Fréttablaðið - 02.01.2014, Síða 24

Fréttablaðið - 02.01.2014, Síða 24
2. janúar 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 24TÍMAMÓT Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR Sóltúni (áður Hallveigarstíg 2), verður jarðsungin frá Fossvogskirkju 3. janúar kl. 13.00. Oddný Björg Halldórsdóttir Helgi Kristjánsson Ólöf Berglind Halldórsdóttir Stefán Örn Betúelsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, ÞÓRDÍS ODDSDÓTTIR Ketilsstöðum, Hörðudal, sem lést á sjúkrahúsi Akraness verður jarðsungin frá Snóksdalskirkju laugardaginn 4. janúar kl 14.00. Börn, tengdabörn og fjölskyldur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HJÖRTUR EINARSSON Neðri-Hundadal, Dalasýslu, sem lést 23. desember, verður jarðsettur frá Kvennabrekkukirkju, föstudaginn 3. janúar kl. 14.00. Rútuferð verður frá Umferðarmiðstöðinni, BSÍ, kl. 11.30 sama dag. Lilja Sveinsdóttir Sigríður Hjartardóttir Helgi Reynisson Sigursteinn Hjartarson María Guðmundsdóttir Kristín Lára Hjartardóttir Jóhann Hreggviðsson Signý Harpa Hjartardóttir Axel Gíslason barnabörn og barnabarnabörn. Halldór Hermannsson Ísfirðingur er fyrrverandi skipstjóri og sjó maður. Hann fagnar í dag sínu áttugasta aldurs ári. Halldór er giftur Katrínu Gísladóttur og saman eiga þau hjónin stóra fjölskyldu og fjöldann allan af afkomendum. Halldór tilheyrir hinni frægu Ögurvíkurætt sem, að hans eigin sögn, á sjálfan Ísafjörðinn en hann fluttist frá Ögri í Ísafjarðardjúpi til Ísafjarðar þegar hann var ellefu ára gamall og hefur búið í sama húsinu allar götur síðan. Halldór er sjálfur þekktur fyrir bæði glaðværð og orðheppni en að sögn vina hans og vandamanna býr hann yfir einstakri frásagnagáfu og er óspar á skemmtisögur. Þau hjónin eru búsett á Ísafirði en Katrín hefur búið þar alla tíð. Hjónin eru þekkt af bæði aðkomu- fólki og bæjabúum fyrir mikla gest- risni og hlýju. Á sínum ferli átti Halldór viðkomu í pólitíkinni en hann skipaði efsta sæti á lista Frjálslynda flokksins á Norður- landi eystra í alþingiskosningum 1999 en flokkurinn var stofnaður af bróður Halldórs, Sverri Hermannssyni. Í tilefni stórafmælis ins verður blásið til heljarinnar veislu í félags- miðstöðinni í Hlíð, í heimabæ Hall- dórs á Ísafirði. Halldór var á meðal þeirra sem stóðu að byggingu félagsmiðstöðvarinnar þegar hann gegndi formennsku félags eldri borg- ara á Ísafirði. „Við erum með aðstöðu fyrir um það bil 100 manns hér í kjallaranum og hingað munum við hjónin hóa saman vinum, ættingjum og kunningjum síð- degis til veislunnar. Mér hefur alltaf þótt örlítið trist að eiga afmæli svona rétt eftir áramótin en afmælisdagarnir sjálfir hafa í gegnum tíðina verið góðir dagar. Minnisstæðust eru stórafmælin en þeim hefur alltaf verið fagnað með miklum samkomum hér í bænum en þá hafa menn komið saman í mikilli sagnagleði og þá hefur verið bæði skrafað og hlegið. Það vill svo til að mjög margir af mínum kunningjum eru sérlega góðir sagnamenn. Vest- firska sagnagleðin nýtur sín vel í svona veislum og hér eru líka einstaka menn sem eru framúrskarandi veisluhald- arar svo það verður öllu tjaldað til. Það verður ekki annað sagt en að ég eigi von á reglulega góðri kvöldstund,“ segir Halldór Hermannsson fullur eftir væntingar. Á dagskrá kvöldsins eru ræðuhöld og einnig stendur til að barnabarn Hall- dórs, Salóme Katrín Magnúsdóttir söngkona, taki lagið fyrir veislugesti. „Hér verða fluttar ræður og svo verður líka sungið. Ég er svo heppinn að eiga dótturdóttur sem syngur afskaplega falleg lög og hún ætlar að taka eitt þeirra fyrir afa sinn í dag.“ - jme Sagnagleði og söngur Halldór Hermannsson býður í veislu í tilefni af áttræðisafmæli sínu síðdegis í dag HALLDÓR OG BARNABARNABARN Hér er Halldór með langafabarninu sínu, Hildi Katrínu Hjaltadóttur MERKISATBURÐIR 1653 Mikið tjón verður á Eyrarbakka og víðar í sjávarflóði sem nefnt er Háeyrarflóðið. 1793 Rússland og Prússland skipta Póllandi á milli sín. 1871 Stöðulögin eru sett. Þau kveða á um að Ísland verði óað- skiljanlegur hluti hins danska ríkis en með sérstök landsréttindi. 