Fréttablaðið - 21.02.2014, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 21.02.2014, Blaðsíða 2
21. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 NÝSKÖPUN Nýsköpunarfyrirtækið Kerecis, sem er með höfuðstöðvar á Ísafirði, hefur tryggt 230 millj- óna króna hlutafjáraukningu til að halda áfram þróun á lækningavör- um sínum. Allir núverandi fjárfest- ar fyrirtækisins auka sinn hlut, auk tveggja nýrra fjárfesta sem koma að fyrirtækinu. „Það gekk vel að ganga frá fjár- mögnuninni – það er talsverður áhugi hjá fjár- festum að koma að félaginu og komust færri að en vildu,“ segir Guðmundur F. Sigurjónsson, stjórnarformaður Kerecis. „Ég er sérstaklega ánægð- ur með þennan árangur í ljósi þess hversu ungt félagið er.“ Guðmundur segir að fjármunirnir sem nú eru í hendi verði nýttir til að halda áfram þróun á stoðefnum sem ætluð er til notkunar við kvið- sliti, endursköpunar á brjóstum eftir brottnám vegna krabbameins, og heilabasts, en það er efnið á milli höfuðkúpu og heilans sem getur rofnað vegna slysa og krabbameins. Eins verður nýtt hlutafé notað til að halda áfram markaðssetningu á MariGen Omega3-vörunni, sem er stoðefni til meðhöndlunar á þrálát- um sárum sem eru alvarlegt heil- brigðisvandamál um allan heim. Kerecis tryggði sér markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir MariGen Omega3-sáravörur sínar síðasta haust. Það var að sögn Guðmundar mikilvægt skref fyrir fyrir tækið, en Bandaríkin eru stærsti markað- ur heims fyrir vörur fyrirtækisins og veltir 900 milljónum dala á ári – og er í örum vexti. Fyrirtækið fékk einnig mark- aðsleyfi í Evrópu í fyrra og er sala þegar hafin á Íslandi og Bretlandi í kjölfar þess, ásamt nokkrum lönd- um í Mið-Austurlöndum. Sala á öðrum mörkuðum er í burðarliðn- um auk þess sem Kerecis vinnur að öflun markaðsleyfa annars staðar í heiminum, til dæmis í Kína og á Indlandi. svavar@frettabladid.is Færri fengu en vildu kaupa hlut í Kerecis Kerecis á Ísafirði hefur lokið 230 milljóna króna hlutafjáraukningu fyrirtækisins. Tveir nýir fjárfestar koma að fyrirtækinu en núverandi fjárfestar bættu allir við sinn hlut. Fénu verður varið til þróunar nýrrar tækni og markaðsstarfs. GUÐMUNDUR F. SIGURJÓNSSON FRAMLEIÐSLA Áætlað er að vörur til að meðhöndla kviðslit og til endursköpunar á brjóstum eftir brottnám fari á markað á næstu tveimur árum. MYND/KERECIS Fjárfestarnir sem koma nýir að Kerecis eru í fjárfestahópnum Capital ehf., sem er í eigu Sigurbjörns Þorkelssonar, fyrrverandi bankamanns og eins af eigendum Haga, og 1924 ehf., sem er meðal annars í eigu Haraldar Jónssonar, fyrrverandi forstjóra Innness og stjórnarformanns Haugen Gruppen. Fyrir í fjárfestahóp Kerecis voru Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Omega3 ehf., sem er fjárfestingarsjóður tengdur Novator í Lundúnum, og vestfirsku sjávarútvegsfyrirtækin Klofningur og Hraðfrystihúsið–Gunnvör hf. ➜ Tveir nýir bætast í fjárfestahóp Kerecis ■ MariGen Omega3 er þorskroð sem fellur til hjá sjávarútvegs- fyrirtækjum á Vestfjörðum og með höndlað hefur verið þannig að allar frumur og ofnæmisvaldandi efni