Fréttablaðið - 21.02.2014, Page 16

Fréttablaðið - 21.02.2014, Page 16
21. febrúar 2014 FÖSTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Ekki veit ég með vissu hvort heppilegt sé að spyrja þriggja meginspurninga nú þegar umræður um aðildar- (eða aðlögun- ar-) viðræður við Evrópusambandið hafa keyrst fastar í gamalkunnum farvegi. Svör við þessum spurningum (og nokkr- um afleiddum) gætu varpað ljósi á hvern- ig við rekum það sem kallast lýðveldi með þingbundinni stjórn samkvæmt fyrstu grein stjórnarskrár Íslands. Eigum við að reyna? Fyrsta spurningin (og tvær afleiddar) er svona: Getur stjórnmálaflokkur sem leggur fram grunnstefnuskrá fyrir þing- kosningar staðið fast á því að allir kjós- endur sínir taki að öllu leyti undir hvert einasta stefnuatriði? Ef svo er hvernig vita stjórnmálamenn flokksins það? Ef svo er ekki hvernig er þá unnt að nota kosningaúrslit sem skýran og óhaggan- legan mælikvarða á vilja kjósenda í öllum helstu meginmálum samfélagsins? Mælir nokkuð gegn þjóðaratkvæðagreiðslu? Önnur spurning (og tvær afleiddar) er svona: Ef unnar eru nokkrar skoðana- kannanir með lágmarks vísindalegum hætti um tiltekin pólitísk meginmálefni, duga þær til að höndla sem best hin sömu mál og þá í samræmi við niðurstöður kannananna? Ef svo er, hvor nýleg könn- unin er mikilvægari – sú sem bendir til þess að 60–75% landsmanna séu andvíg inngöngu í Evrópusambandið eða sú sem bendir til þess að 60–75% landsmanna vilji að þjóðaratkvæðagreiðsla um fram- tíð aðildarviðræðna fari fram? Sé svo ekki, mælir þá eitthvað á móti því að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort slíta beri viðræðunum eins og nú heyrist rætt um, eða halda þeim áfram og það áður en þingsályktunartillaga um slit er lögð fram á Alþingi? Þriðja spurning (og tvær afleiddar): Ef skýrsla Hagfræðistofnunar HÍ, umbeðin af fulltrúum vorum sem teljast andvígir EB-aðild, er góð og gild má þá búast við að skýrsla Alþjóðamálastofnunar HÍ, umbeð- in af víðtækum samtökum sem sögð eru fylgjandi aðild, verði hvorki góð né gild? Ef svo er, hver eru þá rökin? Ef svo er ekki, væri snjallt að leyfa þeirri skýrslu að lita umræður með opnum huga? Spurt … og svarað? STJÓRNMÁL Ari Trausti Guðmundsson jarðvísindamaður og rithöfundur ➜ Getur stjórnmálafl okkur sem leggur fram grunnstefnuskrá fyrir þingkosningar staðið fast á því að allir kjósendur sínir taki að öllu leyti undir hvert einasta stefnuatriði? Nostradamus Umræður um Evrópusambandið og skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um efnið héldu áfram í þinginu í gær. Andstæðingar héldu margir áfram að túlka skýrsluna mestmegnis sér í hag og Evrópusinnarnir gerðu slíkt hið sama. Óttarr Proppé, þingmaður Bjartrar fram- tíðar, var léttur að vanda. Hann vildi að samningaviðræðum yrði haldið áfram þar til samningur lægi fyrir, til að hægt yrði að meta hvort landið fengi undanþágur frá skilyrðum Evrópusambandsins. Hann sagði skýrsluna bæta litlu við það sem komið hefði fram annars staðar og lægi fyrir. Óttarr sagði erfitt að gerast mikill Nostradamus og það að horfa marga áratugi fram í tímann til að reyna að spá um hvað myndi gerast væri tiltölulega fánýt iðja. Vonandi voru einhverjir að hlusta á Óttar. Blauta tuskan Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, tók einnig þátt í umræðum um aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið. Hann setti örlítið ofan í við utanríkisráðherra, sem hafði áður sagt að skýrsla sem aðilar vinnumarkaðarins hafa látið Alþjóða- stofnun Háskólans gera um stöðu viðræðna við sambandið hefði engin áhrif á það sem