1887 Prentarafélagið, fyrsta verkalýðsfélagið á Íslandi, er stofnað. 1900 Chicago-skurðurinn er opnaður. 1959 Sovétríkin skjóta á loft fyrsta geimfarinu, Luna 1, sem fer á braut um sólina tveimur dögum síðar. 1908 Lögbirtingablaðið kemur fyrst út. Stöðulög voru sett 2. janúar 1871 um að fjárhagur Íslands og Danmerkur skyldi aðskilinn frá og með 1. apríl þetta sama ár. Þá var settur á laggirnar Landssjóður Íslands og þegar Stjórnarskrá Íslands var samþykkt árið 1874 fékk Alþingi vald til þess að semja lög um hann. Fram að þessum tíma voru ríkis- dalir opinber gjaldmiðill á Íslandi, sem fylgdi tilskipun 20. mars 1815. Þeir voru prentaðir af Kurantbanken í Kaupmannahöfn sem var fyrsti banki Danmerkur. Landssjóður fékk leyfi með lögum árið 1885 til þess að gefa út íslenska peningaseðla fyrir allt að hálfri milljón króna og skyldi það verða fyrsta starfsfé Landsbanka Íslands. Fyrsti seðillinn, fimm krónur, fór í umferð 21. septem- ber 1886. Hann var 105 sinnum 160 mm að stærð, grár að lit en brjóstmynd af Kristjáni IX og letur var í svörtu. Í júlí sama ár komu tíu og fimmtíu króna seðlar. Bakhliðin á fimmtíu króna seðl- inum var með áprentaðri fjallkonu en bakhliðin á hinum seðlunum var auð. ÞETTA GERÐIST: 2. JANÚAR 1871 Drög lögð að íslenskri krónu Alþjóðlegir vetrarleikar verða haldnir í Hlíðarfjalli á Akureyri í mars, en á mótinu verður keppt bæði í skíða- íþróttum og á snjóbretti. Keppendur á mótinu verða um það bil 100 talsins en þeir koma aðallega frá Noregi, Svíþjóð og Íslandi. Mótið er haldið í samstarfi bæði við aðila í ferðaþjónustu á Norður- landi og einnig við sambærilegt stórmót í Noregi sem ber nafnið Norwegian Open, en það er mót sem hefur farið ört stækkandi frá því það var fyrst haldið árið 2009. Markmiðið er að mótið í Hlíðarfjalli verði meðal þeirra bestu í Evrópu og ráðgert er að í framtíðinni muni keppendum fjölga upp í rúmlega eitt þúsund. Þá er stefnt að því að mótið muni teygja sig bæði til Siglufjarðar og Dalvíkur á komandi árum. Talið er að aðstæður í Hlíðarfjalli séu algjörlega fyrsta flokks fyrir leika sem þessa og vonast er til að að innan fárra ára komi mótið til með að laða til sín þúsundir ferðamanna. Leikarnir verða haldnir dagana 6.-9. mars. Alþjóðlegir leikar í Hlíðarfj alli Á leikunum verður keppt í vetraríþróttum og von er á um 100 keppendum. SKÍÐAKAPPI Keppt verður á skíðum og snjóbrettum á vetrarleikunum í ár. Tónlistarhátíðin Myrkir músík dagar verður haldin dagana 30. janúar til 2. febrúar en hátíðin verður í Kaldalónssal Hörpu. Í ár er hægt að kaupa hátíðarpassa sem gildir á alla hátíðina en einnig verður mögulegt að kaupa sig inn á staka tónleika. Það er Tónskáldafélag Íslands sem stendur fyrir hátíðinni en hún hefur verið haldin frá árinu 1980. Í þetta sinn mun hátíðargestum gefast kostur á að hlýða á tónlistarflutning sænska kvartettsins Stock- holm Saxophone, en hljóm- sveitin er þekkt fyrir áhuga- verða blöndu af saxófónleik og raftónlist. Hljómsveitin Nordic Affect kemur einnig fram en nafn sveitarinnar vísar í hughrif sem barokktónlist hefur í aldanna rás verið talin vekja hjá þeim sem á hana hlýðir. Listrænn stjórnandi sveitarinnar er Halla Steinunn Stefánsdóttir og kemur hljómsveitin til með að leika barokktónlist í bland við nýstárleg samtímaverk. Af fleiri flytj- endum má nefna píanóleikarann margrómaða Megumi Masaki en hún hefur lengi talað fyrir nútímatónlist og er mjög virtur fræðimaður á sviði tónlistarflutnings. Bozzini-strengjakvartett- inn kanadíski mun einnig flytja tilraunakennda samtímatónlist á hátíðinni en kvartettinn mun flytja verk eftir tónskáldin Leif Þórarinsson, Jennifer Walshe og John Cage. Sinfóníuhljómsveit Íslands opnar hátíðina með glæsilegum tónleikum í Eldborg þar sem flutt verða ný og framsækin íslensk verk. Miða á hátíðina má nálgast á midi.is og í Hörpu. - jme Von á fj ölda frá- bærra listamanna Miðasala er hafi n á Myrka músíkdaga sem haldnir verða í Hörpu KVARTETTINN STOCKHOLM SYNDROME leikur blöndu af saxófónleik og raftónlist á tónlist- arhátíðinni.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.