Fréttablaðið - 02.01.2014, Page 16
2. janúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 16
Bestu kaup Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, þingkonu Samfylkingar-
innar, eru eldhúsborð. „Þetta er eikareldhúsborð úr Fríðu frænku.
Það er fallegt og stórt með heimasmíðuðum viðbótarplötum sem
eru svo skemmtilega skrýtnar. Þegar búið er að stækka borðið geta
12 manns setið við það.“
Sigríður Ingibjörg segir verstu kaupin hafa verið vandræðaleg. „Það
var þegar við hjónin keyptum mixer á tilboði. Hann virkaði ekki þegar
heim var komið og ég var frekar pirruð þegar ég fór og skilaði
honum. Í búðinni komst ég að því að mixerinn virkaði og þá
skammaðist ég mín. Þetta var ömurlega hallærisleg upp-
lifun en ég stóð við ákvörðunina um að skila tækinu.
Við höfum síðan notað lítinn töfrasprota sem hefur
komið að góðum notum. - ibs
NEYTANDINN Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
Eldhúsborð með skrýtnum
plötum bestu kaupin
Alls eru nítján matvöruversl-
anir opnar allan sólahringinn á
höfuðborgarsvæðinu. Árið 2010
voru þær 24 talsins og hefur
þeim því fækkað um sex.
Flestar verslanir starfrækir
10-11, eða fjórtán. Næst á eftir
kemur Hagkaup með þrjár og
lestina reka Nettó í Mjódd og
Iceland sem ákvað í júní að hafa
verslun sína í Engihjalla í Kópa-
vogi opna allan sólarhringinn.
„Þetta hefur bara geng-
ið mjög vel,“ segir Jón Ingi
Gunnarsson verslunarstjóri.
„Traffíkin hefur verið mjög góð
og við erum mjög sátt.“
Gunnar Ingi Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Hagkaups,
er einnig ánægður með sóla-
hringsopnun sinna þriggja
verslana í Skeifunni, Garðabæ
og á Seltjarnarnesi.
„Það voru fimm ár núna í
nóvember sem við ákváðum að
prófa að koma til móts við það
fólk sem er kannski ekki að
vinna frá 9 til 17. Þetta var bara
aukin þjónusta í jólamánuðinum
og við sögðum þá að ef þetta
tækist ekki væri þetta allavega
atvinnuskapandi í desember.
Síðan höfum við opnað tvær
svona verslanir í viðbót og enn
er opið, þannig að þetta hefur
mælst vel fyrir.“
Gunnar reiknar með að sólar-
hringsopnanirnar haldi áfram
en býst ekki við að fleiri Hag-
kaupsverslanir verði opnar
allan sólarhringinn.
„Á meðan þetta er réttu
megin við strikið höldum við
ótrauðir áfram. Við vorum
taldir svolítið skrýtnir þegar
við fórum af stað með þetta en
það er bara almenn ánægja með
þetta núna.“ - fb
Nítján sólarhringsverslanir
á Stór-Reykjavíkursvæðinu
Alls eru nítján verslanir á höfuðborgarsvæðinu opnar allan sólarhringinn. Þeim hefur fækkað um sex frá
árinu 2010. 10-11 starfrækir langflestrar slíkar verslanir. Ánægja er með fyrirkomulagið, segir verslunarmaður.
Nýtir þú þjónustu sólahringsverslana?
Nei,
ég kaupi
bara
vörur á
daginn.
Kristinn
Grétarsson
nemi
Já, ég
nýti hana í
Hagkaup-
um. Ég fer í
nammiland
og fæ mér
snakk á
föstudögum
og fer líka þegar mig
langar í eitthvað að
borða.
Hjördís Steinarsdóttir
nemi
Mjög
sjaldan. Ef
allt um
þrýtur
gerir
maður
það. Ég
held að
þessar verslanir mættu
alveg hverfa. Þá myndi
maður bara þurfa að
skipuleggja sig betur.
Magnús Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Norðurskautsráðs
Nei,
aldrei. Ég
hef bara
ekki þörf á
því.
Hlín Ósk
Þorsteinsdóttir
skrifstofukona
VERSLANIR
OPNAR ALLAN
SÓLARHRING-
INN. 10-11
rekur flestar
þeirra verslana
sem opnar eru
allan sólahring-
inn á höfuð-
borgarsvæðinu.