hafa verið fjarlægð úr roðinu. ■ Fyrir á markaðnum eru stoðefni sem unnin eru úr húð, þvagblöðrum, þörmum og gollurhúsum svína, manna og nautgripa. Stoðefni úr fiski gefur því ákveðið forskot þar sem ekkert er um trúarlegar hindranir, eins og þegar um vörur úr svínavef er að ræða. Þá smitast ekki sjúkdómar úr fiskum í menn, ólíkt vefjum manna og dýra. MEÐHÖNDLUN Á ÞRÁLÁTUM SÁRUM SUÐUR-KÓREA, AP Tugir aldraðra íbúa Norður- og Suður-Kóreu hitt- ust í gær á ferðamannastað við rætur Kumgang-fjalls á landamærum ríkjanna. Þetta urðu tilfinningaþrungnir fundir því íbúar ríkjanna hafa verið aðskildir í sex áratugi og engir fengið að hittast í meira en þrjú ár. Þeir munu þó dvelja þarna í nokkra daga og fá tækifæri til að rifja upp minningar og segja frá því sem á daga þeirra hefur drifið. Minnstu munaði að Norður-Kóreustjórn hætti við að leyfa fólkinu að hittast. Að þessu sinni mættu um 80 manns frá Suður-Kóreu og reiknað var með um 180 manns frá Norður-Kóreu. Enginn þeirra hefur áður fengið að taka þátt í endurfundum af þessu tagi. - gb Tilfinningaþrungin stund á mörkum Suður- og N-Kóreu: Hittust eftir áratuga aðskilnað ALDRAÐAR SYSTUR HITTUST Tár féllu þegar þær Lee Jong-Sil frá Norður-Kóreu og Lee Yong-Sil frá Suður-Kóreu hittust eftir áratuga aðskilnað. NORDICPHOTOS/AFP Bjarni, er leigufélagið klettur í lífi leigjenda? Já, það er okkar bjargfasta trú. Leigufélagið Klettur keypti 517 íbúðir af Íbúðalánasjóði, sem munu fara í lang- tímaleigu, og geta leigjendur gert ráð fyrir að hafa húsnæðið til afnota í lengri tíma en áður hefur þekkst. VIÐSKIPTI Höfnun atvinnuvega- ráðuneytisins á beiðni Haga um gjaldlausan innflutning á ákveðn- um ostum og lífrænum kjúklingi er ólögmæt, að mati Félags atvinnu- rekenda. Félagið hyggst fara fram á að ákvörðun ráðuneytisins verði dregin til baka. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins frá því í gær. Þar segir að samkvæmt búvöru- lögum sé ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara skylt að senda tillögur sínar til ákveðinna aðila sem geta veitt sérfræðiráðgjöf. Þessir aðilar eru Bændasamtök Íslands, Sam- tök verslunar og þjónustu, Neyt- endasamtökin og Félag atvinnu- rekenda. Þeir hafi þá tíma til að bregðast við og koma til skila upp- lýsingum áður en tillögurnar eru sendar til ráðherra. Félagið segir umsókn Haga ekki hafa borist til sín áður en henni var hafnað. Því eigi að draga þá ákvörðun ráðuneytisins til baka og senda málið lögbundnu álits- gjöfunum til umsagnar. - bá Félag atvinnurekenda vill draga ákvörðun atvinnuvegaráðuneytisins til baka: Höfnun á beiðni Haga ólögmæt ATVINNUREKENDUR ÓSÁTTIR Í til- kynningu segir Almar Guðmundsson meðferð málsins á skjön við ákvæði laganna. NORDICPHOTOS/AFP DÝRAHALD Eftirlitsmaður á sviði dýrahalds, sem var ráðinn til starfa hjá Matvælastofnun, hefur ekki gerst sekur um vanrækslu eða illa meðferð hrossa. Þetta er niðurstaða álitsgerð- ar þriggja óháðra sérfræðinga. Stofnunin hefur því ákveðið að starfsmaðurinn komi aftur til starfa, að því er kemur fram í til- kynningu. Í lok janúar ákvað Matvæla- stofnun í samráði