Fréttablaðið - 02.01.2014, Side 27
Eitt vinsælasta
heilsueflingarnámskeið
landsins er haldið við
Heilsuhótel Íslands að Ásbrú
í Reykjanesbæ. Þar er boðið
upp á nýjan lífsstíl þar sem
sérstök rækt er lögð við breytt
mataræði, hreyfingu, fræðslu,
vellíðunarmeðferðir og
jákvæða hugsun, allt í senn.
Heilsuhótel Íslands er skóli
heilsu, forvarna og fræðslu og í
einstöku húsnæði til heil stæðrar
uppbyggingar. Gestir sækjast
gjarnan eftir því að komast úr
daglegu amstri og streituvaldandi
umhverfi. Á Heilsuhótelinu geta
gestir dvalið í friði og ró. Flestir
eru gestirnir á aldrinum 18 til 65
ára, vinnandi fólk með áhuga á
að efla sína þekkingu á heilsu en
allir eru velkomnir.
Á hótelinu eru 43 herbergi, eins
og tveggja manna. Rými er fyrir
55 gesti hverju sinni. Öll herberg-
in eru einstaklega rúmgóð með
baðherbergi. Gestir hafa aðgang
að heilsulind hótelsins eins og
innrauðum klefum, heitum potti,
gufubaði og slökunarrými.
Hótelið er með leyfi sem heilsu-
stofnun, skóli forvarna og fræðslu
en einnig sem hótel og ferðaskipu-
leggjandi. Félagið hlaut nýverið
hvatningarverðlaun ráðherra,
viðurkenningu fyrir áhugaverð-
ustu hugmynd að heilsutengdri
ferðaþjónustu. Í desember 2013
var hótelinu veitt viðurkenning
og styrkur frá Vaxtasamningi
Suðurnesja, sem gerir hótelinu
kleift að stórefla kynningar á
starfsemi þess erlendis. Heilsu-
dvöl býðst reglulega og er vana-
lega um tveggja vikna dvöl að
ræða en einnig er mögulegt að
nýta hótelið og þjónustu þess yfir
helgar til hvíldar og slökunar.
Einstaklingar sem vilja bæta
líkamlega og andlega líðan eða
takast á við einkenni lífsstíls-
sjúkdóma; hækkaðan blóðsykur,
blóðþrýsting, vöðva- og liðverki,
mígreni, streitu, svefnleysi,
kvíða, bakflæði, áunna sykursýki
eða umframþyngd meðal annars,
hafa náð markverðum árangri á
heilsunámskeiðum hótelsins.
Þess má geta að flest betri
stéttarfélög, sjúkra- og/eða
fræðslusjóðir styðja vel við
félagsmenn vegna lífsstíls-
breytinga og fræðslu á hótelinu
og hefur það gefist vel.
Heilsuskóli og náttúrulækningar
Ævintýraleg lífsorka og gleði
Heilsunámskeið
vorönn 2014 – tvær vikur
3.-17. janúar, 5 laus herbergi
7.-21. mars, enn laust
Betra að panta tímanlega vegna
aðsóknar á vornámskeiðin.
Staðfestingargjald 20% eða kr.
45.000.
Flest stéttarfélög og fyrirtæki styrkja
þátttakendur.
Heilsuhelgar í
janúar – mars 2014
24.-26. janúar uppselt
14.-16. febrúar uppselt
28.-30. mars, gleði og gaman,
kynningarhelgi.
Tilboðsverð kr. 24.500 á mann,
tveir saman í herbergi.
Allt innifalið, aðgengi að Heilsu-
lind, leiðsögn um Bláa lónið.
Hollt og gott fæði, fræðsla og
hreyfing.
Spennandi og uppbyggilegur val-
kostur fyrir alla, konur sem karla.
Kynnist þessu einstaka hóteli.
Nýtt 2014
Sérnámskeið og fræðsla og fyrir
fólk í yfirþyngd
4. -17. apríl*
* Eftirfylgni í 6 mánuði.
Hættum að reykja 2014
17.-19. janúar, uppselt
Biðskráning í síma 5128040
28.-30. mars, laust
Væntanlegt námskeið.
Verð kr. 49.500. með gistingu,
fæði, kennsluefni og námskeiðs-
gjald.
Stéttarfélög styrkja reykleysis-
námskeið.
Nánari upplýsingar
www.heilsuhotel.is
heilsa@heilsuhotel.is
Ásbrú – Reykjanesbæ
Bókanir
Sími 5128040
Munum að bætt heilsa, aukið
þrek og orka er uppskrift að
hamingjusamara lífi.
Heilsuhótel
Íslands
Ásdís Ragna
Einarsdóttir
grasalæknir
Chad
Keilen
BSc Heilsuvísindi
Sólveig Klara
Káradóttir
hjúkrunarfræðingur
Steinunn
Aðalsteinsdóttir
heilsumarkþjálfi
FYRIRLESARAR OG KENNARAR