Fréttablaðið - 02.01.2014, Side 26
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is,
s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
Bókin hefur vakið athygli en höfundurinn, Mireille Guiliano, sem er 67 ára, gefur
konum sem komnar eru yfir fertugt
góð ráð til að halda sér unglegum
og í góðu formi. Sjálf segist í við-
tali við Parade Magazine vilja lifa
lengur og betur. Hér eru nokkur
góð ráð sem Mireille hefur tileink-
að sér og gefur öðrum konum.
1. FARÐAÐU ÞIG MINNA
Mireille segist sjá of margar konur
sem geri sig ellilegri en þær þurfa.
Þær klæði sig óviðeigandi miðað
við aldur. Maður á að taka á móti
aldrinum með jákvæðu hugarfari
og heilbrigðum lífsstíl. Hreyfing
er galdurinn til að forðast öldrun.
Konur eiga ekki að klæða sig
eins og dætur sínar til að sýnast
yngri. Þær eiga að hylja handleggi,
henda bikiníinu í ruslið og mála sig
minna. Of mikill farði gerir konur á
þessum aldri ellilegri og hrukkurn-
ar verða meira áberandi. Best er
líka að sleppa eldrauðum varalit.
2. BORÐAÐU MAT SEM ER GÓÐUR
FYRIR ANDLITIÐ
Þegar við eldumst getum við ekki
borðað og drukkið eins og þegar
við vorum ungar. Líkaminn bregst
ekki eins við því sem við látum
ofan í okkur og hann þarf minna.
Það er allt í lagi að hafa nammi-
daga en þess frekar þarf að gæta
sín aðra daga. Eldaðu einfalda rétti
með áherslu á grænmeti og korn.
Skiptu út salti og fitu fyrir jurtir
og ferskt krydd, borðaðu súpur
og mikið af ávöxtum. Ekki gleyma
ostrum, hunangi og dökku súkku-
laði, en þetta þrennt telst ofurfæði.
3. ÞVOÐU ANDLITIÐ
Miklu skiptir að hreinsa húðina vel
fyrir svefninn til að viðhalda heil-
brigði hennar. Ekki nota sápu, hún
þurrkar húðina. Notaðu gott raka-
krem eftir góðan þvott. Það þarf
þó ekki að vera dýrt rakakrem.
Hægt er að nota vaselín eða dropa
af arganolíu en hún getur gert
kraftaverk fyrir húðina.
4. HÁRGREIÐSLAN
Haltu hárinu alltaf hreinu og vel
snyrtu. Það skiptir miklu máli fyrir
útlitið. Láttu klippa það miðað við
aldur og andlit. Falleg hárgreiðsla
yngir konur og þær fá fremur hrós
ef þær líta vel út.
5. HLÁTUR OG GÖNGUR
Göngutúr í fimmtán mínútur
daglega er ákaflega mikilvægur.
Gakktu upp stigann í stað þess
að taka lyftuna og labbaðu í
kringum húsið til að fá smávegis
hreyfingu. Einnig er mjög gott að
synda og hjóla. Jafnvel dans getur
liðkað líkamann og smá hlátur
er nauðsynlegur. Gott skap gerir
kraftaverk.
6. VATN
Vatn er ódýrt en það vinnur gegn
öldrun. Gott er að drekka eitt glas
af vatni fyrir svefn og eitt glas á
morgnana. Einnig er gott að drekka
vatn yfir daginn því það viðheldur
rakajafnvægi húðarinnar, auk þess
að hreinsa líkamann af óæskilegum
efnum. Ekki spara vatnið.
7. ZZZ...
Góður svefn er ákaflega mikil-
vægur þegar árin færast yfir.
Svefninn bætir húð og hár, gefur
orku og betra skap. Átta klukku-
stundir eru nægilegar. Svefn-
herbergið á ekki að vera staður
fyrir vinnu eða sjónvarpsgláp.
Sofðu við opinn glugga til að fá
ferskt loft inn. Herbergið á að
vera róandi, dýnan á að vera góð
og sömuleiðis koddinn.
FRANSKAR KONUR FÁ SÉR EKKI
ANDLITSLYFTINGU
FLOTTAR KONUR Fyrir jólin kom út í Bandaríkjunum bókin Franskar konur fá sér ekki andlitslyftingu (French Women Don´t Get
Facelifts: The Secret of Aging with Style and Attitude) eftir Mireille Guiliano, höfund metsölubókarinnar Franskar konur fitna ekki.
HÖFUNDURINN Mireille Guiliano er 67
ára og gaf út aðra bók sína um franskar
konur rétt fyrir jólin. Hún er sjálf af
frönskum ættum, býr í New York en á
íbúðir í París og Provence.
www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | fi@fi.is | www.fi.is Skráðu þig inn – drífðu þig út
Eitt fjall á viku
Gakktu á eitt fjall í viku með Ferðafélagi Íslands á nýju ári.
Nýársgjöfin frá þér til þín er bætt líðan og betra form á nýju ári.
Upplifðu íslenska náttúru í skemmtilegum félagsskap undir
öruggri fararstjórn og lærðu að þekkja landið.
Esjan, Keilir, Helgafell, Botnssúlur, Eyjafjallajökull, Akrafjall,
Réttarfell, Löðmundur og 44 önnur fjöll.
Dagsferðir allt árið og tvær helgarferðir að auki.
Komdu með okkur og finndu náttúrubarnið í hjarta þínu.
Fararstjórar: Páll Ásgeir Ásgeirsson ásamt Rósu Sigrúnu Jóns-
dóttur, Hjalta Björnssyni, Guðmundi Sveinbirni Ingimarssyni og
Brynhildi Ólafsdóttur.
Kynningarfundur í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6 kl. 20.00
2. janúar n.k.
Sjá nánar um „Eitt fjall á viku“ á www.fi.is
Eitt fjall á viku m
eð FÍ 2014
Upplifðu náttúru
Íslands
GOTT ÚTLIT Í bókinni Franskar konur fá sér ekki andlitslyftingu eru þeim sem vilja líta
betur út þegar aldurinn færist yfir gefin góð ráð.