Fréttablaðið - 02.01.2014, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2014 3Heilsuhótel Íslands ●
Vinkonurnar Rannveig Guðmundsdóttir, fyrr-
verandi alþingismaður, og Hrefna Hagalín áttu
notalega stund á Heilsuhóteli Íslands á síðasta
ári. Þær höfðu lengi stefnt á að gera eitthvað
skemmtilegt saman og eftir að hafa rætt málin
komust þær að því að þær hafi báðar lengi
viljað heimsækja Heilsuhótelið. „Við ákváðum
að skella okkur saman vinkonurnar í tvær
vikur og ég get svo sannarlega mælt með dvöl-
inni þar. Það er líka alveg frábært að fara með
vinkonu sinni á svona stað. Við vorum saman í
herbergi og urðum gömlu æskuvinkonurnar á
ný. Við spjölluðum, æfðum, skipulögðum okkur
og áttum svo skemmtilegar stundir saman.
Maturinn var virkilega góður en hann
byggðist eingöngu á grænmeti og ávöxtum.
Mikil hreyfing og líkamsrækt er í boði.
Hún samanstendur af útiveru, líkams-
rækt, og mikilli fræðslu. Ekki má gleyma
dekri, nuddi og innrauða klefanum sem er
svakalega vinsæll, en hann hefur frábær
áhrif á vöðva og stífa skrokka. Maður er
því svo sannarlega að rækta bæði líkama
og sál á Heilsuhótelinu. Við ætlum örugg-
lega að heimsækja Heilsuhótelið aftur fljót-
lega. Við vorum með væntingar fyrirfram
en dvölin var framar öllum væntingum
okkar.“
Frábær dvöl fyrir
vinkonurnar
„Við ákváðum að skella okkur saman vinkonurnar í tvær vikur og ég get svo sannarlega mælt með dvölinni,”
segir Rannveig Guðmundsdóttir.
Ingvar Berndsen missti 27 kíló eftir dvöl á Heilsuhóteli
Íslands fyrir ári og líður betur á líkama og sál.
„Ég var búinn að hugsa um það í tvö ár að fara á Heilsu-
hótelið áður en ég lét verða af því. Ég hafði lesið um ýmsa
sem höfðu farið og náð góðum árangri. Um áramótin í fyrra
ákvað ég að koma konu minni á óvart með tveggja vikna
hótel dvöl,“ segir Ingvar, sem er ákaflega ánægður með þann
árangur sem hann hefur náð eftir dvölina. „Strax eftir fjóra
eða fimm daga var ég farinn að finna gríðarlegan mun á
mér. Fyrir dvölina var ég orðinn mjög stirður, fann alltaf til
í liðum og öllum líkamanum þegar ég stóð upp úr stólum. Þá
var ég búinn að vera reglulega í nuddi í hátt í tuttugu ár til að
halda niðri vöðvabólgu og öðrum bólgum í líkamanum. Þessir
kvillar hurfu eftir veru mína á hótelinu,“ lýsir Ingvar sem
losnaði einnig við krónískar nefstíflur sem hann hefur glímt
við frá því hann var ungur maður. „Eftir að ég fór á Heilsu-
hótelið hef ég varla þurft að snýta mér.“
Ingvar segist finna fyrir mikilli breytingu á sjálfum sér
og segir að aðrir taki líka eftir því. „Enda hef ég misst 27
kíló,“ upplýsir hann glaðlega. Ingvar segir Heilsuhótelið full-
komið fyrir fólk sem vilji breyta lífsstílnum en þurfi hjálp til
að stíga fyrstu skrefin. Sjálfur hefur Ingvar viðhaldið lífs-
stílnum sem hann tileinkaði sér á hótelinu. „Mig var farið að
gruna að ég væri með óþol fyrir ýmsum mat enda var bólgan
í líkamanum ekki eðlileg. Ég sleppi núna hveiti og sykri og
borða skynsamlega,“ segir hann og bætir við að kílóin 27 hafi
hrunið af honum án þess að hann hefði neitt mikið fyrir því.
Ingvar mælir því hiklaust með Heilsuhótelinu. „Svo er
þetta líka alger slökun og mikið dekur. Mun meira dekur
en að fara í sólarlandaferð til Tenerife,“ segir hann glett-
inn og hefur þegar pantað sér dvöl á Heilsuhóteli Íslands nú
um áramótin.
Dvöl á Heilsuhóteli Íslands breytti lífinu
Ingvar Berndsen dvaldi í hálfan mánuð á Heilsuhóteli Íslands fyrir ári. Dvölin hafði mikil og góð áhrif á heilsu Ingvars. MYND/STEFÁN
Þegar dóttir hennar stakk upp á því að
þær mæðgurnar færu saman í frí átti
Svanhildur von á því að þær væru á leið-
inni til Havaí. Dóttir hennar, Sigríður
Björnsdóttir, hafði þó aðrar hugmyndir og
hvatti móður sína til að koma með sér á
Heilsuhótel Íslands í tvær vikur. „Ég til-
kynnti vinum og ættingjum að ég myndi
hefja fríið á Íslandi á Heilsuhótelinu og
myndi hitta hópinn síðar. Ég missti mann-
inn minn og í hönd fór langur sorgartími.
Ég glímdi við þunglyndi og gekk í gegnum
mikinn kvíða og fannst erfitt að komast
upp úr þessu öllu saman. Dvölin breytti
miklu og seinni vikuna hlakkaði ég til að
fara á fætur.
Svæðið er mjög sérstakt og gaman að
labba um þar sem herinn var áður fyrr.
Eftir göngur voru teygjur og leikfimi en
næst tók við fræðsla um heilbrigt líf, nær-
ingu og hreyfingu og hvernig á almennt
að lifa betra lífi.
Við heimsóttum Vogana, Sandgerði og
Garðinn og síðan löbbuðum við upp á Þor-
björn við Grindavík og fórum í Bláa lónið.
Á kvöldin var mikið spilað og hlustað á
fyrirlestra. Gestir gátu stýrt sér sjálfir.
Sumir slökuðu á, hugleiddu eða lásu góða
bók.
Aðstaðan á Heilsuhótelinu var til fyrir-
myndar. Lífsorkan mín endurnýjaðist og
lífsstíllinn breytist í kjölfarið.“
Áhugaverðara en
Honolúlú
„Þetta var stórkostleg dvöl, andrúmsloftið var gott og starfsfólkið frábært,“ segir Svanhildar Svavarsdóttur.
MYND/ARNÞÓR
Svanhildur Svavarsdóttir hefur verið búsett í Bandaríkjunum í tvo áratugi. Hún
ákvað að eyða hluta af sumarfríi sínu hérlendis með dóttur sinni á Heilsuhóteli
Íslands og sér ekki eftir því.
Frábær aðstaða og gott starfsfólk býður gesti velkomna í fallegt umhverfi á Reykjanesi.