Fréttablaðið - 21.02.2014, Side 17

Fréttablaðið - 21.02.2014, Side 17
FÖSTUDAGUR 21. febrúar 2014 | SKOÐUN | 17 Í DAG Pawel Bartoszek stærðfræðingur Á seinasta kjörtímabili rak Ísland minnst tvær utanríkisstefnur. Ann- ars vegar var það utanríkisstefna Íslands sem vildi ganga í Evrópu- sambandið og taka upp evru. Þetta Ísland vildi samþykkja kröfur Breta og Hollendinga í IceSave. Þetta var Ísland ríkisstjórnarinnar, eða öllu heldur Samfylkingarhluta hennar. Hinn stjórnarflokkurinn samþykkti þessa stefnu þegjandi og hljóðalaust, en augljóslega án mikils eldmóðs. Svo var það hin utanríkisstefn- an, utanríkisstefna forsetans. Utanríkisstefna sem snerist um að tala illa um Evrópusamband- ið á opinberum vettvangi. Utan- ríkisstefna Íslands sem vildi ekki ganga í Evrópusambandið, vildi ekki semja við Breta og Hollend- inga, vildi efla samskipti við Kín- verja og Rússa, gera viðskipta- samninga við þau lönd og styggja ríkisstjórnir þeirra aldrei. Það er auðvitað ruglingslegt þegar þjóð hefur tvær utanríkis- stefnur. Menn eru ekki endilega vanir því að forseti ríkis sem hefur beðið um að ganga í ESB rakki það í spað og spyrji hvers konar „klúbb- ur þetta eiginlega sé“. Eða að ríki semji um aðild að tollabandalagi og geri á sama tíma fríverslunar- samning við allt annað ríki. En nú hefur staðan einfaldast til muna. Framsóknarmennirnir þrír, for- seti, forsætisráðherra og utanrík- isráðherra, ganga í takt. Þetta er minna ruglingslegt. Ég veit ekki hvort mér finnst það betra. Við kusum þetta Til að gæta sanngirni þá er auð- vitað ekki þannig að þessi nýja, andevrópska, prókínverska og prórússneska utanríkisstefna hafi ekkert lýðræðislegt umboð. Ólaf- ur Ragnar vann seinustu forseta- kosningar með nokkrum mun. Synjanir hans á lögum um Ice- Save voru staðfestar af kjósendum með afgerandi hætti. Fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, Guðni Ágústsson, var í hópi dygg- ustu stuðningsmanna forsetans. Framsóknarflokkurinn með sinn nýja InDefense-arm náði góðum árangri í seinustu kosningum. En, já, þessi utanríkisstefna datt ekki af himnum ofan. Fólk kaus hana. Með í sýningunni Forseti Íslands mætti til Sotsjí ásamt tveimur ráðherrum. Forset- ar hafa hingað til lítið mætt á Vetr- arólympíuleika. Þjóðhöfðingjar margra annarra ríkja létu ekki sjá sig. Þar fyrir utan er nú ekki eins og þessi íþróttahátíð fái Íslend- inga til að leggja niður vinnu. Við sendum oftast færri kepp- endur þangað en í Evróvisjón. Og þegar þjóðhöfðingi okkar mætir og tekur mynd af sér með Pútín þá hefur það eitthvað að segja. Það er stundum sagt að markmið Rússa með þessum leikum sé að sýna heiminum hitt og þetta. Ég held að markmið rússneskra stjórnvalda sé fyrst og fremst að sannfæra eigin borgara um að þeir búi í öfl- ugu og nútímalegu ríki sem aðrir í heiminum virði og líti upp til. Við höfum nú gert okkar til að hjálpa til í þeirri leiksýningu. Ráðherra les upp úr Ítar-Tass Seinast í vikunni gerði utanríkis- ráðherrann eiginlega gott betur með því að taka undir málstað Rússa í málefnum Úkraínu með því að halda því fram að í raun bæri Evrópusambandið ábyrgð á ástandinu í Úkraínu. Þetta er athyglisverður vinkill. Ástandið í Úkraínu er nú svipað því sem það var í Rússlandi á 10. áratugnum. Olígarkar ráða miklu, fjölhyggjan á í vök að verjast og veruleg hætta er á að Úkraína fari sömu leið og Rússland, Hvíta-Rússland eða Kasakstan, verði ríki þar sem kosn- ingar eru lítið annað en fjarvistar- sönnun fyrir