Fréttablaðið - 02.01.2014, Page 48
2. janúar 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40
BAKÞANKAR
Bergs Ebba
Benediktssonar
Kanínukjöt verður að öllum
líkindum til sölu í íslenskum
verslunum næsta haust. Slátur-
húsið KVH á Hvammstanga hefur
fengið leyfi frá Matvælastofnun
til þess að slátra kanínum til
manneldis. Slátrunin hefst næsta
haust, samkvæmt fréttum Ríkis-
útvarpsins. Úlfar Finnbjörnsson
matreiðslumeistari hefur reynslu
af því að matreiða kanínur ofan í
Íslendinga.
„Íslendingar eru ekkert ofsa-
lega hrifnir af kanínum,“ segir
hann. „Ég reyndi að bjóða upp á
kanínukjöt í kringum 1992 á veit-
ingastaðnum Jónatan Livingston
Mávur. Það gekk ekkert að selja
fólki kanínur, og ég komst eigin-
lega á þá skoðun að menn þyrftu
að vera aldir upp við þetta til að
finnast þetta gott. Það getur vel
verið að það hafi breyst. Menn
voru kannski ekki tilbúnir á
þessum árum, en kanínukjöt er
borðað svakalega víða og mikið.
Nýbúarnir kunna að borða þetta,
enda er þetta nýtt úti um allt.“
Blaðamaður spyr Úlfar hvort
ekki væri hægt að nýta ýmislegt
fleira kjöt sem ekki er hefð fyrir
að leggja sér til munns á Íslandi,
eins og til dæmis af spörfuglum.
„Það hafa verið sögusagnir um
að lóur og spörfuglar séu skotnir
í Frakklandi, en í raun er lítið um
það. Hrossagaukar hafa verið
skotnir en þetta er allt í voða
litlu magni þarna úti. En það er
náttúrlega fullt af fuglum sem við
gætum nýtt betur á Íslandi. Sér-
staklega vil ég nefna fýl og skarf.
Fýllinn hefur alveg sitt eigið
bragð, tiltölulega ljóst kjöt, ekki
mikið villibráðarbragð, en þetta
er afskaplega góður matur. Hann
er svolítið eins og selurinn að því
leyti að ef fólk smakkar hann þá
verður það vitlaust í hann. Sel-
urinn er alveg svakalega góður.
Hann er í ætt við hvalkjöt, nema
einu númeri betri. Ég er búinn að
nota hann svolítið í villibráðar-
veislum. Sumir eru hræddir
við að prófa hann en um leið og
þeir prófa eru þeir komnir upp á
lagið.“
ugla@frettabladid.is
Við ættum að borða sel og fýl
Kanínukjöt verður líklegast til sölu í verslunum á Íslandi næsta haust. Úlfari
Finnbjörnssyni gekk ekki vel að matreiða kanínur ofan í landann fyrir 20 árum.
