Fréttablaðið - 02.01.2014, Qupperneq 40
2. janúar 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 32
TÓNNINN
GEFINN
Kjartan Guðmundsson
Hvað skyldi nú gerast í tónlistarheiminum á þessu glænýja ári? Eflaust
margt og mikið eins og endranær, en fljótt á litið stendur upp úr sú stað-
reynd að klaufarnir verða mjög líklega áberandi. Einhverjir myndu jafnvel
ganga svo langt að tala um hefnd klunnanna í þessu sambandi, enda
leitun að meiri aulabárðum en U2 og Guns n‘ Roses. Báðar hafa sveitirnar
boðað útkomu nýrra breiðskífa á árinu.
U2-strákarnir voru víst þaulsetnir í stúdíóinu fyrir jólin, sveittir við að
leggja lokahönd á plötu sem kemur líklega út í apríl og gæti hugsanlega heit-
ið Songs of Ascent eða 10 Reasons to Exist. Upptökustjórarnir Danger Mouse,
Will.i.am, David Guetta, og RedOne munu víst allir leggja
hönd á plóg, en skemmst er að minnast þess
að þeir Bono, Edge, Adam og Larry sýndu af
sér fádæma klaufaskap árið 1997 þegar þeir
ætluðu að vera töff og hefja tónleika í Osló
á PopMart-hljómleikaferðalagi sínu með
því að ganga inn á sviðið út úr risastórri,
vélknúinni sítrónu (eins og laginu, munið
þið?) Ekki fór betur en svo að tæknin
stríddi drengjunum örlítið, sítrónan
opnaðist ekki og áhorfendur
þurftu að bíða í óratíma þangað
til rótararnir þröngvuðu lokinu
upp og meðlimirnir klöngruð-
ust út við illan leik.
Ekkert sérstaklega töff, en
þó hátíð miðað við aulagang-
inn í Axl Rose og félögum
á tónleikum í sömu borg
fyrir fjórum árum. Guns n‘
Roses hafa lofað nýrri plötu
á árinu, en að sjálfsögðu
er best að fara varlega í að
treysta á nokkuð í þeim efnum
eftir Chinese Democracy-
ævintýrið ógurlega. Í Osló,
snemmsumars 2010, hugðist
Axl ljúka tónleikum með stæl
og þóknast áhorfendum með
því umvefja sig þjóðfána þeirra
og hlaupa um sviðið. En Axl er
auðvitað klaufi og klæddi sig
því í sænska fánann en ekki
þann norska. Vandræðaleg
mistök, en við hverju bjuggust
frændur okkar Norðmenn svo
sem af þessum aulum?
Ár klaufanna
„Þetta ár hefur verið alveg frá-
bært,“ segir Snæbjörn Ragnars-
son, bassaleikari Skálmaldar. Þeir
léku eins og flestir vita með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands á þrennum tón-
leikum í Eldborgarsal í Hörpu í lok
nóvember en uppselt var á alla tón-
leikana.
Tónleikarnir voru teknir upp og
gefnir út þann 18. desember í 4.700
eintökum en á hádegi á Þorláks-
messu var hvergi hægt að kaupa
eintak af tónleikaupptökunni. „Þetta
er alveg lyginni líkast og við erum
mjög þakklátir fyrir viðtökurnar,“
segir Snæbjörn Ragnarsson.
Í tilefni útgáfunnar settust með-
limir Skálmaldar niður fyrir
framan Skífuna í Kringlunni og
árituðu plötuna. „Við sátum í tvær
klukkustundir fyrir framan Skíf-
una og árituðum á fullu. Við höfum
örugglega talað við svona þrjú til
fjögur hundruð manns, þetta var
lyginni líkast,“ útskýrir Snæbjörn.
Röðin sem varð til við áritunina var
gríðar lega löng og sögðust starfs-
menn Skífunnar sjaldan hafa séð
annað eins mannhaf í kringum
áritun.
Aðspurður um samstarfið við
Sinfóníuna segir Snæbjörn allt
hafa gengið rosalega vel. „Haraldur
Sveinbjörnsson kann sitt fag, hann
talar bæði rokktungumálið og klass-
íska tungumálið. Hann vann virki-
lega gott starf í útsetningunum og
það var einnig frábært að vinna
með Bernharði Wilkinsyni, stjórn-
anda Sinfóníunnar.“
Fyrir utan Sinfóníusamstarfið
hefur árið verið gott hjá
Skálmaldar mönnum. „Ætli við
séum ekki búnir að spila á svona
áttatíu til hundrað tónleikum á
árinu.“ Sveitin fór á Evróputúr í
október og nóvember og einnig í tón-
leikaferðalag um Ísland. Þá fengu
þeir afhenta gullplötu fyrir plötuna
Börn Loka fyrir skömmu.
„Við förum svo á stóra sviðið í
Borgarleikhúsinu á árinu þegar
sagan Baldur verður sett upp þar.
Ég get lítið sagt um það eins og er
en það kemur í ljós á næstunni, það
verður allavega rokkað í Borgar-
leikhúsinu,“ bætir Snæbjörn við.
Baldur er fyrsta breiðskífa Skálm-
aldar.
Skálmöld stefnir á að gefa út plötu
fyrir næstu jól. „Við ætlum að halda
áfram að vera duglegir á næsta ári
og ég yrði virkilega hissa ef það
kæmi ekki út plata frá okkur fyrir
næstu jól.“
gunnarleo@frettabladid.is
Sigur Skálmaldar
Árið hefur verið viðburðaríkt hjá Skálmöld og var lokahnykkurinn á árinu að
platan Skálmöld og Sinfó seldist upp á örfáum dögum, 4.700 eintök á 4 dögum.
ÖLLU TJALDAÐ TIL Alls voru um 300 manns á sviðinu þegar mest var. MYND/LALLI SIG
LAGALISTINN TÓNLISTINN
24.12.2013 ➜ 01.01.2013
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
1 Baggalútur Mamma þarf að djamma
2 Kaleo Kaleo
3 Drangar Drangar
4 Skálmöld og Sinfó Skálmöld og Sinfó
5 Sigríður Thorlacius Jólakveðja
6 Ýmsir Pottþétt 61
7 Björgvin Halldórsson Duet III
8 Helgi Björnsson Helgi syngur Hauk
9 Mammút Komdu til mín svarta systir
10 Emilíana Torrini Tookah
1 Of Monsters And Men Silhouettes
2 Kaleo Automobile
3 Avicii Hey Brother
4 Nýdönsk / John Grant Sweet World
5 Gary Barlow Let Me Go
6 A Great Big World / Christina Aguilera ................... Say Something
7 Ellie Goulding How Long Will I Love You
8 Bastille Of The Night
9 Calvin Harris / Hurts Under Control
10 Baggalútur Allt
Þetta er alveg lyginni
líkast og við erum mjög
þakklátir fyrir viðtökurnar.
Snæbjörn Ragnarsson
FRUMKVÖÐULL Í 30 ÁR
kramhusid.is
551·5103&551·7860
Komdu!Byrjum 6. janúar
SKRÁNING
STENDUR
YFIR
í Kramhúsið
» Yoga » Leikfimi
» Pilates
DANSNÁMSKEIÐ
beyoncé · bollywood
afró · house dans
burlesque · tangó
húlla · magadans
zumba
balkan
contemporary
FJÖLBREYTT NÁMSKEIÐ
fyrir 3ja til 16 ára
Dans og skapandi hreyfing
tónlistarleikhús · breikdans
popping · yoga · afró
FRUMKVÖÐULL Í 30 ÁR