við nýráðinn dýraeftirlitsmann að eftirlitsmað- urinn viki tímabundið úr starfi á meðan fram færi skoðun á þeim ásökunum að hann hafi ekki gætt að eðlilegum starfsháttum við eftirlit með stóðhestahólfum sem hann hafði umsjón með. - fb Hafði eftirlit með hrossum: Ekki sekur um illa meðferð KJARAMÁL Sjö verkalýðsfélög skrifuðu í gærkvöldi undir sátta- tillögu ríkissáttasemjara í kjara- deilu Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins. Til- lagan fer fyrir atkvæðagreiðslu og mun endanleg niðurstaða liggja fyrir hinn 7. mars. Félögin sem skrifuðu undir eru Verkalýðsfélag Grindavík- ur, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Aldan, Stéttarfélag Vesturlands, Stéttarfélagið Samstaða, Báran stéttarfélag og Eining-Iðja. Drífa stéttarfélag skrifaði ekki undir tillöguna. Flóabandalagið fundar með ríkissáttasemjara í dag og mun þá greina frá því hvort það sam- þykkir tillöguna eða ekki. - fb Tillaga Ríkissáttasemjara: Sjö stéttarfélög skrifuðu undir SPURNING DAGSINS VIÐSKIPTI Tekjur Actavis á síðasta ári jukust um 47 prósent frá 2012, í 8,7 milljarða dala, eða sem svar- ar tæpum 989 milljörðum króna. Félagið birti uppgjör í Kauphöll- inni í New York í gær. Hagnaður á hlut, án tillits til óreglulegra liða, er sagður hafa aukist um 58 pró- sent milli ára. Í tilkynningu er afkoma félags- ins sögð sú besta í sögu þess. „Hápunktur síðasta árs voru kaup félagsins á írska lyfjafyrirtækinu Warner Chilcott,“ segir þar. - óká Kynntu uppgjör í New York: Besta afkoma Actavis til þessa STJÓRNSÝSLA Innheimtustofnun sveitarfélaga sniðgengur með- lagsgreiðendur þegar hún kref- ur launagreiðendur þeirra um að halda eftir launum þeirra til greiðslu meðlagsskulda, án þess að láta greiðendurna sjálfa vita. Þetta kemur fram í áliti Umboðsmanns Alþingis sem tók málið upp vegna fjölda ábendinga meðlagsgreiðenda. Innheimtustofnun hefur heim- ild til þess í lögum að beina kröfu til launagreiðanda „barnsföður“ um að halda eftir hluta af kaupi hans til greiðslu meðlagsskulda. Þetta gerir stofnunin hins vegar að meðlagsgreiðanda for- spurðum og tilkynnir honum ekki sérstaklega um samskipti sín við launagreiðanda eða að hún hygg- ist yfirhöfuð innheimta með þess- um hætti. Þetta telur Umboðs- maður til marks um óvandaða stjórnsýslu. Í álitinu segir að það geti haft „verulega þýðingu fyrir hagsmuni launþega hvort þessu úrræði væri beitt í máli hans enda kynni það að leiða til þess að útgreidd mánaðarlaun hans og þar með framfærslueyrir skert- ist“. Auk þessa segir Umboðsmað- ur skorta á upplýsingagjöf stofn- unarinnar almennt við meðlags- greiðendur, svo sem ef greiðsla launagreiðanda fyrir hönd með- lagsgreiðanda hafi ekki borist. Í álitinu kemur til dæmis fram að í einu tilfelli hafi meðlags- greiðandi ekki fengið neinar upp- lýsingar um greiðslustöðu sína síðan árið 2003. - js Umboðsmaður segir Innheimtustofnun viðhafa óvandaða stjórnsýsluhætti: Mega ekki hunsa greiðendurna INNHEIMTUSTOFNUN SVEITARFÉ- LAGA Umboðsmaður segir Innheimtu- stofnun þurfa að bæta upplýsingagjöf sína.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.