Fréttablaðið - 21.02.2014, Page 10
21. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Aðalfundur í Vátryggingafélagi Íslands hf
verður haldinn 13. mars 2014
ÚKRAÍNA Aðeins fáeinum klukkustundum eftir
að stjórnvöld höfðu, seint á miðvikudagskvöld,
samið við stjórnarandstæðinga um vopnahlé í
Úkraínu brutust hörð átök út á ný í höfuðborg-
inni Kænugarði.
Átökin í gær urðu grimmilegri en nokkru
sinni fyrr og virðast hafa kostað meira en hundr-
að manns lífið. Tölur um mannfall voru þó óljós-
ar í gær.
Vestrænar fréttastofur gátu staðfest að tugir
manna væru látnir, þar sem fréttamenn þeirra
höfðu sjálfir talið lík í líkhúsum borgarinnar.
Bandaríska fréttastöðin CNN fullyrti svo síðdeg-
is að hundrað manns hið minnsta væru fallnir í
valinn og 500 særðir.
Leyniskyttur eru sagðar hafa skotið á mót-
mælendur og úkraínsk stjórnvöld hafa staðfest
að sérsveitarmenn hafi notað skotvopn. Þá eru
mótmælendur sagðir hafa tekið 67 lögreglumenn
í gíslingu í gær.
Daginn áður höfðu nærri 30 manns látist í
átökunum í Kænugarði.
Bæði Evrópusambandið og Bandaríkin hafa
hótað refsiaðgerðum gegn úkraínskum stjórn-
völdum, sem sögð eru bera alla ábyrgð á ofbeld-
inu undanfarið.
Evrópusambandið sendi utanríkisráðherra
Frakklands, Þýskalands og Póllands til Úkraínu í
gær, þar sem þeir ræddu fyrst við Viktor Janúk-
ovítsj forseta og síðan helstu leiðtoga stjórnar-
andstæðinga, meðal annars um hugsanlega
málamiðlun í deilunni.
Að því búnu var reiknað með að þeir sneru
aftur til Belgíu þar sem utanríkisráðherrar
hinna Evrópusambandsríkjanna biðu eftir þeim
á neyðarfundi um Úkraínu, þar sem taka átti
ákvörðun um refsiaðgerðir.
Emma Bonino, utanríkisráðherra Ítalíu, stað-
festi við BBC að ferðabann yrði samþykkt á
úkraínska embættismenn og eignir þeirra fryst-
ar í bönkum Evrópusambandsríkjanna.
Rússnesk stjórnvöld sendu svo fulltrúa sinn til
Kænugarðs í gær að ósk Janúkóvitsj forseta. Þar
átti hann að hjálpa til við að miðla málum í deilu
stjórnvalda við mótmælendur.
Fátt bendir þó til þess að nokkur málamiðlun
verði möguleg eftir atburði síðustu daga.
gudsteinn@frettabladid.is
Á annað hundrað manns látnir
Tugir manna létu lífið í átökum mótmælenda og lögreglu í gær. Margir hinna látnu eru sagðir hafa fallið fyrir leyniskyttum. Janúkovítsj
forseti kennir mótmælendum um ofbeldið og segir þá hafa beitt skotvopnum gegn lögreglunni. ESB ætlar að beita refsiaðgerðum.
MARGIR LÁGU Í VALNUM Mótmælendur í Kænugarði votta látnum félögum sínum virðingu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
28. JANÚAR Úkraínustjórn lætur að nokkru
undan kröfum mótmælenda: Forsætisráðherr-
ann segir af sér og þingið afturkallar umdeild
lög um strangara bann við mótmælum.
31. JANÚAR Stjórnarandstæðingurinn Dmitró
Búlatov, sem hafði verið týndur í meira en
viku, skýtur upp kollinum illa farinn og segist
hafa sætt hrottalegum pyntingum. Hann segist
sannfærður um að stuðningsmenn Rússa hafi
rænt honum.
16. JANÚAR Stjórnarandstæðingar láta ráð-
húsið í Kænugarði af hendi, en í staðinn veita
stjórnvöld 234 mótmælendum sakaruppgjöf.
18. FEBRÚAR Hörð átök kosta að minnsta
kosti 26 manns lífið, þar af 10 lögreglumenn.
Hundruð manna særast. Átökin hefjast eftir
að þingið frestar því að breyta stjórnarskránni
aftur til fyrra horfs og þar með draga úr völdum
forsetans.
20. FEBRÚAR Stjórn og stjórnarandstæðingar
semja um vopnahlé, en stuttu síðar brjótast
út hörð átök milli mótmælenda og lögreglu.
Ofbeldið nær nýjum hæðum og fyrir kvöldið
hafa þau kostað á annað hundrað manns lífið.
21. NÓVEMBER Viktor Janúkovítsj forseti
hættir við að undirrita samstarfssamning við
Evrópusambandið. Þess í stað hyggst hann
styrkja tengslin við Rússland. Mótmæli hefjast
í Kænugarði.
30. NÓVEMBER Lögregla ræðst af hörku gegn
mótmælendum í Kænugarði. 35 eru handteknir.
Myndir af lögreglunni beita mótmælendur
ofbeldi berast hratt á milli manna og styrkja
stuðning við mótmælendur.
1. DESEMBER Um 300 þúsund mæta til
mótmæla í Kænugarði. Þetta eru fjölmenn-
ustu mótmæli í Úkraínu frá Appelsínugulu
byltingunni árið 2004. Hópur mótmælenda
leggur undir sig ráðhúsið í Kænugarði.
17. DESEMBER Vladímír Pútín Rússlandsfor-
seti lýsir því yfir að Rússar muni kaupa úkraínsk
ríkisskuldabréf fyrir jafnvirði 17.000 milljarða
króna. Einnig verði mikil verðlækkun á gasi, sem
Úkraínumenn kaupa af Rússum.
22. JANÚAR Þrír mótmælendur láta
lífið í átökum í Kænugarði. Tveir falla fyrir
byssuskotum en sá þriðji fellur úr nokkurri hæð
niður á jafnsléttu. Þetta eru fyrstu dauðsföllin í
átökum vetrarins.
ATBURÐARÁS VETRARINS