stjórnvöld eru að gera þar sem hún væri pöntuð af fylgjendum Evrópusambandsins. Brynjar sagði í ræðu sinni á þinginu í gær að hann hefði viljað hafa fleiri skýrslur sem vitað er að séu á leiðinni. Brynjar sagði einnig að hann væri í flokki þar sem skiptar skoðanir eru um ESB, þar vildu einhverjir sjá hvort sérlausnir væru í boði og hvort þær gætu verið varanlegar. Hann sagðist hafa skilning á því að þessi hópur sætti sig ekki við að hann væri bara sleginn með blautri tusku í andlitið og viðræðum slitið. Það verður spennandi að sjá hvort ríkisstjórnin ætlar að dýfa tuskunni í vatnið og reiða til höggs. fanney@frettabladid.is É g var í röð á leið á klósettið og einhverjir voru að bögga mig á meðan. Síðan þegar ég kom út af skemmtistaðnum beið sami hópur stráka og var með stæla. Það endaði með því að einn þeirra kýldi mig niður og annar sparkaði í mig.“ Þetta er ekki saga frá Rússlandi Pútíns, svo vitnað sé í pistil Pawels Bartoszek frá því í síðustu viku. Nei, orðin hér að ofan eru höfð eftir framhaldsskólanemanum Erni Danival Kristjánssyni í blaði dagsins. Örn segir okkur sögu úr Reykjavík, höfuðborg- inni okkar. Fyrr í vikunni sögðum við frá nýrri íslenskri könnun sem sýnir svart á hvítu að fordómar gagn- vart hinsegin fólki eru enn mjög útbreiddir á Íslandi. Samtökin ´78 stóðu að könnuninni og sagði formaður samtakanna, Anna Pála Sverrisdóttir, að niðurstöðurnar hefðu ekki komið sér sér- staklega á óvart. Mikill meirihluti þátttakenda í könnuninni upplifði fordóma, bæði í vinnunni og í skóla, á skemmtistöðum og jafnvel í fjöl- skylduboðum, af því að þeir eru hinsegin. Tölurnar eru sláandi og sýna að við eigum enn mjög langt í land og aðrar kannanir sýna okkur að samkynhneigð ungmenni eru tuttugu og fimm sinnum líklegri en önnur til að hafa reynt að svipta sig lífi, margsinnis. Þetta unga fólk upplifir oft mikla höfnun og fordóma. Verstir eru fordómarnir gagnvart hinsegin fólki í miðbæ Reykjavíkur eftir myrkur og margir treysta sér ekki í bæinn um helgar. Anna Pála staðfesti á þriðjudag að fordómarnir ættu það til að birtast í sinni verstu mynd þegar fólk hefur drukkið frá sér allar hömlur. Örn Danival stígur fram í Fréttablaðinu í dag ásamt Einari Val Einarssyni. Þessar ungu hetjur mæta fordómum af æðruleysi þótt þeir hafi mikil áhrif á líf þeirra beggja. Við erum komin miklu styttra en við höldum. Enda er mjög stutt síðan við buðum hins- egin fólki að setjast við sama borð og öllum öðrum. Það eru ekki tuttugu ár síðan lög um staðfesta samvist voru samþykkt og fyrir rétt um fjórum árum máttu prestar og forstöðufólk trúfélaga ekki gifta homma og lesbíur. Við þurfum ekki að leita til Rússlands til að verða vitni að for- dómum í garð samkynhneigðra. Við mismunuðum samkynhneigð- um hvað varðar samræðisaldur allt til ársins 1992 og lofuðum hvorki hommum né lesbíum að ættleiða börn fyrr en árið 2006. Það er fyrir rétt um átta árum. Það mun taka okkur tíma að uppræta fordóma gagnvart hinseg- in fólki og við megum alls ekki sofna á verðinum. Við eigum ekki langa sögu fordómaleysis og umburðarlyndis hér á landi. Þess vegna er svo mikilvægt að við leggjum við hlustir þegar svona kannanir eins og sú sem Samtökin ´78 létu gera sýna okkur svart á hvítu að þessi þjóðfélagshópur upplifir enn fordóma. Við eigum einnig að taka mark á þessum ungu mönnum sem við ræðum við í Fréttablaðinu í dag og fagna þeirra innleggi í umræðuna. Við getum gert miklu betur. Enn upplifir hinsegin fólk fordóma á Íslandi: Stutt saga úr Reykjavík Pútíns Mikael Torfason mikael@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.