ráðamenn til að halda áfram að herða völd sín. Deilurnar í Kíev snúast um hvort landið eigi að vera vestrænt fjölhyggjuríki eða pútínskt nær-einræði. Það ætti að vera auðvelt að taka afstöðu í þeirri deilu. Það reynist hinum Moskvu- vænu framsóknarmönnum hins vegar erfiðara en mörgum öðrum. Hýddar fyrir söng Ég ætla ekki að búa til falska val- kosti. Við getum eflt tengsl okkar við nágrannaþjóðirnar án þess að ganga í ESB. Það má reyna. En núverandi utanríkisstefnu, stefnu sleikjuskapar við harðstjórnir, verður að linna. Þeir sem vilja geta farið á netið og séð myndband þar sem lög- reglumenn í Sotsjí lemja meðlimi Pussy Riot með svipum. Þetta höfum við kosið: Utanríkisstefnu þar sem við nýtum hvert tækifæri til að standa í átökum við þau ríki sem ættu að standa okkur næst. Utanríkisstefnu sem tekur ekki stöðu með mannréttindum. Utan- ríkisstefnu þar sem við freistum þess að dýpka sambönd við ríki þar sem konur eru hýddar með svipum á götum úti fyrir það að hafa reynt að syngja lag. Moskvulínan II Á degi táknmáls- ins 11. febrú- ar var í fréttum Stöðvar 2 við- tal við Margréti Gígju Þórðardótt- ur, kennslustjóra hjá Samskipta- miðstöð heyrnar- lausra og heyrn- arskertra. Í f r a m a n - greindu viðtali kom fram að hún teldi að um 250 manns notuðu tákn- mál á Íslandi. Jafnframt taldi hún að helmingur þjóðarinnar væri heyrnarskertur og lagði hún til að allir Íslendingar lærðu táknmál til að nota í ellinni eða þegar þeir færu að missa heyrn. Heyrnarhjálp, félag heyrnar- skertra á Íslandi, hefur lengi barist fyrir rittúlkun sem aðgengisleið til að halda fólki með heyrnarskerð- ingu í sem bestum tengslum við samfélagið. Þessi barátta okkar hefur haft yfirskriftina „Texti er okkar tromp“ þar sem annars vegar er vísað til þess að sjónvarps- efni verði textað í auknum mæli og hins vegar að þjónusta við heyrnar- skerta verði aukin með rittúlkun. Langflestir Íslendingar eru læsir og gætu því mjög auðveldlega nýtt sér rittúlka við ýmsar athafnir og aðstæður. Einnig hefur félagið mælt með notkun heyrnar- og hjálpar- tækja sem sífellt verða betri og full- komnari. Samskiptafærni á ritmáli fer ört vaxandi í hinum tæknivædda heimi, s.s. í snjallforritum ýmiss konar og nánast hvar sem er, auk þess sem samskiptamiðlar eins og Facebook, Twitter og Snapchat stuðla að vax- andi notkun ritmáls. Flestir kannast við textun á mynd- efni hjá RÚV sem birtist á síðu 888 á textavarpinu. Hingað til hefur sú textun verið bundin við áður upptek- ið efni. Á undanförnum árum hefur vægi frétta og annarra dagskrárliða sem sendir eru út beint aukist veru- lega. Krafa okkar og framtíðarinn- ar er sú að þannig efni verði textað jafnóðum. Við hjá Heyrnarhjálp bendum á að sá hópur sem greinist með heyrnar- skerðingu, jafnvel á háu stigi, notar mun oftar íslensku en táknmál sem fyrsta mál/samskiptamál. Þegar fólk er komið á fullorðinsár er afar fátítt að það tileinki sér táknmál sem samskiptamál í kjölfar heyrn- arskerðingar og tæpast hægt að gera kröfu um slíkt. Við viljum ekki á neinn hátt rýra hlut heyrnarlausra og tökum undir mikilvægi þess að þeir fái fullt aðgengi að samfélaginu með þeirri aðferð sem þeim nýtist best. Við viljum einungis benda á að í tilviki þeirra sem þjást af heyrn- arskerðingu er rittúlkun og notk- un hentugra hjálpartækja besta lausnin. Texti er trompið TÁKNMÁL Kolbrún Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Heyrnarhjálpar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.