Fréttablaðið - 02.01.2014, Qupperneq 54
2. janúar 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 46
30.000
fréttaþyrstir
notendur
Smelltu þér á Fréttablaðsappið og lestu
blaðið hvar sem er og hvenær sem er
Fáðu Fréttablaðið ókeypis í spjaldtölvuna og snjallsímann
með Fréttablaðsappinu. Sláðu inn Fréttablaðið á Google
Play, Windows store eða í App store og náðu í appið.
„Ég ætla að berjast fyrir því að það
verði vitundarvakning á Íslandi
um hversu miklum mat við sóum,“
segir Rakel Garðarsdóttir, fram-
kvæmdastýra Vesturports, en
hún hyggst vekja athygli á þessum
málaflokki í auknum mæli á nýju
ári.
„Samkvæmt tölum sem ég hef
undir höndum henda Íslendingar
um það bil þrjátíu prósentum af
matnum sem þeir kaupa inn,“ segir
Rakel og bætir við að það sé galið
að svo miklum mat sé hent. „Á
meðan við hendum svona miklum
mat eru hundruðir milljóna svangir
í heiminum,“ segir Rakel og heldur
áfram.
„Það er of mikið framleitt, veit-
ingastaðir hafa of stóra skammta
og fólk treystir alltof mikið á
síðasta söludag, en það eru bara
framleiðendur sem ákveða hvenær
síðasti söludagur er og allur gangur
á því hversu mikið á að styðjast við
þessar dagsetningar,“ útskýrir
Rakel, en hún ætlar með ýmsum
leiðum að efla umræðuna á Íslandi.
„Þessi vitundarvakning hefur
orðið í Danmörku, Svíþjóð,
Þýskalandi og er að hefjast í
Bretlandi. Mig langar til þess að
fara í skóla til krakka og í stóru
fyrirtækin og útskýra hversu
mikil sóun það er að henda mat.
Ég vil opna á þessa umræðu svo
við getum bætt okkur,“ segir
Rakel, sem vill framleiða minna
magn af mat í meiri gæðum.
„Við erum alltof gráðug.“
- ósk
„Við erum alltof gráðug“
Rakel Garðarsdóttir ætlar í aðgerðir á nýju ári til efl a umræðu um sóun matar.
OF MIKIÐ FRAMLEITT AF MAT Rakel
Garðarsdóttir segir Íslendinga sóa alltof
miklum mat. MYND/ÚR EINKASAFNI
Sushipizzan á veitingastaðnum
Rub23. Það er besti matur sem ég
hef fengið.
Hildur Sif Kristborgardóttir, framkvæmda-
stjóri Goggs útgáfufélags
BESTI BITINN
Bragi Valdimar Skúlason,
Baggalútur og þáttastjórn-
andi: „Flippsturlað er tísku-
orðið 2013 í mínum orðaforða.
Það er ljómandi upphrópun og
hentar við flest tækifæri. Ein-
vala hefur svo algerlega tekið
við af ofnotaðasta orði tungu-
málsins, frábært. Frábært er
fyrir mér dautt. Lostfagur
hefur svo komið nautsterkt
inn á síðustu vikum. Það tekur
við af slettunni sexí. Það er
gamalt, gott og sulllöðrandi í
kynþokka.“
ugla@frettabladid.is
Bjöllers, slölli og elg
Ný orð fæddust á árinu eins og síðustu ár. Meðal þeirra eru bjöllers sem þýðir
bjór, slölli sem þýðir sleikur og sögnin að Sölva sig sem þýðir einfaldlega að taka
sjálfsmynd. Fréttablaðið og álitsgjafar völdu bestu nýju orðin árið 2013.
Konráð Jónsson lögfræðingur fann upp eftirfarandi slangur:
lol í óloli (orðtak) - samanber lán í óláni.
Dæmi: Eitthvað fyndið sem gerist í jarðarför.
sérhæfæva sig (orðtak) - sérhæfa sig í þeim tilgangi einum að monta sig.
