfang sem getur
vakið upp óöryggi
Ein vinsælasta jólagjöf ársins er loðdýrið Furby. Sálfræðingur segir leikfangið
krefjandi fyrir ung börn og að passa þurfi að börnin leiki sér með dýrið á eigin
forsendum og hafi stjórn á leiknum. Einnig er gott að hvíla leikfangið af og til.
„Mér finnst Furby æðislegur því hann er eins og alvöru dýr,“ segir Auður
Erla Hrannarsdóttir sem fékk Furby í jólagjöf. „Hann lætur mig vita ef
hann er svangur og ef ég gef honum ekki að borða getur hann orðið
batteríslaus.“
Auður Erla sinnir Furby vel og passar upp á að hann verði ekki reiður.
„Hann getur orðið reiður ef maður leikur ekki við hann í smá tíma. Minn
Furby er stelpa, en ef hann verður reiður þá breytist hann í strák. Þá
verður hann dónalegur og talar með strákarödd.“
Margir í bekknum hennar Auðar óskuðu eftir því að fá Furby í jólagjöf
og var hann efstur á hennar óskalista. „Hann er svo krúttlegur. En
stundum verð ég þreytt á honum, þegar hann gargar og er reiður. Þá er
erfitt að róa hann niður og maður þarf að bíða svolítið.“
Leiðinlegt þegar hann verður reiður
Bakteríur sem valda ýmsum
umgangspestum geta lifað utan
líkamans í allt að mánuð. Þetta
eru niðurstöður rannsóknar
vísindamanna við Buffalo-
háskólann í Bandaríkjunum sem
greint er frá í ritinu Infection
and Immunity. Fyrri rannsóknir
hafa leitt í ljós að bakteríur sem
valda kvefi og ýmsum öðrum
smitandi sjúkdómum eigi erfitt
með að lifa utan líkamans.
Nýja rannsóknin leiddi ljós
að bakteríurnar geta hópað
sig saman og þess vegna
lifað lengur. Á vef Svenska
Dag bladet er vitnað í ummæli
Anders Håkansson, prófessors
við Buffalo-háskólann. Hann
segir að í rannsóknum frá
miðri síðustu öld hafi verið not-
ast við bakteríur sem vaxa á
rannsóknar stofum. Þær hafi
horfið nokkrum klukkustundum
eftir að þeim var komið fyrir á
flöt. Bakteríur í hóp geti hins
vegar lifað í mánuð.
Til þess að skoða hvernig
þetta lítur út í raunveruleikan-
um fóru vísindamennirnir með
tæki sín á leikskóla áður en hann
var opnaður að morgni. Þeir
rannsökuðu einkum fleti sem
erfitt er að þrífa, eins og bækur
og leikföng. Þeir fundu pneumó-
kokka á fjórum af fimm mjúk-
dýrum og streptókokka á barna-
rúmum.
Handþvottur er besta leiðin til
að koma í veg fyrir smit, að mati
vísindamannanna.
- ibs
Rannsókn bandarísks háskóla á líftíma baktería kollvarpar fyrri kenningum vísindamanna:
Bakteríur geta lifað á leikföngum í mánuð
Frístundastyrkurinn hjá Reykja-
víkurborg var hækkaður í þrjátíu
þúsund krónur á barn á ári í gær.
Á síðasta ári var hann 25 þúsund.
Frístundakortið er styrkjakerfi
í frístundastarfi fyrir 6 til 18 ára
gömul börn og unglinga með lög-
heimili í Reykjavík.
Á nýju ári fá öll börn í Reykja-
vík á aldrinum 6 til 18 ára fullan
frístundastyrk sem má ráðstafa
til niðurgreiðslu á þátttöku- og
æfingagjöldum. Ekki má flytja
styrkinn á milli ára. - ebg
Frístundastyrkur hækkar:
Nýtt frístunda-
kort tekur gildi
DÓTAKASSAR Bakteríur sem valda
algengum sýkingum geta lifað lengi á
leikföngum. NORDICPHOTOS/GETTY
BESTI VINUR-
INN Hunda-
eigendur eru
líklegri til að fá
meiri hreyfingu
en aðrir.
NORDICPHOTOS/GETTY
BESTA JÓLAGJÖFIN Auður Erla Hrannarsdóttir var mjög ánægð með að fá Furby í
jólagjöf. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
JÓHANNA KRISTÍN
JÓNSDÓTTIR