Fréttablaðið - 21.02.2014, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 21.02.2014, Blaðsíða 8
21. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Dagskrá Kl. 10:30 Setning málstofu Kl. 10:35 Rotary International Birna G Bjarnadóttir Kl. 11:00 Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja Ketill Berg Magnússon Kl. 11:25 Að reka fyrirtæki á landsbyggðinni Höskuldur Steinarsson Fjarðalax Kl. 11:40 Umræður og fyrirspurnir Kl. 12:00 Málstofuslit í Hjálmakletti (hús Menntaskóla Borgarfjarðar), Borgarnesi laugardaginn 22. febrúar 2014. Í tengslum við sýninguna verður málstofa með yfirskriftinni: Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja. Opin atvinnusýning Kl. 12:30-17:00 Um 50 fyrirtæki og þjónustuaðilar í heimabyggð kynna starfsemi sína Samstarfsaðilar: Fiskikóngurinn www.fiskikongurinn.is NÝ VERSLUN HÖFÐABAKKI 1 VERIÐ VELKOMIN Sogavegi 3 Höfðabakka 1 TILBOÐIÐ GILDIR ALLA VIKUNA FÉLAGSMÁL „Við þurfum að skoða vandlega veru okkar innan Kenn- arasambandsins,“ segir Guðríður Arnardóttir, nýkjörinn formaður Félags framhaldsskólakennara. Hún segist ekki hafa lúrt á þeirri skoðun sinni að framhalds- skólakennarar eigi helst samleið með félögum sínum í Bandalagi háskólamanna. „Framhaldsskólakennarar eru sérfræðingar sem miðla þekkingu sinni áfram,“ segir Guðríður. Nýlega var gerð viðhorfskönnun meðal framhaldsskólakennara en ekki er búið að birta niðurstöður hennar opinberlega. Guðríður segir að það, sem hafi komið sér mest á óvart þegar hún skoðaði niðurstöður könnunar- innar, sé hversu lítil þekking er á starfsemi Kennarasambands- ins. Þá komi fram í könnuninni að þeir sem svara séu ekki ánægðir með þjónustu Kennarasambands- ins. Guðríður segir að það verði að fara vel yfir þessar niðurstöður og taka mið af þeim. Annað sem kom fram í könnun- inni var að hluti framhaldsskóla- kennara vill ganga í BHM. Aðrir vildu ekki segja skilið við Kenn- arasambandið heldur lýstu þeirri skoðun sinni að sambandið ætti að hætta að starfa sem stéttarfélag en verða þess í stað regnhlífarsamtök fyrir öll stéttarfélög kennara. Ekki var mikil þátttaka í við- horfskönnuninni, eða innan við 50 prósent. Guðríður segir að það breyti því ekki að taka verði mið af niður- stöðum könnunarinnar. „Þeir taka þátt sem láta sig málið varða,“ segir hún. Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, formaður stöðunefndar Félags framhaldsskólakennara, segir að margar skoðanir séu uppi. „Eftir 14 ára veru í Kennara- sambandinu er ekkert óeðlilegt við að menn líti um öxl og vegi og meti stöðu sína,“ segir Hanna Björg. Hún segist ætla að kynna niður- stöður könnunarinnar á aðalfundi Félags framhaldsskólakennara í mars. johanna@frettabladid.is Hluti kennara vill ganga til liðs við BHM Samkvæmt könnun sem gerð var meðal framhalds- skólakennara vill hópur þeirra ganga í BHM. Aðrir vilja breyta Kennarasambandinu. Nýkjörinn formað- ur segir kennara hafi lýst óánægju með þjónustu KÍ. Innan Félags framhaldsskólakennara (FF) hefur verið umræða um hvort það hafi verið rétt ákvörðun að ganga úr Bandalagi háskólamanna árið 1999 og stofna Kennarasamband Íslands (KÍ) ásamt sjö öðrum stéttarfélögum kennara. Stöðumatsnefnd kennara hefur reynt að leggja mat á hvernig fram- haldsskólakennurum hefur vegnað í KÍ á þeim 14 árum sem liðin eru frá því að samtökin voru stofnuð. Spurningar sem reynt hefur verið að svara eru: ■ Er eitthvert samhengi milli þeirra heildarsamtaka sem félagsmenn hafa verið aðilar að í gegnum tíðina og kjaraþróunar þeirra? ■ Koma lög og skipulag KÍ í veg fyrir að FF ráði sjálft eigin málum, kjara- samningum, skólamálum, innra starfi og félagsmálum? ■ Hvaða spurningar myndu vakna ef FF myndi ákveða að segja skilið við KÍ. Úr áfangaskýrslu stöðunefndar árið 2013. Var rétt að stofna Kennarsambandið? RÆÐA STÖÐU SÍNA Framhaldsskólakennarar skoða þessa dagana innan hvaða heildarsamtaka þeim sé best borgið. Þessi mynd var tekin þegar kennarar mættu á þingpalla á dögunum til að hlýða á umræðu um kjör sín. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MENNTUN Skóla- og frístunda- ráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt tillögur starfshóps um notkun tölvutækni í námi og kennslu mikið fatlaðra grunn- skólanemenda. Tillögurnar fela í sér að gerð verði áætlun til nokkurra ára um spjaldtölvuvæðingu nem- enda og kennara í Klettaskóla og sérdeilda við grunnskóla. Stefnt verður að því að allir mikið fatl- aðir nemendur hafi til afnota, innan þriggja ára, spjaldtölvu sem fylgi hverjum og einum. - fb Tillögur samþykktar: Fatlaðir fá spjaldtölvur DÓMSMÁL Tveir karlmenn voru dæmdir í skilorðsbundið fang- elsi í Hæstarétti í gær. Bíl- stjóri vörubifreiðar sem lenti í árekstri 27. desember 2010 var dæmdur í fjögurra mánaða skil- orðsbundið fangelsi fyrir mann- dráp af gáleysi og umferðar- lagabrot. Eigandi og stjórnandi fyrir- tækisins sem átti vagninn var dæmdur fyrir hlutdeild í brotum vörubílstjórans og fékk tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm. -hrs Tveir sekir í Hæstarétti: Dæmdir fyrr manndráp
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.