Dæmi: Þegar lögfræðingur sérhæfir sig í miðaldabókmenntum.
fæðingarlolrofl (no) - skemmtilegt fæðingarorlof.
gangnamanna style (no) - skemmtilegur dans á réttarballi.
Kofi Annan í jólum (no) - þegar maður tekur sér frí annan í jólum til að
kynna sér ævi og störf Kofi Annan, fyrrum aðalritara Sameinuðu þjóðanna
➜ Fæðingarlolrofl
bjöllers (no) bjór
elg (forskeyti) merkir það sama og
mjög
hán (fn) nýtt persónufornafn í hvorug-
kyni sem vísar til manneskju af óræðu
kyni
Uppástunga frá Öldu Villiljósi að ís-
lenskun á sænska persónufornafninu
hen. Beygist eins og orðið lán.
negga (s) væla
Orðið hefur einnig eldri merkingu
sem er íslenskun á hugtakinu neg
sem kemur fyrir í bókinni The Game
eftir Neil Strauss. Það merkir að gera
góðlátlegt grín að stelpu í þeim tilgangi
að minnka sjálfstraustið hjá henni svo
daður við hana beri frekar árangur.
slölli (no) sleikur
Kemur fyrir í lagi með hljómsveitinni
Prins póló.
Sölva sig (n) taka sjálfsmynd
Til heiðurs Sölva Tryggva-
syni.
twerka (s) dansa twerk
þrotaður (l) lélegur
Slangur ársins 2013
FLIPP-
STURLAÐUR
Bragi Valdimar
er hrifinn
af þessari
upphrópun.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FRJÓTT ÍMYNDUNARAFL
Konráð fann til dæmis upp lol í óloli.
MYND/EINKASAFN
„Þetta var mjög áhugavert. Ég var
í veislu með vinafólki hér á Akur-
eyri og þekkti ekki marga í partíinu.
Þegar ég sá að þetta væri fyrsta
atriðið hugsaði ég: Þetta verður eitt-
hvað. En svo var þetta allt í lagi,“
segir leikarinn Hannes Óli Ágústs-
son. Hann túlkaði forsætisráðherr-
ann Sigmund Davíð Gunnlaugsson í
Áramótaskaupinu og var allsnakinn
á niðurrifskúlu í upphafsatriðinu.
Atriðið var skopstæling á
tónlistar myndbandi söngkonunnar
Miley Cyrus við lagið Wrecking Ball.
„Þetta var fyndinn tökudagur.
Þetta var með síðustu atriðum
sem voru tekin upp. Ég bý á Akur-
eyri og átti fyrsta flug um morgun-
inn til að mæta í tökur eldsnemma.
En svo var veðrið slæmt þannig
að ég var veður tepptur. Loksins
fékk ég flug. Ég er drifinn inn í
stúdíóið, ég klæddi mig úr og þurfti
að hanga samtals á þessum bolta í
fimm mínútur. Þá var þetta búið,“
segir Hannes. Sem betur fer tóku
tökurnar ekki lengri tíma því kúlan
fór ekki vel með djásn leikarans.
„Ég þurfti að hagræða þeim
aðeins, en virðing mín fyrir þessari
blessuðu söngkonu jókst. Það er
ekkert smá erfitt að hanga á þessari
kúlu.“
Hannes er afar ánægður
me ð Á r a mót a sk aupið og
gengur glaður inn í nýja árið.
„Ég er að leika með Leikfélagi Akur-
eyrar annað árið í röð og 17. janúar
frumsýnum við Gullna hliðið eftir
Davíð Stefánsson í leikstjórn Egils
Heiðars Antons Pálssonar. Mjög
skemmtileg nálgun á þetta klassíska
verk.“ - lkg
Ber meiri virðingu fyrir Miley
Hannes Óli Ágústsson opnaði Áramótaskaupið, kviknakinn á niðurrifskúlu.
LÍKUR SIGMUNDI Hannes Óli nær að
túlka forsætisráðherra með miklum
sóma. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN NÍELSSON