SVAKALEGA GÓÐUR Úlfar Finnbjörnsson hefur matreitt sel við góðar undirtektir. MYND/VÍÐIR GUÐMUNDSSON
HOBBIT 2 3D (48R) 2, 4, 6, 7:30, 10, 11
ANCHORMAN 2 8, 10:30
RISAEÐLUNAR 3D 1:45
FROSINN 2D 1:45, 3:45, 6
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
sýnd í 3d 48 rammaS R
Ævintýrið heldur áfram
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
5%
NÝJASTA MYND MICHEL GONDRY
MOOD INDIGO
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
SPARBÍÓ
AKUREYRI
USA TODAY LOS ANGELES TIMES
T.V. - BÍÓVEFURINN/SÉÐ OG HEYRT
ROLLING STONE
EMPIRE
THE GUARDIAN
NÁNAR Á MIÐI.IS
THE HOBBIT 3D KL. 2 - 5 - 8 - 11
RISAEÐLURNAR 3D KL. 2 - 4 - 6 - 8
THE HUNGER GAMES 2 KL. 10 Miðasala á: og
Í SMÁRABÍÓI
THE HOBBIT 3D 48R
THE HOBBIT 3D48R LÚXUS
ANCHORMAN 2
RISAEÐLURNAR 3D ÍSL. TAL
RISAEÐLURNAR 2D ÍSL. TAL
FROSINN 2D ÍSL. TAL
THE HUNGER GAMES 2
KL. 1 (TILBOÐ) 04.30 - 6 - 8 - 9.30 - 11.2
KL. 1 - 4.30 - 8 - 11.20
KL. 5.20 - 8 - 10.35
KL. 1 (TILBOÐ) 3
KL. 1 (TILBOÐ) 3
KL. 1 (TILBOÐ) 3.20 -5.40
KL. 8 - 11
THE HOBBIT 3D
RISAEÐLURNAR 3D ÍSL. TAL
RISAEÐLURNAR 2D ÍSL. TAL
THE HUNGER GAMES
KL. 2.30 (TILBOÐ) 04.30 - 6 - 8 - 9.3
KL. 4 (TILBOÐ) 6- 8 - 10
KL. 2.30 (TILBOÐ) 4- 6
KL. 9
JÓLAMYNDIN Í ÁR
-H.S.S, MBL
Það gekk ekkert að
selja fólki kanínur, og ég
komst eiginlega á þá
skoðun að menn þyrftu að
vera aldir upp við þetta til
að finnast þetta gott.
Úlfar Finnbjörnsson
Ég fékk geggjaðan kroppaskrúbb fra IAM og svo Moringa duftpoka sem
tekur líkamann í vatnslosunarferli og
allsherjar hreinsun eftir saltneyslu og
konfektát, annars verður maður bara eins
og gúbbífiskur í framan af bjúg um ára-
mótin og það er ekki að gera sig.”
OFANGREINT er tilvitnun í sálfræðing
og athafnakonu sem birtist á dv.is 26.
desember síðastliðinn og ég tel lýsandi
fyrir það hvað margir eru að hugsa þessa
dagana, en það er bjúgur, sem er sam-
kvæmt orðabókarskilgreiningu „kvap-
bólga, lopi, það að vökvi safnist í vefi eða
holrúm líkamans.”
BJÚGUR! Einhvern veginn tókst
mér að lifa fyrstu 27 ár ævi
minnar án þess að heyra mikið á
þetta orð minnst. Það getur verið
að ég hafi heyrt það endrum og
eins en þá mest í læknisfræði-
legu samhengi - í tengslum við
sjúkdóma eða alvarleg vanda-
mál. En síðustu fimm ár eða
svo hefur bjúgurinn farið
sigurför. Það eru allir að tala
um þennan bjúg. Vinur minn sagði nýlega
við mig að hann hefði náð góðum árangri í
ræktinni, misst rúm tíu kíló „en helming-
urinn af því var náttúrulega bjúgur”. Hvað
er að? Er það bara orðinn sjálfsagður hlut-
ur að bólgna upp vegna ofneyslu á salti?
ÉG ljái máls á þessu vegna þess að í sögu-
legu samhengi hefur bjúgur lengi verið
vandamál, en ekki vegna ofneyslu eins
og nú heldur vegna skorts. Skyrbjúgur er
þekktastur en það er ógurleg bólga í tann-
holdi sem kemur til af vítamínskorti. Við
þekkjum líka kviðbólguna acites, þegar
maginn í hungurmorða fólki bólgnar
út. Við þekkjum þetta vandamál vegna
þess að átakanlegar myndir af afrískum
börnum með leið augu og þaninn maga
eru meitlaðar inn í huga okkar að eilífu.
JÁ. Ég vil að við fáum smá vestrænt sam-
viskubit í hvert skipti sem við kvörtum
undan bjúg. Ef bjúgurinn er ekki af völd-
um alvarlegra sjúkdóma heldur aðeins
ofáts þá skulum við bara hætta að tala um
hann. Auk þess er ekkert að því að vera
eins og gúbbífiskur í framan, það er bara
sætt.
Bjúgur