Á heimasíðu Reykjavíkurborgar er
fólk eindregið hvatt til að þrífa eftir
gamlárskvöld.
Þegar gamla árið er kvatt og því
nýja fagnað með flugeldum fellur
til mikið magn flugeldaleifa og
eru borgarbúar eindregið hvattir
til að láta ekki sitt eftir liggja og
safna þeim saman og skila á endur-
vinnslustöðvar Sorpu. Púður er
einungis 10% af heildarþyngd flug-
elda, restin er aðallega pappi og
leir. Slíkur pappír hentar alls ekki
til endurvinnslu. Ósprungnum flug-
eldum skal skila í spilliefnagáma á
endurvinnslustöðvum Sorpu. - jme
Tínið upp eftir ykkur
Flugeldum fylgir rusl
Reykvíkingar verða sjálfir að
koma jólatrjám sínum í Sorpu. Í
flestum öðrum sveitar félögum
suðvestanlands verða trén sótt að
lóðarmörkum.
Á heimasíðu Sorpu segir að á
endurvinnslustöðvunum sé tekið
við jólatrjám frá einstaklingum
án gjaldtöku, en fyrirtæki, verk-
takar og stofnanir greiði mót-
tökugjöld samkvæmt gjaldskrá
stöðvanna. Hámarksfarmur á
endurvinnslustöðvum er 2m3.
- jme
Jólatrén ekki sótt í Reyjavík:
Sorpa tekur við
jólatrjám
Nú eru um 550 þúsund tíu þúsund
króna seðlar í umferð fyrir utan
Seðlabanka Íslands. Þetta jafn-
gildir 5,5 milljörðum króna.
Hlutdeild 10 þúsund króna seð-
ilsins var um 12,5 prósent af and-
virði seðla í umferð í lok ársins
2013.
Þegar mynt er talinn með
eru alls um 47 milljarðar króna
af reiðufé í umferð utan Seðla-
bankans og var aukningin um 1,9
milljarðar króna á síðasta ári eða
um 4,2 prósent.
- jme
Tíu þúsund króna seðillinn:
550 þúsund
seðlar í notkun
FALLEGIR Flugeldar eru fallegir en þeim
fylgir mikið rusl. FRÉTTABLAÐIÐ/DANIEL
JÓLATRÉ Borgin sækir engin tré.
Neytendastofa hefur lagt sölubann á leikfang
ætlað á vagn frá Made by Grandma í kjölfar
tímabundins sölubanns.
Engin gögn bárust til Neytendastofu sem
sýndu fram á öryggi leikfangsins. Á það vant-
aði CE-merkingu. Á heimasíðu Neytendastofu
segir að það bendi til þess að varan sé ekki
öruggt leikfang fyrir barn.
CE-merkt vara þýðir að hún uppfylli allar
þær kröfur sem gerðar eru til hennar í lögum
og reglugerðum sem eru settar með stoð í
þeim.
Neytendastofu hefur einnig lagt sölubann á
„lunda mjúkdýr“, „kind mjúkdýr“ og „selkóp“
frá framleiðandanum Happy Day á grundvelli
ábendingar sem stofnuninni barst. Á leikföngin
vantaði CE-merkingu. - isb
Neytendastofa tekur leikföng úr umferð:
Sölubann á leikfang fyrir vagn
og á mjúkar kindur og kópa
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
10-11
Reykjavík
1. Héðinshús
(Seljavegi)
2. Austurstræti
3. Barónstígur
4. Borgartún.
5. Laugalækur
6. Langirimi
7. Hjarðarhagi
8. Lágmúli
9. Glæsibær
10. Grímsbær
(Efstalandi)
Kópavogur
11. Hjallabrekka
12. Dalvegur
Hafnarfjörður
13. Staðarberg
14. Melabraut
Iceland
Engihjalli
Hagkaup
Reykjavík
1. Seltjarnarnes
2. Skeifan
Garðabær
3. Litlatún
Nettó
Mjódd
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13 14
3
1
1 2
2
3
➜ Verslanir sem opnar eru allan sólarhringinn á Reykjavíkursvæðinu
TRYGGVI AXELSSON Forstjóri Neytendastofu, sem sett hefur sölu-
bann á tiltekin leikföng. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM